Svakalegustu íslensku hljómsveitanöfnin

  Mér var bent á ansi skemmtilega samantekt yfir - eða kosningu um - þau íslensk hljómsveitanöfn sem hafa sjokkerað mest og flesta rækilegast.  Áhugavert.  Samt ekkert svo svakalegt.  Frekar að þessi nöfn séu grallaraleg.  Listinn ku hafa verið tekinn saman fyrir tíu árum, 2006, á spjallþræðinum www.live2cruize.  Ég veit ekkert hvaða fyrirbæri það er.  Mér var vísað á að listinn hafi verið endurbirtur á www.menn.is.  Þar fann ég hann.   

  Þó að listinn sé tíu ára gamall þá kemur það ekki að sök.  Engin ný hljómsveitanöfn hafa komið fram á síðustu árum sem sjokkera. 

  Efst hér er ljúft myndband með hljómsveitinni frábæru Sjálfsfróun (nafn nr. 6)   

Rotnandi fóstur

2. Gyllinæð

3. Bruni BB (Bruni Bjarna Benedikstssonar)

4. VBV (Vinstra brjóst Vigdísar)

5. Anal Vomit

6. Sjálfsfróun

7. Æla  Ég held að þessi ágæta hljómsveit sé enn starfandi í Keflavík.

8. Gubbrass

9. Sjúðann

10. Drulla

11. Halló og heilasletturnar

12. Hölt hóra (Hölt hóra með kúk á brjóstunum)

13. Kúkur í poka

14. Nefrennsli  Þekktust fyrir að bassaleikarinn var Jón Gnarr.

15. Nýnasistur

16. Rotþróin  Ég hélt að nafn þessarar húsvísku hljómsveitar væri án ákveðins greinis. Nafnið sé Rotþró.  Mig minnir að ég eigi eitthvað með þeim á kassettu.  

17. Þvag

18. Ræsið

19. Sarðnaggar

20. Steiktir naflar 

Atli Fannar með Haltri hóru - áður en sú hljómsveit breyttist í Ingó & Veðurguðina.  Sjaldan hefur góð hljómsveit tekið jafn afgerandi kollhnís aftur á bak á versta veg. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eina nafnið á þessum lista sem mér hefur alltaf þótt ógeðfellt er nr. 3.  Væri það jafnvel þó hann hefði einn látist í brunanum, en það voru fleiri, m.a. lítið barn.  Get þó alveg kennt barnaskap um (Það hafa allir verið ungir nema þeir sem eru það ennþá) og maður gerði eitt og annað ósniðugt á þeim árum sjálfur, en þetta nafn fannst mér ógeðfellt þá og þykir enn.

Einhver hefði nú jafnvel sett Fræbblana þarna líka, en svona listar verða víst aldrei annað en samkvæmisleikur.

ls (IP-tala skráð) 14.12.2016 kl. 09:45

2 Smámynd: Jens Guð

  ls, liðsmenn Bruna BB voru ungir nemar í Myndlista- og handíðaskóla Íslands.  Þetta var á blómatíma pönkbyltingarinnar í upphafi níunda áratugarins.  Menn voru kjaftforir og uppreisnarstemmning áberandi.  Hljómsveitanöfn á borð við Sjálfsfróun og Halló & heilasletturnar þóttu töff.  Líka Biafra Restaurant (í kjölfar stöðugra frétta af íbúum Biafra sem hrundu niður vegna svakalegrar hungurssneyðar).

  Einhver/jir í Bruna virðast hafa fengið bakþanka vegna þess að nafnið var fljótlega stytt í Bruna BB.  Það dugði ekki til. Þeir voru allir reknir úr Myndlistaskólanum.   

Jens Guð, 15.12.2016 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.