Sítt að aftan

paul apaul bpaul cpaul d

  Á níunda áratugnum blossaði upp tískufyrirbæri sem kallast "sítt að aftan".  Það var útþynnt afsprengi tónlistarfyrirbærisins "nýbylgju" (new wave) sem spratt upp úr bresku pönkbyltingunni.  Afsprengið gekk undir rangnefninu "ný-rómantík".  Hérlendis kallað "kuldarokk".  Þetta var léttvægt tölvupopp.  Ekki alltaf vont.  En oft.  Flytjendur iðulega stelpulegir strákar með andlitsfarða og blásið hár; sítt í hnakka en styttra að framan og um eyru.  Erlendis heitir það "mullet".

  Breski bítillinn Paul McCartney var frumherji "sítt að aftan" tískunnar á seinni hluta sjöunda áratugarins.  Landi hans,  David Bowie,  tók skrefið lengra.  Ýkti stílinn.  Eflaust voru "ný-rómanarnir" undir áhrifum frá Bowie án þess að ganga eins langt.

bowie abowie b 

  Á tíunda áratugnum varð fjandinn laus.  Þá fór "sítt að aftan" eins og stormsveipur um suðurríki Bandaríkja Norður-Ameríku.  Rauðhálsarnir (red necks) kunnu sér hvergi hóf.  Kántrý-boltarnir fóru þar framarlega í flokki.  Það er góð skemmtun að fletta upp á ljósmyndum frá þessu tímabili.  

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband