Nýtt íslenskt tónlistartímarit

                      Ef áætlanir ganga upp er stutt í að fyrsta tölublað nýs íslensks tónlistartímarits líti dagsins ljós.  Nafn þess er Rvk on stage.  Textinn er á ensku.  Það mun koma út ársfjórðungslega, prentað á góðan pappír.  Blaðsíðnafjöldi er 76 og brotið er A4 (sama stærð og vélritunarblað).  Umfjöllunarefnið er áhugaverð íslensk rokk- og dægurtónlist.  

  Undirbúningur hefur staðið í 5 mánuði og engu til sparað.  Allt hið vandaðasta sem útgefendur og kaupendur geta verið stoltir af.  Einnig verður hægt að fá stafræna útgáfu af blaðinu.

  Fjármögnun er hafin á Karolina Fund.  Hægt er að velja um nokkrar leiðir,  frá kr. 1200 upp í 90 þúsund kall.  Um þetta má lesa nánar HÉR  Lægstu upphæðirnar eru kaup á blaðinu en ekki eiginlegur styrkur.  Endilega hjálpið til við að ýta tímaritinu úr vör.  Ef vel tekst til getur þetta orðið góð vítamínssprauta fyrir nýskapandi íslenska tónlist.    

Rvk on stage 

    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þetta ekki íslenskt tímarit? Er íslenskt heiti of hallærislegt fyrir það?

Tobbi (IP-tala skráð) 13.6.2017 kl. 08:23

2 Smámynd: Jens Guð

Já,  íslenskan þykir ekki boðleg í tónlistardeildinni, sbr. allar tónlistrhátíðirnar:  Secret Solstice,  Iceland Airwaves, Tomorrow's Party People og allar hinar.  Hljómsveitirnar heita Of Monsters and Men,  Moses Hightower,  Between Mountains og svo framvegis.  Þegar rölt er um Smáralind eða Kringluna heita flestar verslanir og veitingastaðir enskum nöfnum.  Margir Færeyingar hafa sagt mér að í fyrstu heimsókn til Íslands hafi þeim verið verulega brugðið við að sjá þessi ensku heiti út um allt.  Þeim þykir það vera pínulítið dapurlegt.    

Jens Guð, 13.6.2017 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband