Kærkomin og kröftug endurkoma

  Á síðari hluta níunda áratugarins fór rokksveitin Foringjarnir mikinn.  Afgreiddi sveitaballamarkaðinn með þróttmiklu "80s" þungarokki.  Svar Íslands við sænsku ofurgrúppunni Europe í bland við Bon Jovi.  Hápunkti náðu Foringjarnir á vinsældalistum með laginu "Komdu í partý".  Eftirspurn var svo mikil að iðulega voru þrír og fjórir dansleikir afgreiddir á viku.  Þá hituðu þeir upp í Laugardalshöll fyrir erlendar stórstjörnur á borð við Kiss og Bonnie Tyler.  Þeir voru í miklu uppáhaldi hjá bandarísku dátunum í herstöðinni á Miðnesheiði.  Voru til að mynda fastráðnir sem húshljómsveit í offíseraklúbbnum í heilan vetur.  

  Forsprakkinn, söngvarinn og söngvaskáldið Þórður Bogason hefur bæði fyrr og síðar látið til sín taka í tónlist.  Sem rótari Péturs Kristjánssonar (Pelican, Paradís, Póker, Picasso, Start...).  Svo stofnaði hann sjálfur þungarokkshljómsveitina Þrek.  Því næst rokksveitir á borð við F, Þrym, Þukl, Warning, Skytturnar, Rickshaw, Rokkhljómsveit Íslands...

  Hljótt var um Foringjana á tíunda áratugnum.  Hljómsveitin var þó hvergi hætt.  2013 mætti hún sterk til leiks með virkilega flott jólalag,  "Biðin eftir aðfangadegi". Besta íslenska jólalag þessarar aldar.  Á þútúpunni hefur það verið spilað 3200 sinnum.  Fyrir þá sem vilja komast snemma í jólaskap skal smella HÉR.

  Á dögunum sendu Foringjarnir frá sér 3ja laga plötuna "Nótt", samnefnda upphafslaginu.  Hressilegt og sterkt þungarokkslag.  Þar er hljómsveitin skipuð eftirfarandi: Þórður (söngur), Jósep Sigurðsson (hljómborð), Oddur F. Sigurbjörnsson (trommur), Þráinn Árni Baldvinsson (gítar) og Jakob Smári Magnússon (bassi).  Oddur og Jakob (Das Kapital, SSSól, Grafík) voru í Tappa Tíkarrassi.  Þráinn er í Skálmöld.  Jósep var m.a. í Galíleó, SOS og Kraftaverki. 

  "Nótt" er að fá heitar viðtökur.  Frá 18. júní hefur hún verið spiluð yfir 600 sinnum á youtube.   

  Hin lögin á plötunni eru "Leyndarmál" og "Þú".  Þau getur að heyra með því að smella HÉR og HÉR.  Platan er til sölu hjá liðsmönnum og í gegnum Fésbókarsíðuna HÉR.

 

  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Pure eighties rock.

Stefán (IP-tala skráð) 28.6.2017 kl. 16:26

2 Smámynd: Jens Guð

Þetta er 80´s eins og það gerist best.

Jens Guð, 29.6.2017 kl. 11:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.