Íslenskir tónlistarmenn geta auðveldlega náð heimsyfirráðum

  Ef þú getur komið á framfæri öflugu lagi á sex sek. er möguleiki á að verða heimsfræg poppstjarna.  Dæmin sanna það.  Snjallsímaappið Vine er málið.  Vine er einskonar þútúpa.  Munurinn liggur í því að öll myndbönd á Vine eru aðeins 6 sek.  Þetta knappa form virðist henta hröðum heimi unga fólksins í dag.  

  Sala á lagi með bandaríska rapparanum Glasses Malone,  That Good,  óx um 700% þegar notandinn SheLovesMeechie setti inn á Vine myndband af sér dansa við þetta lag.  Skyndilega hafði það verið spilað yfir milljón sinnum á þútúpunni.  Þetta er bara eitt dæmi af mörgum.  Fjöldi áður óþekktra og ósamningsbundinna tónlistarmanna hefur náð heimsfrægð og risasölu á sinni músík í gegnum Vine.

 

    Lagið Burn með Ellie Goulding & Jason Derulo er annað dæmi.  Myndbrot á Vine hefur skilað því lagi yfir 200 milljón spilunum á þútúpunni.  Verst hvað þessi lög eru djöfull leiðinleg.  En þá er bara málið að setja á Vine 6 sek myndband með skemmtilegu íslensku lagi.  Þetta er trixið í dag fyrir ósamningsbundna og óþekkta íslenska tónlistarmenn til að ná inn á heimsmarkaðinn og leggja hann undir sig án mikils tilkostnaðar.

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er ábyggilega allt satt og rétt en ég skil bara ekki orð af því sem þú ert að segja!

Mín tónlistar-tölvuheimsmynd er bundin við Google,youtube og spotify skil ekki mikið annað (ef ég skil þá það) 

Bjarni Gunnlaugur (IP-tala skráð) 13.5.2014 kl. 16:14

2 Smámynd: Jens Guð

Bjarni, ég skil það vel. Ég vissi ekki af tilvist Vine fyrr en á dögunum komu tveir unglingspiltar frá útlöndum til að taka upp Vine-myndir á Íslandi. Þeir sögðu frá komu sinni á netinu og upplýstu að þeir ætluðu í Smáralind. Þegar í stað fylltist Smáralind af þúsundum unglingsstelpna sem flæddu yfir allt gólfpláss Smáralindar og bílastæði. Flóðbylgjan var slík að bílar sem urðu undir því dælduðust.

Við þessa uppákomu hrökk ég við og uppgötvaði Vine.

Jens Guð, 13.5.2014 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband