Athyglisþörf fjöldamorðingja

breivik grætur

  Norðmenn hafa tekið aðdáunarlega vel á eftirmálum fjöldamorða hægri róttæklingsins Anders Breiviks. Í baráttu gegn fjölmenningu myrti hann 77 manns.  Þar af flesta í ungliðahreyfingu Verkamannaflokksins.

  Alveg frá hryðjuverkadeginum hafa Norðmenn sýnt stillingu og yfirvegun.  Rík áhersla hefur verið lögð á að fjöldamorðin breyti engu um norska réttarríkið.  Engum verklagsreglum né lögum verði breytt.  Mannúðlega lýðræðisríkið standi óbreytt.  Vonir glæpamannsins um annað hafa ekki ræst.

  Auðvitað óska margir Breivik alls hins versta.  Það má meðal annars lesa í athugasemdakerfum íslenskra netmiðla.

  Ókosturinn er sá að Breivik er tekinn mjúkum höndum.  Hann fær að baða sig í kastljósi fjölmiðla.  Það er við fjölmiðla að sakast.  Þeir fullnægja athyglisþörf hans með myndbirtingum af honum og yfirlýsingum hans.  Heppilegra væri að þeir veittu honum litla sem enga athygli. Í fangelsinu fær hann að lesa dagblöð,  hlusta á útvarp og horfa á sjónvarp. Mikil umfjöllun um hann kitlar athyglisþörf hans og gefur honum þau skilaboð að hann skipti miklu máli.  

  Það er ekki gott.

breivik Heil HitlerTrump Heil Hitlerhitler

 

          


mbl.is Breivik-málið: Hvað felst í einangrun?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er út af svona fólki sem ég er sumpart fylgjandi dauðadómum.

Stefán (IP-tala skráð) 17.3.2016 kl. 08:10

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Nei, dauðadómar eiga aldrei rétt á sér.

Sæmundur Bjarnason, 17.3.2016 kl. 10:14

3 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Held að það sé Economist sem segir Trump vera "One of top ten gobal threats."

Sæmundur Bjarnason, 17.3.2016 kl. 10:17

4 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  dauðadómur er jafn vondur hvort sem hann er kveðinn upp og framkvæmdur af Breivik eða öðrum.  

Jens Guð, 17.3.2016 kl. 19:29

5 Smámynd: Jens Guð

Sæmundur,  ég er sammála þér.  

Jens Guð, 17.3.2016 kl. 19:30

6 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Dauðadómur á aldrei rétt á sér.

En barnaverndarnefndir eiga sér ekki raunverulega verjandi málsstað í mörgum ó-útkljáðum málum. Hvorki í Noregi né á Íslandi.

Einhverra undarlegra hluta vegna sluppu starfsmenn barnaverndarnefndar við opinberar yfirheyrslur, í Anders Brekvik málinu?

Noregs-dómskerfið skuldar Noregi, Íslandi, og heimsbyggðinni allri, skýringu á þeirri óverjandi dómsstóla-vanrækslu!

Lögregluyfirvöld eru í raun einskis verð, ef þau hafa ekki yfirvald til að verja einstaklinga (ólíka, unga sem gamla), samkvæmt lögverjandi opinberlega verjandi réttlæti.

Og samkvæmt siðmenntuðu óflokkuðu mannréttinda-réttlæti!

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 18.3.2016 kl. 21:29

7 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður,  vel mælt!

Jens Guð, 19.3.2016 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband