Fćrsluflokkur: Menning og listir
7.3.2019 | 23:00
Andúđ Lennons á Mick Jagger
Á sjöunda áratugnum var Bítlunum og The Rolling Stones stillt upp sem harđvítugum keppinautum. Ađdáendur ţeirra skipuđu sér í fylkingar. Ţćr tókust á um ţađ hvor hljómsveitin vćri betri. Ekki ađeins í orđaskaki. Líka međ hnúum og hnefum.
Raunveruleikinn var sá ađ á milli hljómsveitanna ríkti mikill vinskapur. Bítlarnir redduđu Stóns plötusamningi. Bítlarnir sömdu lag fyrir ađra smáskífu Stóns - eftir ađ fyrsta smáskífan náđi ekki inn á breska Topp 20 vinsćldalistann. Bítlalagiđ kom Stóns í 12. sćti vinsćldalistans. Ţar međ stimplađi Stóns sig inn. 1. janúar 1964 hóf vinsćldalistaţátturinn Top of the Pops göngu sína í BBC sjónvarpinu. Opnulag hans var ţetta lag.
Bítlarnir kenndu Stónsurum ađ semja lög. Bítlarnir ađstođuđu Stóns međ raddanir. Stónsarar komu líka viđ sögu í nokkrum lögum Bítlanna.
Hljómsveitirnar höfđu samvinnu um útgáfudag laga og platna. Ţegar önnur ţeirra átti lag eđa plötu í 1. sćti vinsćldalista hinkrađi hin međ útgáfu á sínu efni uns 1. sćtiđ var laust.
Af og til átti söngvari Stóns, Mick Jagger, til ađ skerpa á ímyndinni um ađ hljómsveitirnar vćru harđvítugir keppinautar. Í fjölmiđlaviđtölum laumađi hann góđlátlegri smá hćđni í garđ Bítlanna. Kannski olli ţađ ţví ađ í spjalli viđ bandaríska tímaritiđ Rolling Stones opinberađi bítillinn John Lennon óvćnt andúđ sína á Mick Jagger. Ţetta var 1971.
Međal ţess sem Lennon sagđi var ađ Mick Jagger vćri brandari. Hann hćddist ađ "hommalegri" sviđsframkomu hans. Gaf lítiđ fyrir leikarahćfileika hans. Hann hélt ţví fram ađ Jagger hefđi alltaf veriđ afbrýđisamur út í Bítlana. Hann hafi hermt eftir öllu sem Bítlarnir gerđu.
Lennon sagđist ţó alltaf hafa boriđ virđingu fyrir Stóns. Hljómsveitin hafi hinsvegar aldrei veriđ í sama klassa og Bítlarnir. Nokkrum árum síđar hélt Lennon ţví fram, líka í spjalli viđ Rolling Stones, ađ Jagger hafi alltaf veriđ viđkvćmur vegna yfirburđa Bítlanna á öllum sviđum. Hann hafi aldrei komist yfir ţađ.
Rétt er ađ taka fram ađ á ţessum tíma, í upphafi áttunda áratugarins, var Lennon pirrađur og hafđi horn í síđu margra. Hann söng níđvísu um Paul McCartney. Hann skrifađi opiđ níđbréf til tónlistarmannsins og upptökustjórans Todd Rundgren. Hann söng gegn breska hernum á Írlandi. Hann beitti sér gegn forseta Bandaríkjanna, Nixon. Á milli ţeirra tveggja varđ hatrammt stríđ.
Hér fyrir neđan er myndband međ blúshljómsveit Lennons, Dirty Mac. Bassaleikarinn er Stónsarinn Keith Richards. Í upphafi ţess gefur Lennon Mick Jagger leifar af mat. Sumir túlka ţađ sem dćmi um lúmskt uppátćki hans til ađ niđurlćgja Jagger. Ég hef efasemdir um ţađ. Lennon var alltaf opinskár og talađi ekki undir rós.
Menning og listir | Breytt 8.3.2019 kl. 18:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
22.2.2019 | 21:41
Plötuumsögn
- Titill: Plasteyjan
- Flytjandi: PS & Bjóla
- Einkunn: ****
PS & Bjóla er dúett Pjeturs Stefánssonar og Sigurđar Bjólu. Báđir hafa starfađ í fjölda hljómsveita. Pjetur kannski ţekktastur fyrir ađ leiđa Big Nose Band og PS & co. Sigurđur eflaust kunnastur fyrir Spilverk ţjóđanna og Stuđmenn. Samstarf ţeirra nćr vel aftur til síđustu aldar.
Báđir eru afbragđsgóđir lagahöfundar, skemmtilegir textasmiđir, ljómandi góđir söngvarar og ágćtir gítarleikarar. Báđir hafa sent frá sér ódauđlega stórsmelli. Pjetur međ "Ung og rík" (oftast kallađur "Ung gröđ og rík"). Sigurđur međ "Í bláum skugga".
Laglínur Sigurđar bera iđulega sterk höfundareinkenni. Fyrir bragđiđ kvikna hugrenningar í átt til Stuđmanna - og reyndar Ţursaflokksins líka - af og til ţegar platan er spiluđ. Ekki síđur vegna ţess ađ Ragnhildur Gísladóttir tekur lagiđ í ţremur söngvum. Eflaust líka vegna ţess ađ trommuleikari ţessara hljómsveita, Ásgeir Óskarsson, er ásláttaleikari plötunnar.
Platan er fjölbreitt en hefur samt ákveđinn heildarsvip. Blúskeimur hér, sýra ţar, gítar spilađur afturábak, smá Pink Floyd og allskonar. Titillagiđ rammar pakkann inn; epískur 11 mínútna ópus. Hann hefst á ljúfum söng Sigurđar viđ kassagítarundirleik. Fleiri hljóđfćri bćtast hćgt og bítandi viđ. Takturinn harđnar. Fyrr en varir er hressilegt rokk skolliđ á. Síđan mýkist ţađ og breytist í rólegan sýrđan spuna. Svo er upphafskaflinn endurtekinn. Lokahlutinn er mildur einleikur Ástu Kristínar Pjetursdóttur á víólu.
Mér heyrist sem Pjetur og Sigurđur semji lögin í sameiningu. Ţeir skipta söngi bróđurlega á milli sín. Söngstíll ţeirra er áţekkur ef frá er taliđ ađ Pjetur gefur stundum í og afgreiđir ţróttmikinn öskursöngstíl.
Textarnir hljóma eins og ţeir séu ortir í sameiningu. Stíllinn er sá sami út í gegn. Ađ auki kallast ţeir á. Til ađ mynda kemur plasteyjan fyrir í nokkrum ţeirra. Ţeir leika sér lipurlega međ tungumáliđ og tilvísanir. Ágćtt dćmi er upphaf textans "Mammonshaf" sem snýr snyrtilega út úr upphafsorđum Jóhannesarguđspjalls: "Í upphafi var plastiđ og plastiđ var hjá guđi."
Platan er frekar seintekin. Hún vex ţeim mun meira viđ hverja hlustun. Vex mjög. Hún hljómar eins og unnin í afslöppuđum rólegheitum. Allt yfirvegađ og úthugsađ - án ţess ađ kćfa geislandi spilagleđi. Ađrir hljóđfćraleikarar en nefndir eru hér fyrir ofan eru í landsliđinu: Tryggvi Hubner, Bjöggi Gísla og Sigurgeir Sigmundsson (gítar), Haraldur Ţorsteins (bassi), Hjörleifur Valsson (fiđla), Jens Hansson (sax), Pétur Hjaltested (hljómborđ), Sigfús Örn Óttarsson (trommur) og Sigurđur Sigurđsson (munnharpa).
Uppáhaldslög: "Fléttur" (algjör negla!) og "Nóttin".
Pjetur er hámenntađur og virtur myndlistamađur. Umslagiđ ber ţess vitni.
Menning og listir | Breytt 3.3.2019 kl. 12:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
17.2.2019 | 04:08
Samkvćmt teikningunni
Hver kannast ekki viđ ađ hafa sett saman skáp - eđa annađ húsgagn - samkvćmt teikningu frá Ikea og uppgötva síđar ađ hún snéri vitlaust? Ađ sú vćri ástćđan fyrir ţví ađ hurđarhúnn er stađsettur of neđarlega og ađ hillur snúa á hvolf. Mörg dćmi eru til um abstrakt málverk sem hafa árum saman snúiđ á haus uppi á vegg. Ef fólk gćtir sín ekki ţeim mun betur er ţetta alltaf ađ gerast: Ađ hlutirnir snúa á haus. Glćsilegt hús virđist líta einkennilega út. En teikningin er samţykkt og vottuđ og "svona er ţetta samkvćmt teikningunni." Í einhverjum tilfellum hefur ţetta leitt til málaferla. Svoleiđis er aldrei gaman.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 18:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
12.2.2019 | 03:16
Saga the Clash
7. febrúar var alţjóđa CLASH-dagurinn haldinn hátíđlegur um allan heim (sjá síđustu bloggfćrslu). Ekkert lát er á hróđri ţessarar merku ensku pönksveit. 28. febrúar rekja Spotify og breska sjónvarpiđ BBC í sameiningu sögu Clash.
The Clash leiddi og mótađi bresku pönkbylgjuna - ásamt Sex Pistols - 1976/1977. Fyrsta smáskífulag Clash, White Riot (útgefiđ snemma árs 1977), varđ einskonar ţjóđsöngur pönkbylgjunnar. Fjöldi pönksveita krákađi lagiđ (cover song). Jómfrúar Lp-plata the Clash (útgefin voriđ 1977) varđ fyrirmynd nýrra pönksveita um allan heim. Međal annars innleiddi hún reggí í pönksenuna.
Nćsta plata the Clash, Give ´Em Enough Rope, vakti undrun. Hún var meira hard rokk en pönk. Eđa pönkkryddađ hard rokk.
3ja plata the Clash, London Calling, vakti ennţá meiri undrun. Fátt var um pönk en ţeim mun meira af allskonar: Allt frá djassi til calypso. Eftir ţetta hćtti the Clash ađ koma á óvart. Ţessi hljómsveit spilađi hvađ sem var. Ţess vegna allt frá pjúra poppi til sýrđasta avant-garde.
Eftir ađ hljómsveitin leystist upp í leiđindum 1986 var henni ítrekađ bođiđ gull og grćnir skógar fyrir ađ koma fram á hinum ýmsu rokkhátíđum. Stjarnfrćđilega háar upphćđir. Liđsmenn höfđu bein í nefinu til ađ hafna öllum gyllibođum. Hljómsveitin snérist aldrei um peninga. Ţađ var hennar gćfa. Ţađ er ein af stóru ástćđunum fyrir ţví ađ hún er ţetta stöđugt vaxandi stórveldi í rokksögunni.
Ég skrifa um Clash í fortíđ vegna ţess ađ fyrirliđinn, Joe Strummer, er fallinn frá. Hann var forsöngvarinn, gítarleikari og söngvahöfundur. Fráfall hans hefur dregiđ úr líkum á endurkomu Clash.
Menning og listir | Breytt 13.2.2019 kl. 04:19 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
7.2.2019 | 18:10
Alţjóđlegi CLASH-dagurinn
Í dag, 7. febrúar, er alţjóđlegi CLASH-dagurinn haldinn hátíđlegur um heim allan. Formlegir ađstandendur hans eru 20 stórborgir (ţar á međal Chicago, Seattle, Washington DC, Los Angeles, Toronto, Belgrad, San José í Costa Rica, Sao Paulo, Barcelona...), 101 útvarpsstöđ (allt frá Tónlistarútvarpi Peking-borgar til króatískrar og argentínskrar stöđva), 43 plötubúđir (allt frá mexíkóskum til eistlenskrar), svo og 26 rokkhátíđir (međal annars í Perú og Finnlandi). Sumar borgir hafa gert Clash-daginn ađ opinberum frídegi. Sumar útvarpsstöđvar teygja á Clash-deginum. Spila einungis Clash-lög í allt ađ 4 sólarhringa. Samkvćmt hlustendamćlingum skora ţćr hćst á sínum ferli í ţeirri dagskrá. Vonbrigđi ađ hvorki X-iđ né Rás 2 taki ţátt í Clash-deginum.
The Clash var önnur tveggja hljómsveita sem leiddi bresku pönkbylgjuna á síđari hluta áttunda áratugarins (hin var Sex Pistols). Ólíkt öđrum pönksveitum ţróađist Clash á örskömmum tíma yfir í afar fjölbreytta nýbylgju. Ólíkt öđrum breskum pönksveitum sló Clash rćkilega í gegn í Bandaríkjunum.
