Móðursýki

  Ég skil ekki ákafan áhuga fólks á boltaleikjum.  Nenni ekki að horfa á þá.  Mér er svo slétt sama um það hvort að einhver skori mark.  Ennþá meira sama um það hverjir skora mark.  Undarlegast þykir mér þegar boltalið er hyllt sem hetjur fyrir að tapa leik 5 - 2.  

  Hvað með öll þessi öskrandi andlit inni á vellinum?  Hverskonar hegðun er það?

  Hitt er skemmtilegt:  Að fylgjast með boltaáhugamanni fylgjast með boltaleik.  Gott dæmi um það má sjá með því að smella HÉR og smella síðan á örina á myndbandinu.  Takið eftir því að æsingurinn er slíkur að gaurinn kófsvitnar á bakinu.  

boltagaur aboltakallboltagaur b


mbl.is Hundruð hylltu strákana á Reykjanesbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Geðveikt.

GB (IP-tala skráð) 5.7.2016 kl. 11:51

2 Smámynd: Jens Guð

Geggjun

Jens Guð, 5.7.2016 kl. 19:33

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jens. Ég horfði á bíómyndina ,,King Kong" (ef ég man nafnið á myndinni rétt). Sú mynd var á einhverri af norðurlandastöðvunum nýlega, sem ég horfi oft á.

Apinn í myndinni, sem var kóngurinn í villiskóginum (aðal-leikarinn í myndinni), barði sér á brjóst á svipaðan hátt eins og stuðningsmanna HUH-eitthvað gerði á þessum fífla-fótbolta-geðveikileiks-eitthvað?

Apa-HUH-stuðningsfólk, til að lýsa yfir "samstöðu" og stuðningi við okkur íslendinga-fíflin? Íslendingafíflin bankarændu, lífeyris-sjóðssafns-rændu, okurskattpíndu, ofur-nettóláglaunuðu (undir lágmarksframfærslu), húsnæðislausu og sýslumannarændu/kúguðu?

Það væri alvarleg syndalygi að segja að á Íslandi væri starfrækjandi siðmenntað og þroskað réttarríki.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.7.2016 kl. 22:54

4 identicon

Hver er munurinn á lygi og syndalygi? Og hvor er alvarlegri?

Tobbi (IP-tala skráð) 5.7.2016 kl. 23:46

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Tobbi. Það er líklega enginn munur. Stundum verður mér á sú ofboðslega skoðanahneykslun í tjáningu, að bæta óþarflega mikið við lýsingarorðin. Fyrirgefðu mér þann mannlega breyskleika og galla, ef þú getur verið svo vænn :)

Takk fyrir mig í þetta sinn :).

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.7.2016 kl. 00:34

6 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður, það er alltaf gaman að þínum vangaveltum.  Líka að heyra í þér í símatíma á Útvarpi Sögu í dag.   

Jens Guð, 6.7.2016 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband