Móðursýkiskast vikunnar

kanínueyru aakanína akanínakanínueyru bkanínueyru  bbkanínueyru ckanínueyru dkanínueyru ekanínueyru fkanínueyru hkanínueyru i

playboy-use 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Kanínur eru krútt.  Vinsæl krútt.  Þær eru frjósemistákn.  Á frjósemishátíðinni miklu, Páskum,  leikur kanínan stórt hlutverk - í bland við önnur frjósemistákn,  svo sem egg og hænsnaunga.  Súkkulaðikanínur eru í mörgum þjóðfélögum vinsælli en súkkulaðiegg.  Einhverra hluta vegna eru páskaeggin hinsvegar allsráðandi hérlendis.  Kannski af því að Nóa-eggin eru svo vel heppnuð.  Kannski af því að kanínan er sjaldséð á Íslandi.

  Í Bandaríkjum Norður-Ameríku og víðar er kanínan tengd kynþokka.  Þegar konur setja sig í eggjandi stellingar er algengt að kanínueyru séu spennt á höfuð.  

  Þvers og kruss um heim eru svokallaðir Playboy næturklúbbar,  Allt frá Japan til Jamaíka.  Flestir í Bandaríkjunum.  Léttklæddar dömur sem vinna þar kallast Playboy-kanínur.  Þær bera kanínueyru á höfði.

 Í Bandaríkjunum hefur löngum tíðkast að mynda með vísifingri og löngutöng kanínueyru fyrir aftan höfuð þess sem stendur fyrir framan mann.  Í sumum tilfellum hefur þetta kynferðislegan undirtón.  Par gerir þetta gjarna í tilhugalífi.  Gerandi vísar til þess að hinn aðilinn sé kanínan sín.  Verra er að í sumum kreðsum táknar þetta ásökun um framhjáhald.  Spurning hvort að það eigi við á myndinni hér fyrir neðan af Bush eldri að merkja kellu sína með kanínueyrum.    

  Algengasta túlkunin er sú að þetta sé saklaust vinabragð án kynferðislegs undirtóns.  Einskonar gleðilæti sem sýna að vinátta viðkomandi sé komin á það stig að hún leyfi gáska og sprell.  Í Bandaríkjunum er hefð fyrir því að vinir forsetans galsist á þennan hátt á myndum með honum.     

  Í gær lögðust samfélagsmiðar á Íslandi á hliðina.  Ástæðan var sú að forseti Íslands og þingkona brugðu á leik.  Hún gaf honum kanínueyru.  Það var sætt.  Besta framlag Pírata til stjórnmála frá kosningum.  Meira þurfti þó ekki til að virkir í "kommentakerfum" netmiðla og vanstilltir á Fésbók fengju móðursýkiskast (vont orð) og blóðnasir.  Fyrst móðguðust þeir fyrir hönd Guðna.  Mest móðguðust þeir sem fyrir forsetakosningar ötuðu Guðna auri.  Nú var hann orðinn heilagur forseti þeirra og þingkonan ófyrirleitin geimvera.  Hún var sökuð um landráð og kölluð öllum illum nöfnum.  Ötuð tjöru og fiðri.

  Fljótlega var upplýst að Guðni hefði tekið viljugur þátt í gamninu.  Mynd af honum í samskonar leik með eiginkonu sinni komst í umferð.  Þá hljóðnaði móðgaða hjörðin og laumaði heykvíslunum aftur fyrir bak.  Tók andköf og er enn að jafna sig - fyrir næsta flogakast.

guðni og Ásta guðrún í góðum gírforsetafrúin gefur kanínueyrubush eldri galsast með kanínueyrubush með kanínueyrucruz reppa frambjóðandi fær kanínueyruGeorge Lucas Gives Steven Spielberg Bunny Earskurt-cobain-courtney-love-bunny-earsobama með kanínueyruMuhammad-Ali-gefur-Will-Smith kanínueyruputin m kanínueyru 

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Aldrei má maður aldrei neitt!!

Sigurður I B Guðmundsson, 4.12.2016 kl. 12:24

2 Smámynd: Jens Guð

Fólk hefur stjórnlausa tilhneigingu til að setja sig á háan hest og móðgast fyrir hönd annarra.  Siðvöndunaráráttan ríður á stökki.

Jens Guð, 4.12.2016 kl. 17:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband