Maður skotinn til bana til að forða honum frá sjálfsvígi

  Í Denver í Bandaríkjum Norður-Ameríku hringdi örvæntingafull móðir í lögregluna.  Fullorðinn sonur hennar,  andlega vanheill,  bar hníf að hálsi sér og hótaði að svipta sig lífi.  Hún bað lögregluna um að afvopna hann áður en hann færi sér að voða.

  Tveir lögreglumenn mættu í snarhasti á svæðið.  Þeir gáfu manninum ströng fyrirmæli um að hætta tafarlaust við áform um sjálfsvíg.  Hann sýndi engin merki um hlýðni.  Þvert á móti þá herti hann hníf að hálsi og hljóp aftur út á götu.  Til að forða manninum frá því að láta verða af ætlun sinni sá lögreglan ekki aðra leið en skjóta hann til dauða.

  Í kjölfar sendi lögreglan frá sér fréttatilkynningu um atburðinn.  Lögreglumennirnir voru hlaðnir lofi fyrir hugrakki og hetjuskap.  Með snarræði náðu þeir að hindra manninn í að fremja sjálfsvíg.  Að auki tekist snöfurlega að bjarga eigin lífi í sjálfsvörn áður en ofbeldisfullur og hættulegur maðurinn myrti þá.  Ennfremur áður en hann myrti alla íbúa götunnar.  Hvatt var til þess að lögreglumennirnir yrðu sæmdir æðstu orðum Bandaríkjanna fyrir hetjudáðir.

  Mörgum dögum síðar birtist á þútúpunni meðfylgjandi myndband af atburðarásinni.  Sumum virðist sem hún stangist á við lýsingu lögreglunnar.  Talsmaður lögreglunnar hefur bent á að þeir sem voru ekki á vettvangi hafi enga möguleika á að átta sig á aðstæðum;  hvernig lögregluþjónar upplifðu atvikið.   

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarna eru svo sannarlega góðmenni og hetjur á ferð,  eitthvað anað en borgarstjórnarfulltrúar sem vilja ekki gefa aumingja Sveinbjörgu Birnu köku. Það er jú einmitt vitað að framsóknarmenn eru sólgnir í kökur, stórar og miklar kökur sem þeir rífa í sig við öll tækifæri, samanber forsætisráðherra sem ku vera einstaklega sólginn í djöflatertur og klárar þær örugglega áður en aumingja Sveinbjörg Birna kemst í bita - Skamm !

Stefán (IP-tala skráð) 17.9.2015 kl. 08:25

2 Smámynd: Jens Guð

Það var eðlilega áfall fyrir borgarfulltrúann að fá ekki súkkulaðitertubita.  

Jens Guð, 17.9.2015 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.