Clash-dagurinn var upphaflega bandarískur. Svo breiddist hann út um heim.
Hljómsveitin var stofnuđ 1976. Hún leystist upp í leiđindum og var öll 1986. Gríđarmikil eiturlyfjaneysla átti hlut ađ máli. 1980 spilađi Clash í Laugardalshöll á vegum Listahátíđar. Frábćrir hljómleikar.
Hróđur Clash jókst bratt eftir ađ hún snéri upp tánum. Gott dćmi er ađ 1981 náđi lagiđ "Should I Stay or Should I Go" 1. sćti breska vinsćldalistans eftir ađ hafa áđur ítrekađ flökkt hátt á honum. Í óţökk liđsmanna the Clash gerđi bandaríski herinn lagiđ "Rock the Casbah" ađ einkennislagi sínu í upphafi ţessarar aldar. Ţađ var sett í síspilun ţegar ráđist var inn í Írak í aldarbyrjun.
Menning og listir | Breytt 8.2.2019 kl. 01:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
20.1.2019 | 00:36
Hljómsveitin Týr orđin fjölţjóđleg
Voriđ 2002 hljómađi fćreyskt lag á Rás 2. Nokkuđ óvćnt. Fćreysk tónlist hafđi ekki heyrst í íslensku útvarpi til margra áratuga. Lagiđ var "Ormurin langi" međ hljómsveitinni Tý. Viđbrögđ hlustenda voru kröftug. Allt ćtlađi um koll ađ keyra. Símkerfi Útvarpsins logađi. Hlustendur vildu heyra ţetta "norska lag" aftur. Já, einhverra hluta vegna héldu ţeir ađ ţetta vćri norskt lag. Fćreyjar voru ekki inn í myndinni.
Lagiđ var aftur spilađ daginn eftir. Enn logađi símkerfiđ. Ţetta varđ vinsćlasta lag ársins á Íslandi. Platan međ laginu, "How Far to Aasgard?", sat vikum saman í toppsćti sölulistans. Seldist í 4000 eintökum hérlendis. Kiddi "kanína" (einnig ţekktur sem Kiddi í Hljómalind) var eldsnöggur sem fyrr ađ skynja ađ nú vćri lag. Hann bókađi Tý í hljómleikaferđ um Ísland. Hvarvetna var fullt út úr dyrum. Víđa komust fćrri ađ en vildu. Til ađ mynda í Ölfusi. Ţar voru fleiri utan húss en komust inn.
Á skall alvöru Týs-ćđi. Hljómsveitin mćtti í Smáralind til ađ gefa eiginhandaráritun. Ţar myndađist biđröđ sem náđi gafla á milli. Auglýstur klukkutími teygđist yfir ađ ţriđja tíma.
Í miđju fárinu uppgötvađi Kiddi ađ Fćreyingar sátu á gullnámu: Ţar blómstađi öflugt og spennandi tónlistarlíf međ ótrúlega hćfileikaríku fólki: Eivör, Hanus G., Kári Sverris, hljómsveitir á borđ viđ 200, Clickhaze, Makrel, Arts, Yggdrasil, Lena Anderson og ég er ađ gleyma 100 til viđbótar. Kiddi kynnti ţetta fólk til sögunnar. Talađ var um fćreysku bylgjuna. Eivör varđ súperstjarna. Einstakar plötur hennar hafa selst í 10 ţúsund eintökum hérlendis. Hún fyllir alla hljómleikasali. Í dag er hún stórt nafn víđa um heim. Hefur fengiđ mörg tónlistarverđlaun. Hún hefur átt plötur í 1. sćti norska vinsćldalistans og lag í 1. sćti danska vinsćldalistans. Fyrsta sólóplata Eivarar kom út 1999. Ţar heiđrađi hún nokkur gömul fćreysk kvćđalög. Ţau urđu Tý kveikja ađ ţví ađ gera slíkt hiđ sama. Fyrir ţann tíma ţóttu gömlu kvćđalögin hallćrisleg.
Ofurvinsćldir Týs - og Eivarar - á Íslandi urđu ţeim hvatning til ađ leita fyrir sér enn frekar utan landsteinanna. Međ góđum árangri. Týr er í dag stórt nafn í senu sem kallast víkingametall. Hljómsveitin er vel bókuđ á helstu ţungarokkshátíđir heims. Ađ auki túrar hún ótt og títt um Ameríku og Evrópu. Fyrir nokkrum árum náđi hún toppsćti ameríska CMJ vinsćldalistans. Hann mćlir spilun framhaldsskólaútvarpsstöđva í Bandaríkjunum og Kanada (iđulega hérlendis kallađar bandarískar háskólaútvarpsstöđvar - sem er villandi ónákvćmni).
Hljómsveitin er ţétt bókuđ út ţetta ár. Ţar á međal á ţungarokkshátíđir í Ameríku, Evrópu og Asíu. Meira ađ segja í Kóreu og Japan.
Vegna bakveiki hefur trommarinn Kári Streymoy af og til helst úr lestinni síđustu ár. Frá 2016 hefur Ungverjinn Tadeusz Rieckmann veriđ fastur trommari Týs. Fćreyski gítarleikarinn Terji Skibenćs hefur í gegnum tíđina veriđ úr og í hljómsveitinni. Húđflúr á hug hans og hjarta. Nú hefur Ţjóđverjinn Attila Vörös veriđ fastráđinn í hans stađ.
Söngvahöfundurinn, söngvarinn og gítarsnillingurinn Heri Joensen segir ţetta ekki vera vandamál; ađ liđsmenn búi í mörgum löndum. Hljómsveitin var á sínum tíma stofnuđ í Danmörku. Allar götur síđan hafa liđsmenn hennar búiđ í ýmsum löndum. Vinnusvćđiđ er hljómleikaferđir ţvers og kruss um heiminn. Ţá skiptir ekki máli hvar liđsmenn eru skrásettir til heimilis.
14.1.2019 | 01:29
Vönduđ og metnađarfull plata
- Titill: Oddaflug
- Flytjandi: Kalli Tomm
- Einkunn: ****
Lengst af var Karl Tómasson ţekktur sem trommuleikari Gildrunnar. Fyrir fjórum árum eđa svo hóf hann farsćlan sólóferil; sendi frá sér plötuna Örlagagaldur. Ţar kom hann fram sem hörkugóđur söngvari og prýđilegt söngvaskáld. Örlagagaldur varđ ein söluhćsta plata ţess árs. Nokkuđ óvćnt vegna ţess ađ ekkert einstakst lag af henni varđ stórsmellur. Ţess í stađ var ţađ platan í heild sem hlaut svona vćnar viđtökur.
Oddaflug er önnur sólóplata Kalla. Eđlilega sver hún sig í ćtt viđ Örlagagaldur. Tónlistin er í humátt ađ norrćnum vísnasöng í bland viđ rokkađa spretti. Ţetta fléttast skarpast saman í opnulaginu, Kyrrţeyrinn andar. Fyrri hlutinn er ljúfur og áferđarfagur óđur til náttúrunnar. Um miđbik skellur óvćnt á kröftugur rokkkafli. Í niđurlagi taka rólegheitin aftur viđ. Útkoman er hiđ ágćtasta prog.
Ţrátt fyrir rafmagnađa rokktakta er heildarsvipur plötunnar lágstemmdur, yfirvegađur og hátíđlegur. Sjö lög af tíu eru frumsamin. Ţar af eitt samiđ međ Tryggva Hubner og annađ međ Guđmundi Jónssyni. Hann á ađ auki annađ lag og texta. Tvö eru eftir Jóhann Helgason.
Textarnir hafa innihald og geta stađiđ sjálfstćđir sem ljóđ. Fjórir eru ortir af Bjarka Bjarnasyni - einn ásamt Guđmundi Jónssyni. Hjördís Kvaran Einarsdóttir er höfundur tveggja. Jón úr Vör, Jón Óskar og Líney Ólafsdóttir eiga sinn textann hvert. Margir ţeirra bera sameiginlegan trega og söknuđ, kasta fram spurningum um óvissa framtíđ en bođa ţó von og trú á ástina.
Jóhann Helgason, Íris Hólm og Ingibjörg Hólm Einarsdóttir syngja á móti Kalla í sitthverju laginu. Ţau eru einnig í bakröddum ásamt Kalla sjálfum og fleirum.
Gítarleikur er í höndum Kalla, Tryggva Hubner, Guđmundar Jónssonar, Ţráins Árna Baldvinssonar og Sigurgeirs Sigmundssonar. Hljómborđsleik afgreiđa Kjartan Valdimarsson, Jón Ólafsson og Jakob Frímann Magnússon. Bassa plokka Jóhann Ásmundsson, Jón Ólafsson og Ţórđur Högnason. Ásmundur Jóhannsson trommar og Sigurđur Flosason blćr í sax. Ţetta er skothelt liđ.
Umslagshönnun Péturs Baldvinssonar setur punktinn yfir i-iđ; glćsilegt listaverk.
Vert er ađ taka fram ađ platan er frekar seintekin. Ţó hún hljómi vel viđ fyrstu spilun ţá ţarf hún ađ rúlla í gegn nokkrum sinnum áđur en fegurđ tónlistarinnar skilar sér í fullum skrúđa.
Menning og listir | Breytt 17.1.2019 kl. 18:37 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
7.1.2019 | 00:07
Frétta- og fróđleiksţyrstir Kanadabúar
Í Toronto er gefiđ út alvörugefiđ dagblađ sem heitir Toronto Star. Prentútgáfan selst í 319 ţúsund eintökum ađ međaltali. Á laugardögum hoppar salan upp í 420 ţús. Merkilega góđ sala í 6 milljón manna borg. Ađ vísu reikna ég međ ađ sala blađsins nái út fyrir stađbundna borgina. Ţannig er ţađ í Bandaríkjunum. Dagblöđ eins og New York Times og Washington Post eru seld víđa um Bandaríkin. Jafnvel utan Bandaríkjanna. Til ađ mynda hefur veriđ hćgt ađ kaupa ţau í íslenskum ritfangaverslunum.
Íbúar Bandaríkjanna eru 326 milljónir. 3ja fjölmennasta ţjóđ heims. Til samanburđar er Kanada smáţjóđ. Íbúar 37 milljónir. Ţeim mun athyglisverđara er ađ söluhćsta bandaríska dagblađiđ, USA Today, selst "ađeins" í 957 ţúsund eintökum.
Annađ söluhćsta bandaríska dagblađiđ, New York Times, selst í 572 ţúsund eintökum ađra daga en sunnudaga. Ţá er salan 1,088 millj.
Söluhćsta dagblađ Kanada heitir The Globe and Mail. Salan á ţví er 337 ţúsund eintök ađ međaltali. Ţar af er laugardagsblađiđ í 355 eintökum. Rösklega fimmtungur kanadísku ţjóđarinnar talar frönsku ađ móđurmáli. Munar mestu um ađ í 8 milljón manna kanadíska fylkinu Quebec er franska ráđandi. Dagblöđ međ frönskum texta seljast eins og heitar lummur. Le Journal de Montreol selst í 233 ţúsund eintökum ađ međaltali. Á laugardögum er salan 242 ţús.
Eflaust segja sölutölur á kanadískum og bandarískum dagblöđum heilmikiđ um ţjóđirnar. Rétt er ţó ađ undirstrika ađ hér er lagt út af prentmiđlum. Öll dagblöđin eru einnig á netinu. Ţar eru ţau seld í áskrift. Einnig fá netsíđur ţeirra heimsóknir frá öđrum. Útreikningar eru snúnir. Talađ er um ţumalputtareglu: Fyrir vestan haf megi margfalda heimsóknir á netsíđur daglađa međ 2,5 á prentađ upplag til ađ fá út heildarneyslu dagblađsins..
Ţetta er samt flóknara. Viđ getum boriđ saman visir.is og mbl.is. Ţessar síđur fá álíka mörg innlit. Munurinn er sá ađ ýmist efni á mbl.is er ađeins ađgengilegt áskrifendum. Ţar fyrir utan er mikill munur á útbreiđslu prentmiđlanna. Fréttablađiđ nćr til meira en tvöfalt fleiri en Morgunblađiđ.
Pappírsbrot kanadísku dagblađanna er ţannig ađ ţau eru álíka breiđ og íslensk dagblöđ. En um ţriđjungi hćrri. Efnisval er ađgreint í lausum "kálfum". Ţađ er ţćgilegt. Ţá er hćgt ađ byrja á ţví ađ henda kálfunum "Sport" og "Business".
Menning og listir | Breytt 9.1.2019 kl. 18:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
18.12.2018 | 06:23
Veitingaumsögn
- Veitingastađur: Rakang
- Stađsetning: Hraunbćr 102A í Reykjavík
- Réttur: Tćlenskt hlađborđ
- Verđ: 2000 / 2800 kr.
- Einkunn: ****
Rakang er tćlenskur veitingastađur, stađsettur í sama húsnćđi og áđur hýsti veitingastađinn Blástein. Hann rak Ásgeir heitinn Hannes Eiríksson. Ţetta er rúmgóđur stađur sem skiptist upp í nokkra sali. Á góđum helgardegi var bođiđ upp á dansleiki.
Fyrir ókunnuga er erfitt ađ finna stađinn. Hraunbćr 102 teygir sig yfir nokkur hús í grennd viđ Orku bensínsölu. Til ađ finna 102a ţarf ađ keyra niđur fyrir eitt húsiđ.
Asísk hlađborđ eru hvert öđru lík. Enda eru ţau iđulega blanda af tćlenskum mat, víetnömskum og kínverskum. Hlađborđiđ á Rakang samanstendur af kjúklingabitum í sósu, ţunnt skornu nautakjöti í sósu, djúpsteiktum svínakjötstrimlum, djúpsteiktum fiski, djúpsteiktum vćngjum og tveimur núđluréttum međ grćnmeti. Međlćti eru hvít hrísgrjón, grćn karrýsósa, rauđ karrýsósa og súrsćt sósa.
Maturinn er bragđmikill og góđur. Á borđum eru flöskur til ađ skerpa enn frekar á bragđi. Ţćr innihalda soyja sósu, sterka chilli sósu og sterka mayones sósu.
Enginn laukur er í matnum, ólíkt ţví sem algengt er í asískum mat. Ţeim mun meira er af grćnmeti á borđ viđ gulrćtur, papriku og blómkáli.
Í hádegi er hlađborđiđ á 2000 kr. Á kvöldin er ţađ 2800 kall. Innifaliđ er kaffi og gosdrykkir.
Ljósmyndirnar njóta sín betur ef smellt er á ţćr.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
19.11.2018 | 23:04
Ţegar Birgitta snéri mig niđur
Nú standa öll spjót úti. Ţau beinast ađ rithöfundinum og tónlistarkonunni Birgittu Haukdal. Hún hefur skrifađ barnabćkur um Láru. Hún leggur sig fram um ađ breyta eđa leiđrétta stađalímynd telpna. Sem er gott mál. Ég ćtla ađ gefa mínum barnabörnum ţessar bćkur. Nema hvađ ađ í nýjustu bókinni kemur fyrir úrelt orđ, hjúkrunarkona. Um ţađ snýst fjađrafokiđ. Hjúkrunarfrćđingum ţykir gróflega ađ sér vegiđ. Ţeir eru miđur sín.
Birgittu er eđlilega brugđiđ viđ hin hörđu viđbrögđ. Hún harmar mistökin og lofar ađ ţetta verđi lagađ í nćstu prentun.
Ég ţekki ekki Birgittu. Hef aldrei talađ viđ hana né hitt hana. Hinsvegar varđ mér á ađ blogga um hana skömmu fyrir jólin 2007, fyrir 11 árum. Hún kom fram í sjónvarpsţćtti. Međ vanţroskuđum galgopahćtti reyndi ég ađ vera fyndinn á hennar kostnađ; bullađi eitthvađ um sjálfbrúnkukrem hennar.
Tveimur dögum síđar barst mér í hendur jólakort frá henni. Ţar afvopnađi hún mig til lífstíđar. Steinrotađi mig međ óvćntum viđbrögđum. Síđan hef ég ekki og mun aldrei segja né skrifa neitt neikvćtt um hana. Ţađ er mikiđ variđ í manneskju sem tćklar ókurteisi í sinn garđ svona glćsilega. Í kortinu stóđ:
Menning og listir | Breytt 20.11.2018 kl. 03:12 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)