Rándýr athyglisþörf

  Ljúflingnum Dónaldi Trump,  frambjóðanda til embættis forseta Bandaríkja Norður-Ameríku, er margt til lista lagt.  Hann er laginn við að vekja á sér athygli.  Það er kostur fyrir manneskju sem þráir athygli meira en allt annað.  Hitt er verra;  að hann skortir viðskiptavit.  Eftir hann liggur löng slóð gjaldþrota fyrirtækja.  Fjöldamargir sem hafa unnið fyrir hann sitja eftir með sárt enni.  Jafnvel svo að þeir hafa sjálfir orðið gjaldþrota.

  Hann hefur þar fyrir utan svínað sem mest hann má á allflestum verktökum og öðrum sem hann á viðskipti við.  Það er honum skemmtilegur leikur að trampa sem rækilegast á þeim. 

  Dónald erfði ógrynni fjár eftir föður sinn.  Sá var óvandaður pappír en hafði það umfram forsetaframbjóðandann að kunna að ávaxta sitt pund.  Þegar hann féll frá var hann auðmaður á heimsvísu.  Framreiknað á núvirði hefur forsetaframbjóðandanum tekist að tapa um það bil helmingnum af föðurarfinum.  Það er lofsvert afrek.  Sér þar hvergi fyrir enda á.  

  Athyglissjúki forsetaframbjóðandinn hefur í kosningabaráttunni stórskaðað fyrirtæki sín fjárhagslega.  Með glannalegum yfirlýsingum,  ruddaskap og allskonar hefur hann fælt frá sér viðskiptavini í svo ríkum mæli að telur.  Tekjutapið er að meðaltali 1/7 á degi hverjum.  

  Fyrrum innanbúðarfólk Dónalds segir þetta vera þvert á áform hans.  Uppskriftin var sú að framboðið yrði Trumps-veldinu ódýr auglýsing.  Kallinn situr uppi með ranghugmyndir um markaðslögmálin.  Góðu fréttirnar eru þó þær að hann fær eitthvað af athyglinni sem hann þráir meir en allt annað.  Háar fjárupphæðir mega tapast í skiptum fyrir hana.

  Framan af var frjálshyggju- og tepokalið - ásamt Ku Klux Klan, Putin og Kim Jong-Un - hliðhollt framboði Trumps. Munaði þar nokkru um að hin knáa Sara Pálína lýsti yfir eindregnum stuðningi við kauða og áform hans um að einangra Bandaríkin;  múra þau inni með tollamúrum og steinsteyptum vegg.  Nú er öldin önnur.  Þekktir frjálshyggjufulltrúar snúa við honum baki.  Hérlendis hafa Hannes Hólmsteinn og Áslaug Arna fordæmt kallinn.  Meiri athygli vekur að bandaríski frjálshyggjupönkarinn Mojo Nixon sendir kaldar kveðjur.  Meint kynferðisbrot Trumps hafa einhver áhrif á viðhorf til hans.  Um þau má lesa H É R    

 

     


mbl.is Baráttan bitnar á eignunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Væri ekki bara hægt að kalla hann " Dóni"?

Jósef Smári Ásmundsson, 7.8.2016 kl. 08:46

2 Smámynd: Jens Guð

Þar hittir þú naglann á höfuðið!

Jens Guð, 7.8.2016 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.