Færsluflokkur: Sjónvarp
28.1.2012 | 13:34
Mikilvægt varðandi sigurlagið í söngvakeppninni
Eins og allir vita þá er Eilíf ást með Herberti Guðmundssyni sigurlagið í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (júrivisjón) í ár. Þegar þetta ber á góma verður mörgum að orði eitthvað í þessa veru: "Það kjósa auðvitað allir lagið hans Hebba. Það er neyðarlegt fyrir aðra söngvahöfunda í keppninni. Af því að lagið hans Hebba er svo öruggt í sigursæti ætla ég að greiða einhverjum öðrum höfundi mitt atkvæði af vorkunnsemi."
Þessi afstaða er varasöm og allt að því refsiverð. Ef allir hugsa á þennan veg fer allt í rugl. Það eina rétta í stöðunni er að greiða atkvæði með því að hringja í 900-9901. Aðeins þannig fer allt vel.
11.1.2012 | 21:02
Hebbi rúllar upp júrivisjón
Ég hef aldrei verið áhugasamur um júrivisjón, Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Oftast hefur þessi söngvakeppni farið að mestu framhjá mér. Samt hef ég alveg orðið var við ágæt lög í íslensku forkeppninni. Til að mynda með Dr. Spock, Dr. Gunna, Botnleðju, Heiðu (kenndri við Unun og Helvar), Ingva Þór Kormákssyni og eflaust fleirum.
Nú er byrjað að kynna lögin í íslensku forkeppninni 2012. Ég hef ekki sett mig inn í það dæmi. Hinsvegar hef ég eftir traustum og áreiðanlegum heimildum að lag Herberts Guðmundssonar sé öruggur sigurvegari. Það sé með svo sterkri og grípandi laglínu, krækju, að það syngi stöðugt fyrir eyrum þeirra sem heyrt hafi. Önnur lög eigi ekki möguleika. Úrslitin séu ráðin.
Við þessu mátti búast fyrst að Hebbi tekur þátt í keppninni í ár. Hann hefur marg sannað sig sem einstaklega lunkinn við að semja grípandi lög. Lagið hans er ekki komið í umferð. Þangað til er upplagt að rifja upp önnur sívinsæl (klassísk) lög hans. Í laginu hér fyrir ofan, Can´t Walk Away, spilar Charlie Watts (The Rolling Stones) á trommur.
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.12.2011 | 01:17
Síðan kom örstutt hlé og allir fengu sér te
Sjónvarp | Breytt 24.12.2011 kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
15.12.2011 | 22:48
Óvenjulegt markaðsátak 365
365 miðlar eru stærsta fjölmiðlasamsteypa landsins. Þeir reka meðal annars Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 2 Extra, Stöð 2 Bíó, Nova TV, Bylgjuna, FM957 og nokkrar fleiri útvarpsstöðvar, netmiðilinn Vísi og gefa út Fréttablaðið. Skráður eigandi er Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, lengst af kenndan við Baug.
Víkur þá sögu að markaðsráðgjafa 365 miðla, Kristjáni Óla Sigurðssyni. Samkvæmt opinberri starfsmannastefnu 365 miðla er leitast við að ráða starfsmenn sem eru frumlegir og útsjónarsamir, traustir og áreiðanlegir.
Kristján Óli stendur bærilega undir því að vera frumlegur og útsjónarsamur. Um það vitnar nýjasta markaðsátak hans. Það felst í því að hann kemur fram undir nafni 365 og leggst af fullum þunga á DV með kröfu um að blaðið birti nafn 18 ára stelpukrakka sem kærði mann á fertugsaldri og konu fyrir nauðgun.
Frumleikinn í gjörningnum er margþættur. Fram til þessa hefur fólk ekki haft hugmyndaflug til að velta fyrir sér hvort undir einhverjum kringumstæðum eigi fjölmiðlar að birta nafn stelpukrakka sem kærir hópnauðgun. Það þarf frumleika og kaldrifjaðar hvatir til að láta sér detta þetta í hug. Hvað þá að krefjast þessa af dagblaði.
Í annan stað er frumlegt af markaðsráðgjafa stærstu fjölmiðlasamsteypu landsins að krefjast þess af litlu dagblaði úti í bæ að framkvæma lágkúruna.
Útsjónarsemin liggur í einhverju sem ég átta mig ekki á. En næsta víst er að þetta markaðsátak hlýtur að skila fjölmiðlum 365 fjölmennum hópi nýrra áskrifenda og ennþá fjölmennari hópi auglýsenda.
