Boltaleikir eru hættulegir

boltaleikir 16boltaleikir 12boltaleikir 10boltaleikir 8boltaleikir 6boltaleikir 2boltaleikir 3boltaleikir 15 guðjón þórðarsonboltaleikir 4boltaleikir 5boltaleikir 1

  Um daginn var sýnt í sjónvarpi frá blönduðum bardagaíþróttum.  Íslendingur,  Gunnar Nelson,  tuskaðist við útlending.  Viðureignin stóð í örfáar mínútur.  Á þeim stutta tíma bankaði Gunnar olnboga í andlit útlendingsins.  Einhverjir töldu sig sjá örla fyrir blóði á andliti útlendingsins.  Mörgum var illa brugðið.  Þótti ofbeldið yfirgengilegt og ekki til fyrirmyndar.  Sumir gengu svo langt að vilja banna sjónvarpsútsendingar af bardagaíþróttum af þessu tagi.  Aðrir töldu nóg að útsendingin væri stranglega bönnuð börnum og unglingum.  Einungis rígfullorðið fólk hefði þroska til að virða fyrir sér ofbeldið.   

  Út af fyrir sig er gott að fólk sé gagnrýnið á ofbeldi.  Ofbeldi er ekki til eftirbreytni fyrir leikmenn,  fremur en áhættuatriði í kvikmyndum. 

  Einu íþróttir sem ég fylgist með eru bardagaíþróttir,  bæði box og blandaðar.  Vissulega eru átök á milli keppenda.  En það eru strangar leikreglur.  Til að mynda má ekki sparka í pung eða pota í augu.  Keppendur virða það.  Líka áhorfendur. 

  Því er ólíkt farið með boltaleiki.  Að vísu fylgist ég ekkert með þeim.  Hinsvegar kemst ég ekki hjá því að verða var við gríðarlegt ofbeldi í boltaleikjum og í kringum þá.  Það er ekki þverfótað fyrir myndum og myndbrotum af blóðugum boltaleikmönnum og áhangendum,  öskrandi þjálfurum,  slagsmálum,  punghöggum og svo framvegis.  Ósjaldan enda boltaleikir í allsherjar óeirðum,  brotnum stólum og öðrum bareflum.  Boltaleikir eru hættulegir.  Þeir eru hættuleg ofbeldisíþrótt.  Ekki aðeins fyrir óharðnaða áhorfendur sem þurfa að horfa upp á ofbeldið heldur enn fremur fyrir leikmenn.  Ef þeim er ekki sparkað út og suður á leikvellinum,  lamdir í svaðið og það allt þá eru þeir myrtir ef þeir standa ekki undir væntingum.  Þannig er farið að afgreiða þá í Lýbíu og fleiri löndum.  Í N-Kóreu eru þeir hýddir.  Er mér sagt.  Reyndar þrætti s-kóreskur hermaður sem ég hitti í Noregi fyrir það.  En hann er ekkert endilega áreiðanleg heimild.  

boltaleikir 11lboltaleikir 14boltaleikir 13boltaleikir 9

boltaleikirA

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski vantar skák aðra hverja lotu. Þar með eru blönduðu bardagaíþróttirnar orðnar virðulegar.

Eins og einhverjir boxarar höfðu vit á:

http://en.wikipedia.org/wiki/Chess_boxing

Grrr (IP-tala skráð) 30.3.2014 kl. 22:55

2 identicon

Það er hægt að finna bæði fyndnar og svo líka ljótar ljósmyndir úr fótboltaleikjum, en almennt er fótbolti milli góðra knattspyrnuliða meira í ætt við listsköpun. Það er miklu meira ofbeldi í pólitík og við þurfum ekki að leita langt til að finna fyrir grófu andlegu ofbeldi stjórnmálamanna. Hér níðist Framsóknarflokkurinn t.d. á öryrkjum, láglaunafólki og leigjendum með því að koma þessu fólki hverki til hjálpar og sniðganga það alveg. Á meðan moka þeir skattfé í stóreignafólk sem fór óvarlega í fjárfestingum í græðgi sinni. Já, Framsóknarmenn taka sér það leyfi að ríkisvæða einkaskuldir og það með hjálp Sjálfstæðisflokksins af öllum. Ef slíkar aðgerðir eru ekki ofbeldi, þá er ofbeldi bara ekki til.      

Stefán (IP-tala skráð) 31.3.2014 kl. 08:38

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Ætli hluti VG eigi ekki metið í ofbeldinu,þá ég við Steingrím og öll Samfylkingarelitan,sem nýddist á samráðherra fylkingarinnar. En sammála að fótbolta má líkja við listsköpun,að mínum dómi, skyld skák þar sem mestu skiptir að gera áætlun um fléttur,þar sem taflmenn eru brálifandi fólk.

Helga Kristjánsdóttir, 31.3.2014 kl. 10:47

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Var ekki einn boltamaður drepinn í Finnlandi í gær eða fyrradag?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2014 kl. 15:56

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Og bloggin þín hættulega góð!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 31.3.2014 kl. 18:00

6 identicon

Það er alltaf ákveðið hlutfall mannskepnunar fávitar. Skiptir ekki máli í hverju það er. Jafn vanþróuð á vissum sviðum og fyrir 2000 árum.

Valgeir (IP-tala skráð) 31.3.2014 kl. 20:19

7 Smámynd: Jens Guð

Grrr, góð hugmynd!

Jens Guð, 31.3.2014 kl. 20:43

8 Smámynd: Jens Guð

Stefán, það er margt til í þessu hjá þér.

Jens Guð, 31.3.2014 kl. 20:45

9 Smámynd: Jens Guð

Helga, það er erfitt að meta hver toppar hvern.

Jens Guð, 31.3.2014 kl. 20:47

10 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur, jú, eða hvort að það var í Svíþjóð.

Jens Guð, 31.3.2014 kl. 20:47

11 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I.B., alltaf góður!

Jens Guð, 31.3.2014 kl. 20:48

12 Smámynd: Jens Guð

Valgeir, þetta er rétt hjá þér.

Jens Guð, 31.3.2014 kl. 20:48

13 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Held að þetta hafi verið í Finnlandi en sá sem var drepinn var svíi.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.3.2014 kl. 23:30

14 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Sá er var myrtur var sárasaklaus Stokkhólmsbúi er varð fyrir árás meintra aðdáenda Helsingjaborgar. Átti voðaatburðuinn sér stað langt frá vellinum og fyrir leikinn.

Magnús Geir Guðmundsson, 7.4.2014 kl. 11:02

15 Smámynd: Jens Guð

Já, þetta var víst þannig að sænskur 4ra barna faðir var drepinn í Finnlandi út af boltaleik.

Jens Guð, 9.4.2014 kl. 00:17

16 identicon

NEI! Þetta er svo mikið bull. Hvernig getur leikur eins og MMA eða BOX sem snúast báðir um að meiða andstæðinginn sem mest verið hættulegri en fótbolti. Bolltaleikir eins og rugby eða ameriskur fótbolti geta alveg verið frekar hættulegir en alls ekki fótbolti. Dæmin sem þú gefur hér fyrir ofan eins og slagsmál, óeirðir og að einnhver meiðist illa gerist kanski í 1 leik af 20. En td. í boxi þar sem annar leikmannanna rotast í næstum hverjum leik það er ofbeldi. Mikill munur á þeirri íþrótt og fótbolta. Hefurðu einhvertíman horft á fótboltaleik. Ég held að þú vitir ekkert um hvað þú ert að tala. Öskrandi þjálfarar það er líka bara lélegt dæmi á ofbeldi, hvernig á leikmaður sem er 90 metera frá þjálfaranum að heyra í honum ef hann öskrar ekki. Fótbolti er líka besta og vinsælasta íþrótt í heimi. Áfram K.R.

fotbolltierbestaiþrottiheimi (IP-tala skráð) 10.4.2014 kl. 18:33

17 Smámynd: Jens Guð

Fotbolti..., ég lék mér í fótbolta upp á hvern dag sem krakki og unglingur. Hinsvegar þykir mér ekkert gaman að horfa á fótbolta. Uppistaða af þeim sem sækja slysavarðsstofu Borgarspítalans eru boltaspilarar. Þegar flett er upp á íþróttsíðum dagblaða á netsíðum er allt morandi í meiðslum boltaspilara. Tékkaðu á heimildarmyndum um breskar boltabullur. Þær tala sínu máli. Ljótu máli.

Jens Guð, 11.4.2014 kl. 23:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband