Náðargáfa að tala tungum

  Í kristni er vel þekkt sú náðargáfa að tala tungum.  Heittrúaðir og sannkristnir í góðu og nánu sambandi við almættið tala þá ósjálfrátt,  viðstöðulaust og án vandkvæða tungumál sem þeir kunna ekki. Um þetta eru áhugaverðar frásagnir í Biblíunni.

  Víkur þá sögu að Svavari Sigurðssyni.  Hann hefur í áratugi barist gegn fíkniefnadjöflinum.  Á síðustu öld var hann viðmælandi Eiríks Jónssonar á Stöð 2 og talaði tungum.  Það var áhrifaríkt - þó að hvorki hann né sjónvarpsáhorfendur skildu hvað hann sagði.

  Lögreglan í Reykjavík hefur sagt frá kynnum af karlmanni sem talaði tungum við ljósastaur í Grafarvogi.  Næsta víst er að þar var um mikilvægan boðskap að ræða.  Vegna tungumálavanþekkingar lögreglunnar fáum við aldrei að vita hver hann var.  

 

   


mbl.is „Talaði tungum“ í Grafarvogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Fífan for noke jæfla tullprat? 

Fífa-n? FÍFAN? Fótbolti hvað?

Var það kannski tungutal hins kerfissvikna ljósastaura-styðjandi en kerfis-stuðnings-svikna samfélagsborgara?

Stemmir þetta ekki bara nokkuð vel, þegar er um Fótboltamafíunnar verkferla að ræða?

Ég er nú bara að fíf(a)last og bulla núna Jens minn :)

Stórsyndurum eins og mér ferst það kannski bara best, að benda á það sem ég hef lært af mínum eigin lögfræðisannleiksmetnu og Ó-dómstóladæmdu syndamistökum. Ósönnuðum?

Hlakka til að sleppa til annarra vídda, frá lögfræðivörðum kerfisins svikulu batteríum og bankastjórnsýsluráns-glæpafjármálakerfi á Hótel Jörð :).

Hittumst kannski handan móðunnar miklu :)? Það er að segja ef við verðum send í sömu kennsluvídd í næsta lífi :)?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 26.2.2016 kl. 21:47

2 identicon

"Á Síríus er töluð íslenska" Helgi Pé.

Túngumálasnillingur og dulmálsráðandi (IP-tala skráð) 27.2.2016 kl. 11:01

3 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Og svo eru það auðvitað þeir sem tala tungum tveim. Marga þeirra má sjá skjótast inn og út úr húsi einu miklu, byggðu úr tilhoggnu grjóti og stendur við götu eina er nefnist Kirkjustræti í okkar höfuðborg.

Gunnar Heiðarsson, 27.2.2016 kl. 12:06

4 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Kannski var hann að tala Ess eða Pé mál???

Sigurður I B Guðmundsson, 27.2.2016 kl. 13:07

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Hugmyndafræðin á bakvið þetta upphaflega virðist hafa verið að postularnir eða þeir sem boðuðu trúna, gætu talað erlendar tungur si sona vegna innblástrar frá Guði.  Og boðendur trúarinnar gætu því farið í ókunn lönd og Guð mundi gefa þeim mál eða blása þeim í brjóst hvað skild segja.

Þetta sýnir vel, að mínu mati, hve mikill kraftur var upphaflega í Kristninni eða hve kjarni kristnitrúar er oft krefjandi og mikil orka í honum.

Tónlistarmenn þarna kringum 1970 föttuðu þennan kjarna sem m.a birtist í fínlegum textum og tilfinninganæmri tónlist.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 27.2.2016 kl. 14:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.