Spaugileg réttarhöld

  Í réttarsal eru samtöl dómara og lögmanna við sakborning og vitni samviskusamlega skráð og færð til bókar.  Eðlilega eru allir misjafnlega upplagðir.  Þar getur verið dagamunur á.  Að auki er fólk mis rökfast að upplagi og mis klárt í að skilja og skilgreina spurningar og svör viðmælenda.

  Eftirfarandi samtöl eru öll tekin upp úr dómsskjölum í Bandaríkjum Norður-Ameríku:

-----------------

Lögmaður:  Hvað er sonur þinn gamall,  sá sem býr heima hjá þér?

Vitni:  38 eða 35.  Ég man ekki hvort.

Lögmaður:  Hvað hefur hann búið lengi hjá þér? 

Vitni:  Í 45 ár.

-----------------

Lögmaður:  Hver er fæðingardagur þinn?

Vitni:  18. júlí.

Lögmaður:  Hvaða ár?

Vitni:  Á hverju ári.

-----------------

Lögmaður:  Hvað var það fyrsta sem eiginmaður þinn sagði við þig þennan morgun?

Vitni:  Hann sagði:  Hvar er ég, Kata?

Lögmaður:  Hvers vegna kom það þér í uppnám?

Vitni:  Ég heiti Súsanna.

-----------------

Lögmaður:  Hefur þessi sjúkdómur nokkuð haft áhrif á minni þitt?

Vitni:  Jú.

Lögmaður:  Á hvern hátt?

Vitni:  Ég gleymi.

Lögmaður:  Gleymir?  Getur þú nefnt mér eitthvað sem þú hefur gleymt?

-----------------

Lögmaður:  Ertu kynferðislega virk?

Vitni:  Nei,  ég ligg bara þarna.

-----------------

.


mbl.is Lögmenn með 185 þúsund á tímann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

ÞEIR FÁ KAUP ÞEGAR ÞEIR ERU DAUÐIR HE HE !!! OG ALLLLIR Í NEÐRA !!!

Erla Magna Alexandersdóttir, 6.2.2016 kl. 19:39

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það þarf víst raunverulega að biðja fyrir sálum þeirra lögmanna þegar þeir deyja, Erla Magnea. Því svo illa verður komið fyrir sálum þeirra þegar yfir lýkur, að ekki dugar neitt minna en kauplaus, skilyrðislaus og kærleiksrík fyrirbæn fyrir hjálp á torfæru-handan-brautinni þeirra. Sorglega glatað að eyða lífinu í eintóm vonlaus svikaránsverk hér á jörðu. Þroskast afturábak?

Flækjustig og kauphækkanir lögmanna og dómara aukast því miður samhliða, og uppúr öllu siðferðislega verjandi valdi.

Hugsa sér hvað væri hægt að byggja marga háskóla-spítala fyrir Kára og co, ef gagnslaust lögmannaflækjustigið skattsvíkjandi mergsygi ekki allt skattfé af varnarlausum sjúklingum, gamalmennum og launasviptum lífeyrisþrælum. Hvert stefnir stjórnlaust opinbert siðleysið eiginlega? 

Kári er nú nokkuð þrár og þrjóskur þegar hann bítur eitthvað í sig. Hann ætti að safna undirskriftum um að koma lögmönnum og dómurum á launataxtann sem er langt undir lágmarksframfærslukostnaði, sem viðgengst á Íslandi. Þá yrði kannski eitthvað eftir af hasskökuhagnaðinum handa heiðarlega starfandi skattgreiðandi og kerfisrændum almenningi.

Þá fyrst færi nú að verða siðlega og löghlýðnilega mögulegt að búa og starfa á heiðarlegan hátt á Íslandinu hans Kára spítala-erfðagreinda, og Íslandinu lögmanna-dómaraklíkaða, og banka/lífeyrissjóða-rænda og dómstólasvikna?

En hver vill þannig siðferðislega heiðarlegt samfélag? Varla lögmennirnir og dómsstólarnir sem verja siðleysið?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.2.2016 kl. 20:59

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.2.2016 kl. 21:22

4 Smámynd: Jens Guð

Erla Magna,  þá fer fram skuldauppgjörið!

Jens Guð, 7.2.2016 kl. 16:37

5 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður,  takk fyrir frábært innlegg.

Jens Guð, 7.2.2016 kl. 16:37

6 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil, takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 7.2.2016 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband