Jón Ţorleifs fór í hundana

jon ţorleifsson 1  Jón Ţorleifsson,  verkamađur og rithöfundur,  var kappsamur um margt og ţrár.  Hann gafst aldrei upp.  Ţess í stađ spýtti hann í lófana, bretti upp ermar og setti undir sig hausinn ţegar hann ćtlađi sér eitthvađ.  Einu sinni sem oftar heimsótti hann systur mína og hennar fjölskyldu til Svíţjóđar.  Fjölskyldan var komin međ hund.  Stóran og mikinn varđhund.

  Jón bauđ sig fljótlega fram til ađ fara međ hundinn í reglubundnar gönguferđir.  Ţví var hafnađ.  Fjölskyldan hafđi sótt ótal námskeiđ í öllu sem snýr ađ umgengni viđ hunda.  Jón var upplýstur um ađ hundurinn hlýđi einungis fjölskyldunni. Hann virđi ekki né taki mark á öđrum.

  Jón maldađi í móinn.  Sagđist vera fćddur og uppalinn í sveit og vanur ađ umgangast hunda.

  Smalahundur í sveit og risastór varđhundur í borg eru víst ekki alveg sama skepnan.

  Útúrdúr:  Systurdóttir mín gekk úr rúmi fyrir gestkomandi frćnku sína.  Sú vaknađi snemma morguns viđ ađ hundurinn var ađ spyrna henni í rólegheitum út úr rúminu.  Hann hafđi lagst fyrir innan.  Ţar snéri hann baki í hana.  Svo spyrnti hann međ fótum í vegginn.  Nautsterkur náđi hann nánast ađ ýta konunni út á gólf er hún vaknađi.  Hún spratt á fćtur í tćka tíđ.  Í kjölfar ákvađ hún ađ klćđa sig.  En fann ekki fötin.  Viđ nánari athugun kom í ljós ađ hundurinn var búinn ađ bera fötin fram í stofu.  Sennilega ćtlađi hann konunni ađ sofa ţar fremur en í rúmi heimasćtunnar.

  En aftur ađ Jóni:  Ţegar styttist í ađ komiđ vćri ađ kvöldgöngu hundsins hvarf Jón sjónum heimilisfólksins.  Varđ ţeim litiđ út um glugga.  Blasti ţar viđ Jón međ hundinn í bandi. 

  Í skelfingu hljóp fólkiđ út. Of seint.  Hundurinn tók á sprett niđur götuna.  Hann var miklu sterkari en Jón.  Jón sleppti ekki taki á taumnum.  Hrađinn var svo mikill á hundinum ađ Jón hljóp hrađar en áđur á sinni rösklega 90 ára löngu ćvi. Hann var eins og spretthlaupari á Ólympíuleikum.  En bara í nokkrar sekúndur.  Fyrr en varđi flaug hann láréttur í loftinu áđur en hann skall á magann á götuna.  Hundurinn fann ekki fyrir ţessu og sló hvergi af hlaupunum.  Heimilisfólkiđ hrópađi á hundinn.  Ţrátt fyrir hávćran umferđaniđ náđu hróp loks til hundsins.  Hann stoppađi og beiđ eftir ţví ađ vera sóttur og fylgt til baka heim á leiđ.  

  Jón blés eins og hvalur.  Bćđi vegna óvćntrar áreynslu og eins ţví ađ honum var verulega brugđiđ.  Ađstćđur voru vandrćđalegar.  Umferđ undrandi gangandi og akandi vegfarenda hafđi stöđvast.  Fjöldinn fylgdist áhyggjufullur međ Jóni brölta á fćtur.  Hann var reikull í spori og ringlađur.  Sparijakkinn hans var frćsađur ađ framan.  Tölur höfđu kubbast af.  Líka tölur af spariskyrtunni.  Hatturinn fokinn út i buskann og fleira lauslegt.

  Heimilisfólkiđ skynjađi strax ađ niđurlútur Jón vildi ekki rćđa ţetta.  Ţađ var látiđ eftir honum.  Atvikiđ lá í ţagnargildi.  Hann reyndi ekki aftur ađ fara í göngutúr međ hundinn.  

varđhundur          

------------------------------

Fleiri sögur af Jóni HÉR


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Takk ţćr eru frábćrar sögurnar af honum Jóni. Takk fyrir ađ deila ţeim međ okkur hinum sem ekki ţekktum karlinn smile

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 7.10.2015 kl. 09:43

2 identicon

Sögur af kynlegum kvistum eru ćvinlega skemmtilegar. Og ţú kannt ósköpin öll af ţeim. Vćri ekki ráđ ađ safna ţessu öllu saman, rifja upp ţađ sem óskráđ er og koma ţví svo út?

Metsölubók og Nóbelsverđlaun innan seilingar!

Tobbi (IP-tala skráđ) 7.10.2015 kl. 10:44

3 Smámynd: Jens Guđ

Ásthildur Ceisl,  ţađ er frábćrt og gefandi ađ fleiri hafi gaman af sögunum en viđ sem ţekktum Jón Ţorleifs.  

Jens Guđ, 7.10.2015 kl. 21:09

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Já svo sannarleg smile

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 7.10.2015 kl. 21:20

5 Smámynd: Jens Guđ

Tobbi,  tvö bókaforlög hafa óskađ eftir ţví ađ fá ađ gefa ţessar sögur út í bókaformi.  Í sumar hefur tímaritiđ "Heima er best" fengiđ mitt leyfi til ađ birta ţessar sögur.  Fyrir nokkrum árum komu s0gur mínar af Önnu Mörtu frćnsku á Hesteyri út í bók (ţćr voru ađeins lítill hluti af ćvisögu Önnu frćnku).  Líka margar frásagnir mínar af fólki í bók sem ég man ekki hvađ heitir.  Kannski "Gamansögur" eđa "Skopsögur" eđa eitthvađ álíka.  

  Áreiđanlega kemur út í bók einskonar úrval af ţessum sögum.  Kannski eftir 3 - 4 ár.  Ég fór í smá baklás er ég skrifađi bók um Fćreyjar og Eivöru fyrir tveimur árum.  Ţađ var allt svo snúiđ og flókiđ.  Varđ mér miklu miklu meiri vinna en ég sá fyrir.  

Jens Guđ, 7.10.2015 kl. 21:25

6 identicon

https://www.youtube.com/watch?v=-Xh-H1h4PB0

DoctorE (IP-tala skráđ) 8.10.2015 kl. 15:56

7 Smámynd: Jens Guđ

DoctorE,  takk fyrir skemmtilegt myndband.

Jens Guđ, 8.10.2015 kl. 19:02

8 Smámynd: Sigfús Sigurţórsson.

Hahahahahaha, mikiđ getur ţú látiđ mann hlćgja, snillingur :)

Sigfús Sigurţórsson., 10.11.2015 kl. 11:20

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband