Færsluflokkur: Sveitarstjórnarkosningar
28.1.2012 | 21:59
Jón Þorleifsson - V
Hér fyrir neðan eru hlekkir á fyrri frásagnir af Jóni Þorleifssyni, verkamanni og rithöfundi. Það er ástæða til að fletta upp á þeim í réttri röð fyrir þá sem ekki þekktu þennan merka mann áður en lengra er haldið. Og kannski líka fyrir þá sem þekktu hann.
Jón hafði andúð á stjórnmálastéttinni eins og hún lagði sig. Hann mætti jafnan á kjörstað og tók sér góðan tíma í að skrifa á kjörseðil skilaboð til stjórnmálastéttarinnar í bundnu formi. Þó brá svo við eitt sinn að hann greiddi atkvæði. Þegar Jón var að yfirgefa kjörstað hitti hann einn af frambjóðendum Alþýðubandalagsins. Ég man ekki hver það var. Mig hálf rámar í að það hafi verið Magnús Kjartansson. Samt er ég ekki viss. Sá kastaði kveðju á Jón og spurði hvort hann væri búinn að kjósa.
Jón játti því. Sagðist í fyrsta skipti í langan tíma hafa merkt við framboðslista. Viðmælandinn spurði hvort að Jón hefði kosið rétt. Jón svaraði: "Ég veit það ekki. Ég kaus Alþýðubandalagið."
Viðmælandinn tók í hönd Jóns og þakkaði honum fyrir atkvæðið. Jón svaraði: "Þetta var mér nauðung. Eina ástæðan fyrir því að ég kaus Alþýðubandalagið var að fá tækifæri til að strika yfir þitt nafn.
---------
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt 29.1.2012 kl. 23:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.10.2010 | 00:21
Hverju er verið að mótmæla?
Ég mætti kátur og hress í mótmælastöðu á Austurvöll í kvöld. Ég vissi ekki alveg hverju var verið að mótmæla. Það var góð stemmning. Með mér í för var Vestur-Íslendingur frá Kanada. Hann vissi ekki fremur en ég hverju við vorum að mótmæla. Það skipti þó litlu máli. Við mótmæltum einhverju. Og Vestur-Íslendingurinn hefur tekið þátt i mótmælum í Bretlandi, Kanada og víðar. Þar var augljósara hverju var verið að mótmæla.
En þetta var gaman. Við mótmæltum öllu sem var í boði til að mótmæla: Burt með spillingu, burt með ríkisstjórn, burt með stjórnmálastéttina, burt með Alþingi, burt með aðgerðarleysi, burt með Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu, burt með skjaldborg auðmanna, burt með samspillingu, burt með Sjálfstæðisflokkinn, Framsóknarflokkinn, Samfylkinguna, Vinstri Græna og burt með allskonar. Burt með fjórflokkinn, burt með AGS, burt með spillta verkalýðsforingja, burt með verðtrygginguna, burt með ESB...
Bylting lá í loftinu 2009 og enn er hrópað á byltingu. Heimilum blæðir . Glæpamenn fá milljarða afskrifaða. Kúlulánakóngar og kúlulánadrottningar drottna á Alþingi. Sérlegir efnahagsráðgjafar hrunsins blása sig út sem þá sem vita og geta. Öllum öðrum betur.
Og hvað svo? Kosningar strax? Kosningar fyrsta laugardag hvers mánaðar? Þjóðstjórn? Utanþingsstjórn (undir forystu Gylfa Magnússonar og Rögnu)? Einræði? Stjórnleysi (anarkisma)? Besta flokkinn og Frjálslynda flokkinn á þing?
Af hverju var lögreglan grýtt með steinum og allskonar drasli? Af hverju tók Óli Björn Kárason brjálæðiskast í stað þess að fara heim og láta renna af sér? Þó ekki sé nema örlítið.
Svona er Ísland í dag. Mikið fjör. "Föss" gítarsándið hjá Lennon er skemmtllegt þó George hafi hatað það.
|
Réttlæti og heiðarlegt uppgjör |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt 6.10.2010 kl. 18:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
15.6.2010 | 23:01
Pönkbyltingin
Á hippárunum á seinni hluta sjöunda áratugarins talaði ungt fólk stundum með tilhlökkun um það þegar "68-kynslóðin", hipparnir, myndu taka við stjórn landsins. Fólkið sem mótmælti stríði, sagðist kúka á kerfið, boðaði frjálsar ástir og dópaði. Það yrði fjör. Það var heldur ekkert langt í að Davíð Oddsson yrði borgarstjóri, forsætisráðherra, Seðlabankastjóri, ritstjóri Moggans; Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, DJ-drottning, yrði alþingiskona og allskonar; rokkstjarnan Óttar Felix Hauksson - sem rokkaði með nakinni kvenmannsgínu - yrði formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs; Már Guðmundsson yrði Seðlabankastjóri... Og svo framvegis. Og svo framvegis. Tony Blair varð forsætisráðherra Bretlands. Bill Clinton varð forseti Bandaríkjanna.
Vissulega urðu miklar breytingar á vestrænum samfélögum. Frjálsræði jókst og gömul gildi úreltust. En samt. Þetta varð ekki eins og vonir stóðu til. "Eitt sinn hippi, ávalt hippi" varð meira þannig að "nú er hann orðinn kótelettukarl".
1976/77 bylti pönkið hipparokkinu og ný kynslóð, pönkkynslóðin, varð ráðandi afl með nýjum viðhorfum. Gerðu-það-sjálf/ur (Do-it-yourself) var hugmyndafræðin; að kýla á hlutina. Fræbbblarnir og Sex Pistols hraunuðu yfir hippana. Anarkismi var málið.
Nú hefur það gerst sem fáa óraði fyrir: Pönkbyltingin er orðin staðreynd í borgarstjórn Reykjavíkur. Jón Gnarr var áberandi í pönksenunni. Myndin hér efst er af pönksveit hans, Nefrennsli. Óttar Proppe, forsprakki hinnar frábæru pönksveitar Rass, er kominn í borgarstjórn:
Líka Einar Örn. Hann er orðinn formaður Sorpu bs.
Og Dr. Gunni er þarna einnig. Hann er orðinn formaður Strætó bs.
|
Jón Gnarr með lyklavöldin |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt 16.6.2010 kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
31.5.2010 | 21:14
"Hún getur ekkert!"
Það var rosalega gaman að taka þátt í atkvæðatalningu í Ráðhúsinu í borgarstjórnarkosningunum um helgina. Ég var svokallaður "Umboðsmaður framboða". Nokkru munaði að þarna var nóg og gott að bíta og drekka: Lambalæri, smurbrauð af öllu tagi, úrval gosdrykkja, kökur, súkkulaðikex, hnetumix, kaffi, te, bjór, Breezer, koníak, viský... Æ, þarna tók óskhyggjan völd. Síðasttöldu drykkirnir voru ekki í boði.
Því miður varð ég ekki var við eina einustu vísu. Gamalreyndir talningamenn undruðust vísnaleysið. Þess í stað var áhugavert að skoða ógilda atkvæðaseðla. Ýmsir höfðu merkt ákveðið við tiltekinn flokk en strikað yfir nafn eða nöfn hjá öðrum flokki. Það má ekki. Það má einungis eiga við þann lista sem viðkomandi kýs.
Skemmtilegasti ógildi seðillinn sem ég sá var þannig að kyrfilega var merkt við H-listann en við nafn Hönnu Birnu á D-lista hafði verið skrifað skýrum stöfum: "Hún getur ekkert!"
|
Besti og Samfylking ræða saman |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt s.d. kl. 21:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
30.5.2010 | 18:26
Flestir strikuðu út nafn Gísla Marteins
Gríðarmikið var um útstrikanir á atkvæðaseðlum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Með lauslegri talningu telst mér til að nafn féboðsþegans drjúga og knáa, Gísla Marteins Baldurssonar, hafi verið strikað út á um það bil fimmta hverjum atkvæðaseðli Sjálfstæðisflokksins. Margir strikuðu einnig yfir nöfn Júlíus Vífils Ingvarssonar og Kjartans Magnússonar.
Gallinn er sá að í sveitastjórnarkosningum þarf um það bil helmingur kjósenda að strika yfir nafn eins og sama frambjóðandans til að fella hann niður um sæti. Þessu þarf að breyta. Eðlilegra er að 20% útstrikanir hafi þessi áhrif.
Af kjósendum Samfylkingarinnar í Reykjavík var töluvert um að strikað væri yfir nafn Dags B. Eggertssonar. Líklega hátt í á tíunda hverjum seðli.
Nokkur fjöldi kjósenda Vinstri grænna strikaði yfir nafn Sóleyjar Tómasdóttur.
Yfirstrikanir á atkvæðaseðlum Besta flokksins voru undarlegar. Kjósendur hans strikuðu margir hverjir yfir nöfn frambjóðenda í neðstu sætum. Sætum sem voru verulega fjarri því að viðkomandi yrði svo mikið sem vara, vara, vara, vara... borgarfulltrúi. Svo virðist sem grínarar hafi verið í stuði er þeir kusu Besta flokkinn.
|
Flestar breytingar á D-lista |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
30.5.2010 | 04:29
Glæsilegur kosningasigur Sigurjóns Þórðarsonar og Frjálslynda flokksins
Þvers og kruss um landið urðu sviptingar í pólitíkinni í nótt. Fjórflokkurinn fékk víða skell og rótgrónir meirihlutar féllu kylliflatir. Fyrir utan stórsigur Besta flokksins í Reykjavík og Lista fólksins á Akureyri vekur athygli glæsilegur kosningasigur Sigurjóns Þórðarsonar, formanns Frjálslynda flokksins, í Skagafirði. Frjálslyndi flokkurinn hefur ekki áður átt þar bæjarfulltrúa. Nú er Frjálslyndi flokkurinn með næstum 12% meira fylgi í Skagafirðinum en Samfylkingin.
Ég vissi að Sigurjón nýtur mikils persónulegs fylgis í Skagafirðinum. Þar starfar hann sem heilbrigðisfulltrúi. Úrslitin koma mér því ekki á óvart. Ég er úr Skagafirðinum og þekki til vinsælda Sigurjóns meðal minna gömlu sveitunga. Þetta eru engu að síður tíðindi.
Frjálslyndi flokkurinn vann sömuleiðis kosningasigur á Ísafirði. Þar bauð flokkurinn fram í samfloti með fleirum undir merki Í-lista. Í-listinn náði inn 4 bæjarfulltrúum af 9. Líklegt er að Kristján Andri Guðjónsson og félagar í Í-listanum myndi meirihluta á Ísafirði ásamt bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins.
Það er góð sveifla á Frjálslynda flokknum.
|
Mætti á margar möppumessur |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.5.2010 | 09:30
Hvað er til ráða?
Vítt og breitt um land gráta menn (og nokkrar konur) fögrum tárum yfir því að geta ekki kosið annað en fjórflokkinn. Fólkinu svíður þetta óréttlæti. Það er í uppnámi og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Sumir íhuga að mæta ekki á kjörstað. Aðrir íhuga að skila auðu. Ég hef hvatt þetta fólk til hleypa andanum á skeið og setja saman vísu. Það má vera hvort sem er staka eða limra. Vísuna skal rita á kjörseðilinn. Þannig má koma skilaboðum á framfæri skýrar en með því að skila auðu eða sitja á gólfinu heima hjá sér.
Reykvíkingar eru lausir við þetta vandamál. Hér stendur valið á milli þriggja álitlegra framboða: H-lista, framboð um heiðarleika og almannahagsmuni; F-lista Frjálslynda flokksins; og Ælist-a Jóns Gnarrs og félaga.
Leiðtogi H-lista, framboðs um heiðarleika og almannahagsmuni, Ólafur F. Magnússon, hefur fyrir löngu síðan sannað að hann er gegnheill hugsjónamaður. Hann hefur aldrei þegið féboð (mútur). Spilling er eitur í hans beinum. Hann hefur barist eins og ljón fyrir áframhaldandi staðsetningu flugvallarins í Vatnsmýri. Hann hefur staðið einarður gegn því að eigur og auðlindir almennings lendi í höndum fégráðugra siðblindra braskara. Bara svo fátt eitt sé nefnt. Þar fyrir utan er Ólafur skemmtilegur og litríkur stjórnmálamaður sem hefur oft lífgað hressilega upp á sjórnmálaumræðuna. Til að mynda er hann mælti af munni fram á borgarstjórnarfundi á dögunum þetta kvæði um borgarfulltrúa Björgólfsfeðga, Hönnu Birnu:
Gírug í ferðir, gráðug í fé
grandvör hvorki er hún né
gætir hófs í gerðum sínum
gjafir fær frá banka fínum
Auðmjúk er við auðvalds fætur
ávallt að þess vilja lætur
Velferð viljug niður sker
víða hnífinn fína ber
sjaldnast nálægt sjálfri sér
sárt í annars bakið fer
Laugaveg, flugvöll láttu kjurrt
lata Hanna farðu burt
í Valhöll heim að vefja þráð
með vinum þínum í síð og bráð
Það getur verið hollt að rifja upp hvernig umræðan var fyrir tveimur árum:
|
Kjörstaðir opnaðir klukkan 9 |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt s.d. kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
27.5.2010 | 22:32
Heiðarlegur frambjóðandi
Er ekki eitthvað að þegar fólk segir eftirsjá vera af mútuþega í pólitík? Er afsögn mútuþega ekki fagnaðarefni? Þetta er áfangasigur í baráttunni gegn spillingu. Afsögn Steinunnar Valdísar setur þrýsting á Dag, Gísla Martein, Guðlaug Þór og Hönnu Birnu. Það er bannað með lögum að taka við mútum.
Ólafur F. Magnússon leiðir H-listann, framboð um heiðarleika og almannaheill. Hann er með lengsta starfsaldur í borgarstjórn af þeim sem eru í framboði nú. Það hefur aldrei hvarflað að Ólafi F. að þiggja mútur. Hann er heiðarlegur stjórnmálamaður.
|
Eftirsjá af Steinunni Valdísi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
25.5.2010 | 13:23
Missið ekki af
Kosningabaráttan hefur verið í daufara lagi. Það er doði yfir öllu. Fólk er eins og dofið eftir allar upplýsingarnar um gengdarlausa spillingu, grófar einkavinavæðingar, mútur, keypta stjórnmálamenn, bankarán, siðblindu og það allt. Og sér hvergi fyrir enda á svindlinu og svínaríinu. - Þó varaformannsefni Sjálfstæðisflokksins, Ólöf Nordal, stappi stálinu í flokksbræður sína með hughreystandi ummælum á borð við: "Þessi Rannsóknarskýrsla og þetta allt saman er að þvælast eitthvað fyrir okkur tímabundið." Gagnrýni á spillinguna líður hjá eins og hver annar þynnkuhausverkur.
Á milli klukkan 4 og 5 í dag verður spennandi dagskrá á Útvarpi Sögu. Þar munu etja kappi Ólafur F. Magnússon, leiðtogi H-lista, framboðs um heiðarleika og almannahagsmuni, og Einar Skúlason, frambjóðandi Framsóknarflokksins. Mér segir svo hugur að þetta verði hressilegur þáttur. Ég spái því að Ólafur muni leggja Einar á hné sér og hýða hann á bossann með upprifjunum um margháttaða grófa spillingu Framsóknarflokksins í Reykjavík (eins og víðar). Af nógu er að taka.
Fyrir þá sem ekki vita sendir Útvarp Saga út á FM 99,4 á suð-vestur horninu. Ég veit ekki með aðra landshluta. Áreiðanlega er hægt að finna upplýsingar um það á www.utvarpsaga.is. Það er sömuleiðis hægt að hlusta á stöðina beint af þeirri heimasíðu.
.
.
|
Skattar munu hækka eitthvað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.5.2010 | 21:54
Frjálslyndir í meirihluta
Samkvæmt skoðanakönnun er meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fallinn á Ísafirði. Þar er listi Frjálslyndra og óháðra ásamt fleirum (Samfylkingu og Vinstri grænum) kominn með yfirhöndina. Það er allt komið á blússandi siglingu og mikillar uppstokkunnar að vænta þvers og kruss um landið. Fjórflokkurinn á víða undir högg að sækja sem slíkur. Þetta er spennandi.
.
|
L-listinn stærstur á Akureyri samkvæmt könnun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sveitarstjórnarkosningar | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)



sigurjonth
siggith
hallarut
rannveigh
skulablogg
fiski
gudruntora
asgerdurjona
zeriaph
jevbmaack
lehamzdr
ffreykjavik
fuf
xfakureyri
jonmagnusson
palmig
jonaa
jakobsmagg
ktomm
th
jenfo
gurrihar
kiddirokk
hlynurh
skessa
prakkarinn
raudka
maggadora
skinkuorgel
agustolafur
einherji
heidathord
atlifannar
konukind
gudnim
730
blekpenni
heida
vglilja
sleggjan007
markusth
sigrunb
aevark
rannthor
katrinsnaeholm
birgitta
fararstjorinn
agny
ippa
hugrunj
aring
gujo
drhook
runarsv
sjos
doriborg
haukurn
gammon
millarnir
korntop
killjoker
vantru
evathor
partners
meistarinn
heidistrand
iaprag
semaspeaks
svei
jonthorolafsson
sverrir
bonham
bjarnihardar
sigurgeirorri
birnamjoll
veraknuts
plotubudin
ringarinn
nonninn
larahanna
juliusvalsson
skari60
ingvarvalgeirs
kolgrimur
olinathorv
hreinsi
baddinn
jenni-1001
handsprengja
ahi
gudrunmagnea
ommi
hemba
bryndisr
bergthora
grafarholt
mummigud
athena
sigaxel
bjolli
gummiarnar
kerchner
rustikus
thegirl
birna-dis
siggivalur
krizziuz
fridaeyland
evabenz
quackmore
andres08
bleikaeldingin
snorris
ver-mordingjar
nexa
thorasig
lindalinnet
gudni-is
mordingjautvarpid
arh
sinfonian
raggipalli
lovelikeblood
holi
jakobk
rannveigbj
stebbifr
credo
herdis
halo
gullilitli
810
motta
leifurl
janus
lemon
ljonid
kerla
solir
nilli
skagstrendingur
hemmi
gunnar
hannamar
flosi
mosi
geislinn
hlekkur
luther
zumann
jara
hector
malacai
polly82
hughrif
einarlee
loopman
sign
destiny
gilsneggerz
thuridurbjorg
liljabolla
svatli
siggiholmar
folkerfifl
sigurjonsigurdsson
eythora
kiddijoi
kjartanis
rosagreta
kristjon
gthg
gebbo
laugatun
tru
siggileelewis
helgamagg
doddilitli
oliha
kjarrip
steinibriem
huldumenn
jobbisig
id
mp3
blomid
ketilas08
lilly
hjolaferd
skordalsbrynja
birtabeib
karitryggva
marzibil
zunzilla
fjola
rannug
glamor
venus
eurovision
skjolid
minna
austurlandaegill
coke
eyja-vala
harpao
rassgat
ljosmyndarinn
doriegils
lordbastard
neddi
holmarinn
vga
bus
dolli-dropi
vefritid
eirikurgudmundsson
hallibjarna
blues
huxa
judas
asdisran
skattborgari
himmalingur
neytendatalsmadur
kje
laufabraud
vestskafttenor
gunnarggg
esb
hreinn23
saltogpipar
hergeirsson
jea
arniarna
metal
hreinsamviska
godinn
krissa1
robertb
perlaoghvolparnir
regin
brandurj
madddy
tibet
minkurinn
hallidori
liso
graceperla
mrsblues
gummiogragga
sisvet
vild
helgadora
xjonsig
helgananna
meyjan
tungirtankar
visindavaka
mal214
vilberg
brandarar
einarhardarson
adhdblogg
gotusmidjan
saemi7
sterlends
jgfreemaninternational
aloevera
lucas
olibjossi
bestfyrir
helgigunnars
gleymmerei
leifur
ace
diesel
methusalem
astroblog
lynx013
eask
kikka
doddyjones
sigurjon
disdis
valdinn
ragnar73
cigar
parker
manisvans
kerubi
mis
gisgis
finni
tbs
topplistinn
rognvaldurthor
pjeturstefans
gullfoss
pallblondal
thjodarsalin
freyrholm
olii
gattin
olafiaherborg
rallysport
sur
sigrunzanz
rafng
hrannsa
draumur
asdisomar
launafolk
bjarnimax
urval3bjorn
westurfari
braskarinn
emilhannes
gudjul
gp
vgblogg
morgunblogg
rattati
fun
johannesthor
x-d
krissiblo
larusg
lifsyn
loftslag
ludvikludviksson
margretsverris
riddaralidid
skari
roslin
runarf
sigridursig
siggifannar
stjornlagathing
steinki
svanurg
spurs
valdimarjohannesson
totibald