Hverjir selja iðnaðarsvið?

sviðahaus

  Melabúðin á Hagamel auglýsir grimmt að þar séu seld ekta svið.  Á þann hátt - og reyndar fleiri máta - sker Melabúðin sig frá ýmsum öðrum matvöruverslunum.  Matvörubúðir sem reknar eru af óprúttnum náungum selja gervisviðakjamma,  svokölluð iðnaðarsvið.  Ég veit ekki í hverju munurinn liggur.  Kannski í aðferðinni við að svíða hausana.  Varla koma þarna við sögu Egils salt og appelsín.

  Salt jarðar kallar Keith Richards verkafólk,  eins og föður sinn sem var verkalýðsforingi.  Þetta lag samdi hann til heiðurs föður sinum og verkafólki.  Iðnaðarmenn eru iðnaðarsalt jarðar.  

  


mbl.is „Áttum að krefjast vottorða“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir.

Elías (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 03:05

2 identicon

Eg man aðeins eftir þegar afi var að svíða hausa yfir

kolaeldi á smiðjunni.

Það eru alvöru svið.

Síðan komu til sögunnar kosan gastækin

sem svíða mun hraðar.

Hin rómuðu Vopnafjarðar svið eru verkuð þannig.

Þau eru víst fljót að seljast upp.

Ekki ótrúlegt að þau séu í Melabúðinni

Iðnaðar sviðum er rumpað af í einum grænum með logsuðutækjum.

Og það þykir víst ekki mikið í þau varið.

Sólrún (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 03:18

3 Smámynd: Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson

Það skrítnasta við sviðin sem fást í dag er hvað kjammarnir hafa minnkað. Maður varð vel saddur af kjammanum hér á árum áður en nú þarf maður helst tvo .

Hef verið hugsa hvort það sé eins með kindahausana að þeir þurfi að passa í einhverjar maskínur og tól, eins og kjúklingarnir og því sé búið að staðla eitthvert smælki.

Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson, 17.1.2012 kl. 08:18

4 identicon

Á Vopnafirði eru þau líka þvegin upp úr vatni á meðan "Iðnaðarsviðin" fara á færibandi í gegnum klórblöndu.

Þórður (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 08:19

5 Smámynd: Jens Guð

  Elías,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 17.1.2012 kl. 13:40

6 Smámynd: Jens Guð

  Sólrún,  takk fyrir upplýsingarnar.

Jens Guð, 17.1.2012 kl. 13:40

7 Smámynd: Jens Guð

  Kári,  þetta er dularfullt.  Kannski skreppa þeir saman við að vera gasaðir.

Jens Guð, 17.1.2012 kl. 13:41

8 Smámynd: Jens Guð

  Þórður,  takk fyrir þennan fróðleiksmola.

Jens Guð, 17.1.2012 kl. 13:42

9 identicon

Kjammarnir eru ekkert minni í dag, það eruð þið sem eruð feitari og gráðugri :)

DoctorE (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 21:24

10 identicon

  DoctorE,  þetta er eflaust rétt hjá þér.  Líka er sennilegt að minningar frá barnæsku um stóra sviðakjamma spili inn í.

Jens Guð (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 22:10

11 Smámynd: Jens Guð

  DoctorE,  þetta er eflaust rétt hjá þér.  Líka er sennilegt að minningar frá barnæsku um stóra sviðakjamma spili inn í.

Jens Guð, 17.1.2012 kl. 22:11

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sjö og tíu?
Nota HTML-ham