Heil! Heil! Chuck Berry!

 

  Hann var einn af frumherjum rokksins á sjötta áratugnum.  Hann átti drjúgan þátt í hönnun rokksins.  Ekki síst hvað varðar gítarleik og laglínur.  Allir sungu söngva hans:  Presley, Jerry Lee Lewis, Little Richard...

  Bítlahljómsveitir sjöunda áratugarins voru ekki síður uppteknar af Chuck Berry.  Allar  spiluðu söngva hans:  Bítlarnir,  Byrds,  Rolling Stones,  Beach Boys...

  Söngvar hans áttu stað í hipparokkinu.  Einnig þungarokki áttunda áratugarins.  Líka í pönkbylgjunni og reggae-senunni.  Líka hjólabrettapönki þessarar aldar.  Tónlist hans umvefur allt og fellur aldrei úr gildi.

  Ekki má gleyma að textar hans eru dágóðir.  Þeir skerptu á unglingauppreisninni sem rokkið var í árdaga,  svo sem titillinn "Roll over Beethoven" undirstrikar. 

  John Lennon komst þannig að orði:  Ef rokkið fengi nýtt nafn þá yrði það Chuck Berry.

  


mbl.is Stjörnurnar votta Berry virðingu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Flottur.

Sigurður I B Guðmundsson, 20.3.2017 kl. 12:58

2 Smámynd: Jens Guð

Einn af þeim alflottustu!

Jens Guð, 21.3.2017 kl. 09:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband