Eiturmatur

  Í verslunarmiðstöðinni Smáratorgi eru næstum því fjórir veitingastaðir:  Einn asískur (alveg ljómadi góður),  annar heitir Food Station (kjánalegt nafn á veitingastað á Íslandi),  svo er þar bakarí sem selur heita súpu og allskonar brauðmeti.  Síðan er sjoppa sem selur pylsur,  gos,  ís og eitthvað fleira.  Kannski samlokur. 

  Þegar gengið er inn um aðaldyr Smáratorgs norðanmegin blasir við plöstuð auglýsingatrana frá Food Station.  Þar er ljósmynd af rétti dagsins ásamt verði.  Ekki öryggisverði heldur verðinu á matnum.  Þar fyrir ofan er texti skrifaður með stórum útklipptum rauðum stöfum.  Þeir mynda textann "EITUR MATUR Í HÁDEGINU". 

  Þetta hljómar ekki aðlaðandi.  Nema myndin af matnum.  Að mér læðist grunur um að stafurinn H hafi dottið af skiltinu.  Eða verið fjarlægður af hrekkjusvíni fremur en að iðnaðarsalt eða iðnaðarsílikon eða eitthvað slíkt komi þarna við sögu.

kjúklingur og franskar


mbl.is Sex matvæli sem þú ættir ekki að borða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha skemmtilegt í ljósi umræðu dagsins.  En þarnar er greinilega hægt að fá almennilega kjúlla. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.1.2012 kl. 23:06

2 identicon

Hér hefði getað verið á ferð hrekkjusvín sem líka væri auglýsingateiknari með glöggt auga :)

Annars bíð eg eins og köttur við músarholu eftir að komast í að prófa alvöru Færeyskan mat.

http://www.youtube.com/watch?v=EV4Rmb_IIhk

Sólrún (IP-tala skráð) 17.1.2012 kl. 23:58

3 identicon

Hvernig smakkaðist eitur maturinn?

Grrr (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 00:04

4 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  áreiðanlega er þetta góður matur þó að yfirskriftin sé fráhrindandi.

Jens Guð, 18.1.2012 kl. 00:16

5 Smámynd: Jens Guð

  Sólrún,  takk fyrir myndbandið.  Tröllabundin  er eitt af mínum uppáhaldslögum með Eivöru.  Færeyska orðið "tröllabundin" þýðir það sama og íslenska orðið "bergnumin".  Smurbrauðsstöfa Sylvíu ofarlega á Laugarvegi (horni Laugavegar og Nóatúns) býður af og til upp á færeyskan mat:  Skerpukjöt,  ræstkjötssúpu og þess háttar. 

Jens Guð, 18.1.2012 kl. 00:20

6 Smámynd: Jens Guð

  Grrr,  ég vakna aldrei nógu snemma til að ná hádegistilboði.

Jens Guð, 18.1.2012 kl. 00:21

7 Smámynd: Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson

Þú varst með pistil um svið í gær. Hér er linkur á aðalsviðaumræðuna sem gengur á facbook núna.

Mjög spennandi umræða svona á síðustu.

 https://www.facebook.com/osvaldsson

Kveðja.

Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson, 18.1.2012 kl. 00:35

8 Smámynd: Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson

Hér eru svo viðbrögð frá uppáhaldsmatstaðnum gegnum árin.

 https://www.facebook.com/notes/m%C3%BAlakaffi/or%C3%B0sending-fr%C3%A1-m%C3%BAlakaffi/226886847393221

 Kv Káriþ

Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson, 18.1.2012 kl. 00:40

9 Smámynd: Jens Guð

  Kári,  bestu þakkir fyrir upplýsingarnar og hlekkinn.

Jens Guð, 18.1.2012 kl. 00:42

10 Smámynd: Jens Guð

  Ég borða oft á Múlakaffi.  Kann vel við "heimilismatinn" þar sem svo er kallaður.  Verðið er næstum því í hærri kantinum í samanburði við hliðstæða veitingastaði.  Á móti vegur að þar eru í boði dagblöð og tímarit til að lesa.  Og maturinn alveg ljómandi góður.  Innifalið í verði er kaffi (sem ég drekk ekki),  ágætur salatbar og súpa og grautur.     

Jens Guð, 18.1.2012 kl. 00:48

11 Smámynd: Björn Emilsson

Fyrir alllöngu var ég að koma til Reykjavíkur með börnin mín ung. Elstu dóttir minni Eddu, þótti eitthvað athugavert við nafnið Múlakaffi og sagði... pabbi eigum við ekki að fara á Molakaffi!! Þessi dóttir mín rekur nú heimsfrægan veitingastað á Grænlandi sem nefnist Tunnuverkstæðið á islensku. Snemma beigist krókurinn.

Björn Emilsson, 18.1.2012 kl. 04:51

12 identicon

Þetta með H-ið sem datt af minnir mig á þegar prakkarar af Vöruflutningamiðstöðinni hf. fóru með stórt H og negldu það upp sem fremsta staf á skilti aðalsamkeppnisaðilans, LANDFLUTNINGAR hf.

Bergur Ísleifsson (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 06:31

13 identicon

Og líka á það þegar einhverjir tóku sig til og strokuðu út ST-ið á skiltinu fyrir ofan útgönguhurðirnar í strætó þannig að eftir stóð: ANDIÐ EKKI Í TRÖPPUNNI. Sumir eldri borgarar sáust halda niðri í sér andanum þegar þeir fóru út þótt þeir hefðu ekki hugmynd um út af hverju það var mikilvægt.

Bergur Ísleifsson (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 06:36

14 identicon

Sæl Jens!

Með því að þú þekkir öðrum fremur til
tónlistar þá vil ég minna á þann ágæta
texta sem fylgir lagi þeirra The Rolling Stones
og nefnist Love in Vain!
Ég er stórhrifinn af stefnumóti við stað sem
nefnist FoodStation sem býður upp á góðan mat
en gestur gæti þurft af magvíslegum ástæðum að
gæta að sjálfum sér og kunna sér hófs í kræsingum
þeim öllum! Nafnið smellpassar!
Er ekki á prósentum hjá þessum stað en er staðráðinn
í að gefnu þessu tilefni að sækja hann heim!.

Húsari. (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 13:32

15 identicon

Að hlusta á stúlkuna storminn og hafið og hvernig hún syngur fyfir eyjarnar sínar er aleg einstakt og maður verður nefnilega alveg bergnuminn.Hún er náttúruafl þessi stúlka.

Eg mun hafa auga með Sylvíu :)

Sólrún (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 16:01

16 Smámynd: Jens Guð

  Björn,  takk fyrir skemmtilega sögu af Molakaffi

Jens Guð, 19.1.2012 kl. 03:50

17 Smámynd: Jens Guð

  Bergur,  þessar voru góðar.  Hehehe!  Það er gaman þegar fólk sprellar í léttum dúr.  Það rifjast upp ein saga frá Færeyjum.  Það gætu verið 20 ár síðan eða svo.  Þannig háttar til að þegar ekið er frá Þórshöfn þá liggur vegur utan í hlíð.  Þaðan blasir við þak á stórri saltgeymsu sem er alveg niður við sjó.  Einn mánudaginn blasti við vegfarendum að einhverjir sprelligosar höfðu málað orðið  Pipar  á þak saltgeymslunnar.  Það skemmtilega við þetta sprell var að grínararnir vönduðu sig.  Þetta var vel málað og faglegt.

Jens Guð, 19.1.2012 kl. 03:58

18 Smámynd: Jens Guð

  Húsari,  ég er viss um að maturinn hjá Food Station er hinn besti.  Að minnsta kosti lítur hann girnilega út á ljósmyndum.

Jens Guð, 19.1.2012 kl. 03:59

19 Smámynd: Jens Guð

  Sólrún,  ég mun áreiðanlega vekja athygli á því hér á blogginu þegar Smurbrauðsstofa Sylvíu verður næst með færeyska viku.

Jens Guð, 19.1.2012 kl. 04:02

20 identicon

Á Food Station er hægt að fá besta fiskinn í bænum

Siggi (IP-tala skráð) 26.1.2012 kl. 21:50

21 Smámynd: Jens Guð

  Siggi,  takk fyrir þær upplýsingar.  Ég tékka á dæminu.

Jens Guð, 26.1.2012 kl. 22:25

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fimm og átta?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband