Það þarf að hafa kontról á óþörfu rápi

  Girðingar og múrveggir hafa oft gefist vel.  Fangelsi eru iðulega umlukin öflugum girðingum og múrveggjum.  Stundum er rafmagni hleypt í girðinguna.  Þetta dregur úr möguleikum óstöðugra á að brjótast inn í fangelsi, gera usla og fjölga föngum ótæpilega.  

  Um miðja síðustu öld gerðu Þjóðverjar tilraun með múrvegg.  Þeir skiptu borginni Berlín í tvennt með honum.  Hann kom í veg fyrir óþarft ráp á milli borgarhluta.  Hitt er annað mál að fyrir hlálegan misskilning var múrinn rofinn seint á síðustu öld og allt fór í rugl.

  Í Palestínu hefur verið reistur snotur aðskilnaðarmúr.  Með honum hefur reglu verið komið á ólívurækt Palestínumanna.  Þeim eru skammtaðir tilteknir dagar til að skottast í gegnum múrinn og tína ólívur.  Nema landtökugyðingar séu búnir að kveikja í trjánum enn einu sinni.

  Næst á dagskrá er múrveggur á milli Mexíkó og Bandaríkjanna.  Með honum verða Bandaríkin einangruð frá sunnanverðri Ameríku.  Girt af.  Ef einangrunarmúrinn gefst vel er næsta skref að reisa samskonar múr á milli Kanada og Bandaríkjunum.  Í báðum tilfellum "flýja" mun fleiri Bandaríkjamenn yfir landamærin til Mexíkó og Kanada en öfugt.  Það þarf að hafa kontról á þessu flakki.  

   

     


mbl.is Við munum reisa múr segir Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Er ekki bara best að halda sig við "einiberjarunninn"!!

Sigurður I B Guðmundsson, 25.1.2017 kl. 22:00

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Pink Floyd bera ábyrgð á þessum múrum. Punktur! wink

Wilhelm Emilsson, 26.1.2017 kl. 07:46

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jens. Orðið "múr" hefur eðlilega orðið að einhverri óhugnaðarmynd á hugarteikniforritinu í hausnum á flestum. Nútíma grannagarðs-sættandi landamæraeftirlit ætti að geta farið fram með einfaldari hætti. Það þarf væntanlega að hafa eitthvert eftirlit með lögum og reglum, ef slíkt laga/reglu-bókstafa-safn á að virka á friðsamlegan hátt.

Svakalegra með vatnspyntingaáhugann hjá þeim Trompuðu þarna vestra og víðar í veröldinni. Það er algjört brjálæði að leyfa vatnspyntingar og allar aðrar tegundir pyntinga, í mennskunnar, þróunar og siðmenntunar friðartilgangi.

Góða guðsorkan og allar góðar vættir stöðvi öll slík brjálæðis hugarfóstur hjá illskunnar andlega sjúku hugmyndafræðingum og ráðgjöfum heimsveldanna foringjanna.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 26.1.2017 kl. 09:39

4 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  jú, ég mæli með einiberjarunninum.

Jens Guð, 26.1.2017 kl. 19:10

5 Smámynd: Jens Guð

Wilhelm,  einkum er Roger Waters sekur um það. Hinir Pink-floydararnir eru samsekir.  

Jens Guð, 26.1.2017 kl. 19:12

6 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

væri ekki fínt að setja múr í Ártúnsbrekkuna svo 101 liðið sr ekki að skrönglast á hjólum og beinbrjóta sig í brekkunni ???sealed

Erla Magna Alexandersdóttir, 26.1.2017 kl. 19:19

7 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður, pyntingar eru vanmetnar.  Að því er mér skilst af sykurpabba slóvensku Melaníu.  

Jens Guð, 26.1.2017 kl. 19:19

8 Smámynd: Jens Guð

Erla Magna,  jú.  

Jens Guð, 26.1.2017 kl. 19:20

9 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Brotavilji Roger Waters er einbeittur.

Wilhelm Emilsson, 26.1.2017 kl. 23:40

10 Smámynd: Jens Guð

Vilhelm,  það endar með því að hann verður látinn borga fyrir einangrunarmúrinn.

Jens Guð, 29.1.2017 kl. 18:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband