Vandræðalegt bílnúmer

  Fyrir vestan haf standa yfir málaferli.  Og það fleiri en ein og fleiri en tvenn.  Ein málaferli snúast um bílnúmer.  Kona nokkur keypti sér nýjan bíl.  Hún keypti einkanúmer á hann með orðinu 8THEIST (þýðir TRÚLAUS).  Þegar konan fékk bílinn í hendur blasti við á honum bílnúmerið BAPTIST (stendur fyrir þann sem hefur tekið niðurdýfingarskírn).

  Konan brást hin versta við.  Vandamálið er hinsvegar það að samkvæmt lögum má ekki skipta um bílnúmer.  Nýr bíll er skráður á tiltekið bílnúmer og skal bera það óbreytt uns honum er fargað (eða seldur til annars ríkis).

  Á skráningarstofunni er konan sökuð um að hafa handskrifað einkanúmerið illa.  Það hafi valdið mislestri.    

stytta 

 

  


mbl.is Bókstafstrúarmenn stálu styttu af keltneskum guði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Gæti verið rétt hjá þér Jens í þessu tilfelli, en það er ekki í öllum Ríkjum USA.

Til dæmis í Nevada þá gat ég ráðið því hvort að ég fengi nýtt númer eða notaði númerið sem eg hafði á bílnum sem ég seldi.

Ég valdi að færa númerið af bílnum sem ég seldi yfir á bílinn sem ég keypti.

Kveðja frá Houston.

Jóhann Kristinsson, 24.1.2015 kl. 20:32

2 identicon

Man alltaf eftir þessu tilfelli á Akranesi http://www.visir.is/vildi-ekki-gay-numer/article/2007312140004

Jóhann (IP-tala skráð) 24.1.2015 kl. 21:35

3 identicon

maria (IP-tala skráð) 25.1.2015 kl. 20:11

4 Smámynd: Jens Guð

  Jóhann,  takk fyrir upplýsingarnar.

Jens Guð, 26.1.2015 kl. 21:33

5 Smámynd: Jens Guð

  Jóhann (#2),  takk fyrir skemmtilega ábendingu.  

Jens Guð, 26.1.2015 kl. 21:37

6 Smámynd: Jens Guð

María,  takk fyrir sendinguna.  

Jens Guð, 26.1.2015 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.