Stórtækt minnisleysi

  Það er margt að í Héraðsdómi Reykjavíkur.  Hugsanlega er það kaffið þar. Hugsanlega er það drykkjarvatnið.  Hugsanlega hefur það eitthvað að gera með vonda rafmagnaða strauma.  Vandamálið er það að þegar dómsstólar taka fyrir bankarán síðusutu ára þá tapa bankaræningjarnir minni umsvifalaust á sama tíma og þeir mæta í dómssal. Þeir lamast og skilja hvorki upp né niður. Þeir sturlast og kannast ekki við neitt.  Allt er þurrkað út.  Þeir ofan koma af fjöllum eins og Andrés utangátta.

 


mbl.is „Ég man ekkert eftir þessu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að það sé frekar staffið en kaffið sem er úldið.

Stefán (IP-tala skráð) 29.1.2015 kl. 08:27

2 identicon

Aumingja blessaðir mennirnir. Þeir ættu að fá læknisvottorð upp á að þeir þoli ekki þetta umhverfi.

Haukur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 29.1.2015 kl. 08:45

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Úpps, ég átti leið framhjá Lækjartorgi í dag og nú man ég ekki hvað ég ætlaði að blogga um hér!!!!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 29.1.2015 kl. 20:48

4 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  þetta er ekki einleikið.  

Jens Guð, 29.1.2015 kl. 20:53

5 Smámynd: Jens Guð

Haukur,  þetta þarf að rannsaka.

Jens Guð, 29.1.2015 kl. 20:53

6 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I.B.,  þetta hafa fleiri sagt sem hafa átt leið framhjá Héraðsdómi.

Jens Guð, 29.1.2015 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.