Sjónvarp | Breytt 16.12.2011 kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
9.12.2011 | 01:21
Besta hljómsveit ársins, besta plata ársins, besta myndband ársins...
Nú eru áramótauppgjör gagnrýnenda og lesenda hinna ýmsu tónlistartímarita farin að skila sér í hús. Það er margt spennandi í þeim dæmum. Meðal annars að Björk kemur víða við sögu í þessum áramótauppgjörum. Ekki aðeins vegna einnar af bestu plötum ársins 2011 og eins af bestu plötuumslögum ársins heldur einnig fyrir eitt af bestu myndböndum ársins.
Útbreiddasta tónlistarblað Danmerkur heitir Gaffa. Það er vandað fríblað með litmyndum. Í gær (8. des) stóð Gaffa fyrir veglegri verðlaunaafhendingu í Bremen leikhúsinu í Kaupmannahöfn. Næstum 10 þúsund lesendur blaðsins greiddu atkvæði í áramótauppgjöri blaðsins. Úrslitin eru þessi:
Besta myndband ársins
- Björk: "Crystalline" (Michel Gondry)
Besta plata ársins
- Adele: "21"
Besta hljómsveit ársins
- Coldplay
Besta danska rokkplata ársins
- Hatesphere: "The Great Bludgeoning"
Besta danska hljómsveit ársins
- Malk de Koijn
Besta danska poppplata ársins
- Malk de Koijn: "Toback To The Fromtime"
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 01:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.12.2011 | 04:03
Verður "Smells Like Teen Spirit" jólalagið í ár?
Einhverra hluta vegna andar köldu til sjónvarpsþáttarins X-factor frá sumum í Bretlandi. Fyrir tveimur árum leit út fyrir að lag í flutningi þáverandi sigurvegara í X-factor yrði jólalag ársins. Í Bretlandi er það risadæmi hvaða lag er söluhæst síðustu vikuna fyrir jól. Það lag fær titilinn "jólalag ársins" og gífurlega mikla athygli: Þunga spilun í útvarpi og sjónvarpi og jafnvel forsíðuumfjöllun í blöðum. Jólalag ársins er jafnframt iðulega söluhæsta lag ársins. Þess vegna er ætið kapphlaup um það hver á jólalag ársins.
Oftast er jólalag ársins með einhverja tengingu við jólin. Do They Know It´s Christmas? er stundum kallað dæmigert jólalag. Það hefur þrívegis verið jólalag ársins. Fyrst 1984 í flutningi Band Aid, síðan 1989 með Band Aid II og loks 2004 með Band Aid 20. Mary´s Boychild er annað dæmigert jólalag. Það var jólalagið 1957 í flutningi Harrys Belafontes. Boney M. endurtóku leikinn með þetta lag 1978.
Fjölda Breta hugnaðist ekki að jólalagið 2009 félli í skaut X-factor sigurvegara. Mjög óvænt myndaðist stemmning fyrir því að láta þá 17 ára gamalt eyðileggja áform aðstandanda X-factor. 17 ára gamla lagið, Killing In The Name með Rage Against The Machin, hafði allt með sér til að höfða til andstæðinga X-factor: Þetta er hávært pönk-fönkað rapp-þungarokkslag með sterku viðlagi. Textinn bar skýr skilaboð til markaðsdeildar X-factors: "Fuck you, I Won´t do what you tell me!" (Farðu til andskotans, ég ætla ekki að hlýða fyrirmælum þínum).
Það voru ekki margir sem höfðu trú á átakinu. Til að ná takmarkinu þurftu að seljast yfir 500.000 eintök. Umræðan og hvatningar fóru fyrst og fremst fram á netinu. Það var stofnuð sérstök stuðningssíða til að halda utan um umræðuna. Áður en yfir lauk voru 750.000 búnir að skrá sig sem stuðningsmenn. Killing In The Name skákaði X-factor laginu með glæsibrag og varð jólalag ársins 2009. Í dag muna fáir eftir X-factor laginu.
Nú eru komnar af stað þreifingar um að endurtaka leikinn en að þessu sinni með Nirvana-laginu Smells Like Teen Spirit. Umræðan hófst fyrr á árinu en hefur ekki náð verulegu flugi. Útgáfufyrirtæki Nirvana hefur stokkið á vagninn og ætlar að gefa lagið út á smáskífu með söfnunargildi. Smáskífan verður gefin út í sérstökum hátíðarbúningi og aðeins í því upplagi sem dugir til að verða jólalag ársins. Svo verður hún aldrei endurútgefin.
Veðbankar eru laginu ekki hagstæðir. Þeir spá laginu 3ja sæti.
Annað sem setur strik í reikninginn: Ekkja Kurts Cobains, forsprakka Nirvana, hefur boðið X-factor að sigurvegarinn í sjónvarpsþættinum fái að syngja Nirvana-lagið In Bloom og stilla því fram sem jólalaginu í ár. X-factor menn fagna boði ekkjunnar, Courtney Love. Hún fer með höfundarrétt lagsins. Þetta mun spara fyrirtækinu fyrirhöfn og vinnu við að ganga frá höfundarréttarmálum. Það er oft snúið dæmi og lagahöfundar ekki allir tilbúnir að leyfa X-factor söngvurum að syngja sín lög.
Sumir eru þrumu lostnir og svekktir yfir uppátæki ekkjunnar. Aðrir telja þetta snjallt: Að láta tvö Nirvana-lög slást um titilinn jólalagið 2011. Til samans gætu bæði lögin selst í yfir milljón eintökum, ásamt því að fá rosalega mikla spilun í ljósvakamiðlum. Það þýðir að lögin skila erfingja Kurts Cobains vænni krónutölu í vasann. Courtney á þann vasa.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 04:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.10.2011 | 23:24
Guðrún Ebba er hetja! Karl getur ekki setið áfram sem biskup
Sjónvarpsviðtal Þórhalls Gunnarssonar við Guðrúnu Ebbu var átakanlegt og áhrifamikið. Þórhallur sýndi sínar bestu hliðar sem góður sjónvarpsmaður: Ágengur en nærfærinn og hélt sig við kjarna málsins. Guðrún Ebba er hetja. Þetta er stórt skref sem hún hefur stigið með því að segja alþjóð frá því skrímsli sem faðir hennar var; margkrossaður frímúrari og biskup. Æðsti embættismaður íslensku ríkiskirkjunnar.
Guðrún Ebba útskýrði mjög vel í hvaða stöðu fórnarlamb barnaníðs og annars heimilisofbeldi er. Viðtalið á erindi inn í skólastofur landsins.
Verri er hlutur núverandi biskups, Karls Sigurbjörnssonar. Hann kaus að stinga undir stól erindi Guðrúnar Ebbu. Hann sat á því í hálft annað ár. Reyndi þöggun í þessu alvarlega glæpamáli. Það var ekki fyrr en DV tók málið upp sem erindi Guðrúnar Ebbu var dregið undan stóli Karls. Karl hélt áfram að reyna að humma málið af sér. Og hlóð lofsorðum á barnaníðinginn í millitíðinni.
Er Karli stætt á að sitja áfram sem biskup eins og ekkert hafi í skorist? Er hann það sáttur við sína framgöngu? Eða er hann maður til að sýna fórnarlömbum kynferðisglæpamannsins samstöðu og samúð með því að viðurkenna embættisafglöp sín og segja af sér?
www.solstafir.is
Sjónvarp | Breytt 10.10.2011 kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (49)
11.9.2011 | 21:53
Er Hussein Anti-Kristur?
Ég hlustaði á spjall Egils Helgasonar við Noam Chomsky í Silfri Egils í sjónvarpinu í dag. Það var áhugavert. Þeir komu lítillega inn á þá merku staðreynd að fjórðungur bandarískra lýðveldissinna (republicana) telur fullvíst að forseti Bandaríkja Norður-Ameríku, Barack Hussein Obama II, sé Anti-Kristur. Með öðrum orðum að hann sé fulltrúi djöfulsins, þess illgjarna og vonda skratta sem frá greinir skilmerkilega í mörg þúsund ára gömlum þjóðsögum gyðinga í Mið-Austurlöndum. Anti-Kristur hefur eitthvað meiriháttar hlutverk í því að ferli að uppvakningurinn Jesú Kristur mæti enn einu sinni til jarðar og nú á okkar dögum heilögum.
Lýðveldissinnar eru um það bil helmingur Bandaríkjamanna. Þannig að 25% þeirra er fjölmennur hópur. Kannski hátt í 40 milljónir. Getur verið að allur þessi fjöldi hafi rangt fyrir sér? Það væri saga til næsta bæjar. Þetta skiptir okkur jarðarbúa máli. Bandaríkin eru í forystu í heiminum um þessar mundir.
Til gamans má geta að systir kallsins með húfuna, Petes Seegers, var kona Ewans McColls. Dóttir hans sló í gegn á sínum tíma með lagi eftir Billy Bragg, A New England:
Svo var henni drekkt - líkast til óviljandi - af auðmanni á spíttbáti úti fyrir Mexikó. Áður sló breska leikkonan Tracy Ulaman í geng með lagi hennar They Don´t Know.
|
Turnarnir féllu „þægilega“ niður |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Sjónvarp | Breytt 12.9.2011 kl. 17:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (82)
30.8.2011 | 01:28
Máttur bænarinnar
Ég sá áðan út undan mér heimildarmynd í sjónvarpinu um flótta nokkurra fanga úr fangelsi í Texas. Þetta voru harðsvíraðir glæpamenn sem sátu inni fyrir morð og alls konar hrottaskap, eins og gerist og gengur þarna um slóðir. Þeir skipulögðu og undirbjuggu flóttann af mikilli útsjónasemi. Það sem mestu máli skipti var að kvöldið áður en þeir létu til skarar skríða þá komu þeir saman, spenntu greipar og báðu heitt og innilega til Drottins um að flóttinn úr fangelsinu myndi takast.
Það var eins og við manninn mælt: Þeim tókst léttilega að yfirbuga, lemja, afklæða og binda nokkra fangaverði. Flóttamennirnir fóru í föt fangavarðanna, komust yfir byssur og bíl. Því næst náðu þeir að plata aðra fangaverði til að opna hliðið á fangelsisgirðingunni og hleypa sér út í frelsið.
Það var eitthvað sætt og krúttlegt við þetta.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 01:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
21.7.2011 | 22:27
Andri á flandri - lofar góðu
Íslenskt efni í sjónvarpsdagskrá RÚV hefur sveiflast öfga á milli upp á síðkastið. Það hefur einkennst af hæstu hæðum (Popppunktur og kvikmyndir Friðriks Þórs) og hörmung (Tríó). Ég tek fram að síðara dæmið er ekki tiltekið sem árás á höfund Tríós heldur stjórnendur RÚV.
Vegna þess að ég var í útlöndum þá hef ég núna verið að fletta upp á síðustu helgarþáttum á RÚV á "vodinu". Hér á landi á, eins og skagastrandarskáldið sagði. Fyrsti þáttur Andra á flandri lofar góðu. Virkilega góðu. Ég horfði á hann tvisvar í beit. Og skemmti mér jafn vel í bæði skiptin.
Flestir kannast við Andra Frey Viðarsson sem hressan og skemmtilegan útvarpsmann. Fyrst á X-inu og síðan á rás 2. Lýsingarorðið hress hefur reyndar verið gengisfellt af dagskrárgerðarmönnum útvarpsstöðva heimska fólksins, FM957 og Kanans, og er orðið neikvætt. Andri er öðru vísi hress. Í hans tilfelli er orðið hress jákvætt.
Það er ekki sjálfgefið að góður útvarpsmaður sé einnig góður í sjónvarpi. Andri er hinsvegar aldeilis frábær sjónvarpsmaður. Hann tekur sig ekki hátíðlega. Gerir grín að sjálfum sér og nær að laða fram það besta hjá viðmælendum.
Miðillinn Hilmar Guðmundsson fór á kostum. Hjá honum dúkkuðu upp draugar með algengustu íslenskum mannanöfnum: Þórarinn, Tóti, Sigríður, Sigurður, Siggi, Bjarni, Margrét, Jói, Guðmundur, Gunna, "hefur þú verið í sveit?", pönnukökur... Það er verulega merkilegt að draugar með sjaldgæf nöfn kíkja aldrei í heimsókn til miðla.
Andri á flandri er topp sjónvarpsefni. Ég hlakka til að fylgjast með næstu þáttum.
Meðfylgjandi myndbönd eru ekki úr þættinum Andri á flandri heldur gamlar klippur úr Kastljósi.
Í gamla daga var Andri Freyr gítarleikari hljómsveita á borð við Bisund (2. sæti í Músíktilraunum), Botnleðju (1. sæti í Músíktilraunum) og Fidel.
Birkir Fjalar bróðir hans var trommuleikari og söngvari hljómsveita á borð við Döðlurnar, Stjörnukisa (1. sæti í Músíktilraunum), I Adapt og Celestine.
Viðar faðir þeirra var trommuleikari hinnar margumtöluðu hljómsveitar Frostmarks og Jarla. Undir lok ferils Frostmarks var þar söngvari að nafni Jón Rúnar Halldórsson, faðir Friðriks Dórs og Jóns Jónssonar. Þeir eru að gera það gott þessa dagana. Það voru einhver fleiri frægðarmenni í Frostmarki. Galdrakallinn Villi Guðjóns hélt utan um það dæmi. Gott ef ég kom ekki líka við sögu.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)



sigurjonth
siggith
hallarut
rannveigh
skulablogg
fiski
gudruntora
asgerdurjona
zeriaph
jevbmaack
lehamzdr
ffreykjavik
fuf
xfakureyri
jonmagnusson
palmig
jonaa
jakobsmagg
ktomm
th
jenfo
anno
gurrihar
kiddirokk
hlynurh
skessa
prakkarinn
raudka
maggadora
skinkuorgel
agustolafur
einherji
heidathord
atlifannar
konukind
gudnim
730
blekpenni
heida
vglilja
sleggjan007
markusth
sigrunb
aevark
rannthor
katrinsnaeholm
birgitta
fararstjorinn
agny
ippa
hugrunj
aring
majasolla
gujo
drhook
runarsv
sjos
doriborg
haukurn
gammon
millarnir
joninasolborg
korntop
killjoker
vantru
evathor
partners
meistarinn
heidistrand
iaprag
semaspeaks
svei
jonthorolafsson
sverrir
bonham
bjarnihardar
sigurgeirorri
birnamjoll
veraknuts
plotubudin
ringarinn
nonninn
larahanna
juliusvalsson
skari60
ingvarvalgeirs
kolgrimur
olinathorv
hreinsi
baddinn
jenni-1001
handsprengja
ahi
gudrunmagnea
ommi
hemba
bryndisr
bergthora
grafarholt
mummigud
athena
sigaxel
bjolli
gummiarnar
kerchner
rustikus
thegirl
birna-dis
siggivalur
krizziuz
fridaeyland
evabenz
quackmore
andres08
bleikaeldingin
snorris
ver-mordingjar
nexa
thorasig
lindalinnet
gudni-is
mordingjautvarpid
arh
sinfonian
raggipalli
lovelikeblood
holi
jakobk
rannveigbj
stebbifr
credo
herdis
halo
gullilitli
810
motta
leifurl
janus
lemon
ljonid
kerla
solir
nilli
skagstrendingur
hemmi
gunnar
hannamar
flosi
mosi
geislinn
hlekkur
luther
zumann
jara
hector
malacai
polly82
hughrif
einarlee
loopman
sign
destiny
gilsneggerz
thuridurbjorg
liljabolla
svatli
siggiholmar
folkerfifl
sigurjonsigurdsson
eythora
obama
kiddijoi
kjartanis
rosagreta
kristjon
gthg
gebbo
laugatun
tru
siggileelewis
helgamagg
doddilitli
oliha
kjarrip
steinibriem
huldumenn
jobbisig
id
mp3
blomid
ketilas08
lilly
hjolaferd
skordalsbrynja
birtabeib
karitryggva
marzibil
zunzilla
fjola
rannug
glamor
venus
eurovision
skjolid
minna
austurlandaegill
coke
eyja-vala
harpao
rassgat
ljosmyndarinn
doriegils
lordbastard
neddi
holmarinn
vga
bus
dolli-dropi
vefritid
eirikurgudmundsson
hallibjarna
blues
huxa
judas
asdisran
skattborgari
himmalingur
neytendatalsmadur
kje
laufabraud
vestskafttenor
gunnarggg
esb
hreinn23
saltogpipar
hergeirsson
jea
arniarna
metal
hreinsamviska
godinn
krissa1
robertb
perlaoghvolparnir
regin
brandurj
madddy
tibet
minkurinn
hallidori
liso
graceperla
mrsblues
gummiogragga
sisvet
vild
helgadora
xjonsig
helgananna
meyjan
tungirtankar
visindavaka
mal214
vilberg
brandarar
einarhardarson
adhdblogg
gotusmidjan
saemi7
sterlends
jgfreemaninternational
aloevera
lucas
olibjossi
bestfyrir
helgigunnars
gleymmerei
leifur
ace
diesel
methusalem
astroblog
lynx013
eask
kikka
doddyjones
sigurjon
disdis
valdinn
ragnar73
cigar
parker
manisvans
kerubi
mis
gisgis
finni
tbs
topplistinn
rognvaldurthor
pjeturstefans
gullfoss
pallblondal
thjodarsalin
freyrholm
olii
gattin
olafiaherborg
rallysport
sur
sigrunzanz
rafng
hrannsa
draumur
asdisomar
launafolk
bjarnimax
urval3bjorn
westurfari
braskarinn
emilhannes
gudjul
gp
vgblogg
morgunblogg
rattati
stjornmalaflokkur
fun
johannesthor
x-d
krissiblo
larusg
lifsyn
loftslag
ludvikludviksson
margretsverris
riddaralidid
skari
runarf
sigridursig
siggifannar
stjornlagathing
steinki
svanurg
spurs
valdimarjohannesson
totibald