Aðgát skal höfð í nærveru sálar

  Frétt mbl.is af meintu óhreinlæti múslímskra kvenna á íslenskum sundstöðum er einkennileg.  Meðal annars einkennileg vegna þess að í sjálfri fréttinni kemur fátt fram sem styður fyrirsögn um óhreinlæti þeirra á sundstöðum.  Frekar þvert á móti.   Fyrirsögninni "Sakaðar um að gæta ekki hreinlætis" er augljóslega slegið upp í þeim tilgangi að ala á fordómum.  Það er ekki til fyrirmyndar.  Lúmskur rasískur áróður af þessu tagi er ekki til eftirbreytni.

  Múslimakonur eru mjög lágt hlutfall af sundlaugargestum á Íslandi.  Hinsvegar eru bandarískir ferðamenn hátt hlutfall af sundlaugargestum á Íslandi.  Meðal annars vegna þess að þeir eru einna fjölmennustir túrista hérlendis.

  Töluverð vandamál hafa fylgt því að Kaninn er spéhræddur þegar kemur að nekt í búningsklefum sundlauga.  Hann veigrar sér við nekt og því að þrífa sig áður en haldið er út í sundlaugina.  Margur sundlaugarvörðurinn þarf að beita lagni og kurteisi til að fá Kanann til að fylgja reglum um þrifnað í aðdraganda heimsóknar í heita pottinn.

  Ekkert samt stórt vandamál.  Þetta hefur með menningarmun að gera.  Engin ástæða til að slá upp frétt af því. Svona er þetta bara. Allir gera sitt besta til að gera gott úr þessu.  Þannig á það að vera.

  Til gamans má rifja upp að í bandaríska Fésbókin bannaði nektarskotið (mín 1:13) í myndbandinu hér fyrir neðan.  Flokkaði það undir gróft klám sem særði blygðunarsemi.  Aðgát skal höfð í nærveru sálar.  

 


mbl.is Sakaðar um að gæta ekki hreinlætis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég hef komið inn á múslimaheimili á Íslandi þar sem ekki er notaður klósettpappír heldur voru vatnsausur til staðar. Svo var borðað með höndunum og ekki boðið upp á hnífapör. Mér er sagt að svona siðir séu viðhafðir í múslimaríkjum Norður-Afríku og víðar í múslimalöndum. Siðir sem svo flytjast með íbúum þaðan til annara búsetulanda. Hreinlætiskröfur eru einfaldlega allt aðrar en þær sem við erum alin upp við.

Stefán (IP-tala skráð) 5.2.2016 kl. 08:28

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þegar ég var í sveitinni skeindi maður sig á Tímanum. Þegar Íslendingar éta svið gera þeir það með höndunum.

Gera nú frétt um þetta.

Ómar Ragnarsson, 5.2.2016 kl. 10:27

3 identicon

Það er nú gott Ómar, að málgagn framsóknarmanna hafi einhverntíma gert eitthvað gagn og þá væntanlega hægt að nýta DV eins í dag.

Stefán (IP-tala skráð) 5.2.2016 kl. 10:52

4 identicon

Góður ertu Jens frábær færsla

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 5.2.2016 kl. 11:23

5 identicon

Það er ekki gott að bandarískir ferðamenn skuli vera fjölmennastir túrista hérlendis því þar byrjar næsta kreppa alveg eins og siðast,

skuldir bandaríkja manna hefur tvöfaldast síðan 2008

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 5.2.2016 kl. 11:29

6 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þegar ég var við vinnu í Jeddah Sádi Arabíu 1981 að mig minnir þá var það bresk kona "flugfreyja" sem fór að synda í sundlaug Hyatt hótelsins á tíma Ramadan það árið.

Þegar hótel starfsmenn tóku eftir því að konan "flugfreyjan" var að synda í sundlauginni, þá var konan "flugfreyjan" rekin upp úr og sundlaugin tæmd og skrúbbuð í heila viku.

Þetta kalla ég sko hreinlæti og geri nú aðrir betur. Ég held að þessar hreinlætisaðgerðir hafi ekkert haft með hvers kyns manneskjan var eða hvaðan hún kom, hvað haldið þið?

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 5.2.2016 kl. 14:19

7 identicon

Auk þess skilst mér Jóhann, að heilmikill heilaþvottur sé stundaður á íbúum Sádi Arabíu í 24 tíma á sólarhring.

Stefán (IP-tala skráð) 5.2.2016 kl. 15:38

8 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Get ekki sagt mikið um heilaþvott Sádana, af því að ég þekki það ekki Stefán. En það getur vel verið að þú hafir rétt fyrir þér.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 5.2.2016 kl. 16:20

9 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ja hérna! Það er ekki öll vitleysan galin á sama hátt. Semsagt fjölbreytileg vitleysa.

Er ekki númer eitt, og nauðsynlegt heilbrigðismál að koma upp almenningssalernum á fjölmörgum vinsælum útivistarsvæðum á Íslandi? Þó ekki væri nema til þess eins, að koma í veg fyrir alvarlega smitberandi mannaskítsflugur?

Er ekki kominn tími til að siðmenntunarþróa Ísland til þess siðmenntaða stigs, og taka vatnssalerni í notkun þar sem fólk er á ferðinni?

Eða kostar frumþarfa-skíthúsa-þrifnaðurinn á almannaferðum of mikið fyrir siðlausa ráns-forstjórapyngju Bláa-Lóns-stjóranna forarfensdýrkandi, djúpt sokknu, og samfélagsmengunar-gjörspilltu? Það er ekki nema von að það þurfi nýtt sjúkrahús á Íslandi?

Hvað heitir hann nú aftur, þessi nýjasti skítaembættisofurlauna-spillingarforstjóri ferðamála-stofu-(eitthvað)?

Fyrirgefðu siðlaust orðbragðið hjá mér Jens minn, en mér ofbýður svo þessi skítuga og ómannúðlega siðspillingarstjórnsýsla hrl.-klíkunnar skítugu á dómstólaspillta Íslandi, að ég get ekki látið vera að segja mína skoðun á þennan hátt.

Takk fyrir að leyfa svona ómerkilegum kerlingarkjafti eins og mér að segja mína skoðun hér á þinni síðu Jens Guð.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.2.2016 kl. 18:21

10 Smámynd: Jens Guð

  Stefán,  þegar ég dvaldi í Texas 1976 þá þótti mér einkennilegt - en ekki óþægilegt - að hnífapör voru ekki notuð.  Matur samanstóð af hamborgurum og frönskum,  pizzum,  encilada,  samlokum,  kjúklingabitum,  tortillum og þess háttar.  Flest af þessu var þá óþekkt á Íslandi.

  Í dag nýtur fingramatur vinsælda á Íslandi,  svo sem sushi og allskonar.      

Jens Guð, 6.2.2016 kl. 13:24

11 Smámynd: Jens Guð

Ómar,  góður punktur.

Jens Guð, 6.2.2016 kl. 13:25

12 Smámynd: Jens Guð

Helgi,  takk fyrir góð orð og áhugaverða ábendingu. 

Jens Guð, 6.2.2016 kl. 13:26

13 Smámynd: Jens Guð

Jóhann,  takk fyrir skemmtilega og fróðlega sögu.

Jens Guð, 7.2.2016 kl. 16:32

14 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður,  þínar áhugaverðu hugleiðingar eru ætíð afskaplega velkomnar.   

Jens Guð, 7.2.2016 kl. 16:34

15 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Ekki ætla ég mér að dæma sundlaugavenjur manna, en ekki þykja mér þær kræsilegar fréttirnar sem ég las um daginn. Við getum verið siðleg og kallað þetta flóttamannavandamál:

http://www.bt.dk/udland/flygtninge-skabte-problemer-i-historisk-svoemmehal-onanerede-i-boernepoolen

http://www.bt.dk/udland/asylansoeger-voldtog-10-aarig-i-svoemmehal-det-var-en-seksuel-noedsituation

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 8.2.2016 kl. 10:23

16 Smámynd: Jens Guð

Vilhjálmur Örn, þetta eru skelfilegar fréttir.

Jens Guð, 8.2.2016 kl. 18:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband