Fćrsluflokkur: Menning og listir

Enn eitt fćreyska lagiđ slćr í gegn

  Frá 2002 hefur fjöldi fćreyskra tónlistarmanna notiđ vinsćlda á Íslandi.  Ţar af hafa margir komiđ lögum sínum hátt á vinsćldalista Rásar 2.  Í fljótu bragđi man ég eftir ţessum:

Hljómsveitin TÝR

Eivör

Brandur Enni

Hljómsveitin MAKREL

Högni Lisberg

Jógvan

Boys in a Band

  Eflaust er ég ađ gleyma einhverjum.  Núna hefur enn eitt fćreyska lagiđ stokkiđ upp á vinsćldalista Rásar 2.  Ţađ heitir "Silvurlín".  Flytjandi er Marius Ziska.  Hann er Íslendingum ađ góđu kunnur.  Hefur margoft spilađ hérlendis.  Jafnframt flutti hann ásamt Svavari Knúti lagiđ "Ţokan" 2013.  Ţađ fór ofarlega á vinsćldalista Rásar 2.  Rétt eins og lagiđ "You and I" sem Kristina Bćrendsen söng međ Páli Rózinkrans í fyrra. 

"Silfurlín" er í 12. sćti vinsćldalistans ţessa vikuna.  Sjá HÉR  

Uppfćrt 22.4.2018:  "Silfurlín" stökk úr 12. sćti upp í 4. í gćr.


Reykvískur skemmtistađur flytur til Benidorm

 

  Um árabil var Ob-la-di Ob-la-da einn áhugaverđasti skemmtistađur landsins.  Hann var stađsettur á Frakkastíg.  Alltaf trođfullt út úr dyrum.  Iđulega komust fćrri inn en vildu.  Sérstađa stađarins var ađ ţar spiluđu ţekktir tónlistarmenn lög úr smiđju Bítlanna.  Einungis Bítlalög.  Ekkert nema Bítlalög.  Sjaldnast í upprunalegum útsetningum.  Samt stundum í bland.  

  Bassaleikarinn Tómas heitinn Tómasson hélt utan um dagskrána.  Hann var jafnframt fasti punkturinn í hljómsveitunum sem komu fram,  hvort sem ţćr kölluđust Bítladrengirnir blíđu eđa eitthvađ annađ.  Međal annarra sem skipuđu húshljómsveitina ýmist fast eđa lauslega voru gítarleikararnir Magnús R. Einarsson,  Eđvarđ Lárusson,  Gunnar Ţórđarson;  trommuleikarinn Ásgeir Óskarsson;  söngvararnir Andrea Gylfadóttir,  Egill Ólafsson og Kormákur.  

  Ađ degi til um helgar spilađi Andrea Jónsdóttir vel valin Bítlalög af hljómplötum.  Alltaf var rosalega gaman ađ kíkja á Ob-la-di.  Útlendir Bítlaađdáendur sóttu stađinn.  Ţar á međal Mike Mills úr bandarísku hljómsveitinni R.E.M.  Hann tróđ upp međ húshljómsveitinni.  Mig rámar í ađ Yoko Ono hafi kíkt inn.  Líka gítarleikari Pauls McCartneys.  

  Svo kom reiđarslagiđ.  Lóđareigendur reiknuđu út ađ arđvćnlegt yrđi ađ farga húsinu og reisa í stađinn stórt hótel.  Ob-la-di var hent út.  Um nokkra hríđ stóđ til ađ Ob-la-di myndi flytja upp í Ármúla 5 í húsnćđi sem ţá hýsti frábćran skemmtistađ,  Classic Rock.

  Leikar fóru ţannig ađ kínverskt veitingahús keypti Classic Rock.  Ţá var ekki um annađ ađ rćđa en kanna möguleika á Spáni.  Í morgun skrifađi eigandi Ob-la-di,  Davíđ Steingrímsson, undir húsaleigusamning í Benidorm.  Innan nokkurra vikna opnar Ob-la-di á ný.  Ađ ţessu sinni í Benidorm.  

  Ob-la-di er ekki fyrsti íslenski skemmtistađurinn sem flytur búferlum til útlanda.  Fyrir nokkrum árum flutti heimsfrćgur skemmtistađur,  Sirkus,  frá Klapparstíg til Ţórshafnar í Fćreyjum.

Davíđ Steingríms & co      

    


Gjaldfrjáls tónlistarkennsla í Fćreyjum

 

  Um síđustu aldamót urđu meiriháttar umskipti í fćreyskri tónlist.  Svo afgerandi ađ viđ getum talađ um byltingu.  Í stađ ţess ađ herma eftir frćgum útlendum hljómsveitum komu fram á sjónarsviđ hljómsveitir á borđ viđ Ivory, Clickhaze og Yggdrasil, sóló-söngkonan Eivör og Teitur.  Ţau spiluđu frumsamda músík á eigin forsendum án eftirhermu.  Já,  Eivör var reyndar söngkona Ivory, Clickhaze og Yggdrasil.  Međ Ivory söng hún djass.  Međ Clickhaze söng hún trip-hopp.  Međ Yggdrasil söng hún spunadjasskennt heimspopp (world music).  Sem sóló söng hún vísnatónlist međ djasskeim og ţjóđlegum fćreyskum kvćđasöng. Fram til ţessa ţótti ungum Fćreyingum gamli kvćđasöngurinn hallćrislegur.  En Eivör var svo töff ađ hún gerđi hann töff.  Varđ međal annars ţungarokkshljómsveitinni Tý innblástur til ađ dusta rykiđ af hringdanskvćđinu "Orminum langa" og ţungarokksvćđa ţađ.  Međ ţeim árangri ađ ţađ varđ vinsćlasta lagiđ í Fćreyjum og á Íslandi 2002. 

  Fram ađ tónlistarbyltingunni um aldamótin var Fćreyingum fjarlćg hugsun ađ hćgt vćri ađ lifa á tónlist.  Ennţá fjarlćgara ađ hćgt vćri ađ spila utan Fćreyja.  Kúvending varđ á.  Fjöldi fćreyskra hljómsveita og tónlistarmanna er atvinnumenn í faginu í dag.  Ţeir selja mun fleiri plötur í útlöndum en í Fćreyjum.  Ruđningsáhrif eru töluverđ á ađrar atvinnugreinar.  Ekki síst ferđamannaiđnađ.  Heimsfrćgđ fćreyskra tónlistarmanna dregur allt upp ađ 7500 á árlega rokkhátíđ,  G!Festival,  í Götu á Austurey.  Einnig á Ólavsvökukonsertinn á Ólavsvöku og fleiri tónlistarhátíđir.  Eivör hefur náđ toppsćti á vinsćldalistum í Noregi, Danmörku og Íslandi auk Fćreyjum. Týr náđi 1. sćti norđur-ameríska vinsćldalistans CMJ (mćlir spilun í framahldsskólaútvarpsstöđvum í Bandaríkjunum og Kanada).

  Fćreyskir ráđamenn hafa áttađ sig á mikilvćgi fćreyskrar tónlistar.  Nú hefur fćreyska ríkiđ gert 3ja ára samning viđ franska nettónlistarskólann Meludia.  Allir Fćreyingar fá ókeypis ađgang ađ honum.  Ţar lćra ţeir ađ lesa tónlist, skrifa tónlist og skilja tónlist.  Jafnt leikmenn sem fagmenn.  Allt kennsluefniđ verđur á fćreysku.  Sjá:  https://www.meludia.com/

         


Íslendingur rćndur

  Ţađ er ekki vel faliđ leyndarmál ađ norskur ţrjótur stal rammíslensku lagi í aldarbyrjun.  Sá ósvífni heitir Rolf Lövland.  Höfundur lagsins heitir Jóhann Helgason.  Á íslensku heitir lagiđ "Söknuđur".  Ţađ kom fyrst út á hljómplötu međ Villa Vill 1977.  Norski ţjófurinn kallar ţađ "You Raise Me Up".

  Stuldurinn nćr yfir rösklega 97% af laginu.  Aukaatriđi er ađ ţjófurinn eignađist snemma kassettu međ laginu og dvaldi á Íslandi um hríđ.

  Margir hafa sungiđ lagiđ inn á plötu međ enska texta ţjófsnauts ţjófsins.  Ţeir hafa í grandaleysi skráđ lagiđ á ţjófinn.  Hann hefur rakađ inn risaupphćđum í höfundarlaun. 

  Höfundurinn, Jóhann Helgason, hefur til áratuga stađiđ í stappi viđ ađ fá höfundarrétt sinn á laginu viđurkenndan.  Enda lag hans harla gott. Vandamáliđ er ađ ţjófurinn ţráast viđ ađ viđurkenna sök.  Er ađ auki studdur af útgefanda sínum,  Universal stórveldinu.

  Í ţessari stöđu kosta málaferli til ađ fá leiđréttan höfundarrétt 150 milljónir eđa svo. Farsćll íslenskur lagahöfundur á ekki ţá upphćđ í vasanum. Leitađ hefur veriđ til margra ára ađ fjárfestum.  Án árangurs.  Sú leiđ er eiginlega fullreynd.

  Eigum viđ, íslenska ţjóđ,  sem fámennt samfélag ađ leyfa útlendum ţjófi ađ stela einni bestu lagaperlu okkar?  Njóta heiđurs fyrir gott lag og raka inn milljónum króna í höfundargreiđslum? 

  Vegna ţess ađ einstaklingsframtakiđ hefur brugđist í málinu verđur ađ skođa ađra möguleika.  Viđ ţurfum ađ leggja höfuđ í bleyti og finna ţá möguleika.  Einn möguleikinn er ađ lífeyrissjóđir fjárfesti í málaferlunum.  Áhćttan er lítil og minni en margar ađrar fjárfestingaleiđir sem ţeir hafa valiđ. 

  Annar möguleiki en krítískari er ađ íslenska ríkiđ - eitthvađ ráđuneytiđ - blandi sér snöfurlega í máliđ.  Bregđist af hörku viđ ađ vernda íslenska hagsmuni.  Yfirgnćfandi líkur eru á ađ máliđ vinnist.  Útlagđur kostnađur verđur ţá greiddur af Universal ţegar upp er stađiđ.  Risaháar höfundargreiđslur munu ađ auki koma á vćngjum inn í íslenska hagkerfiđ.  

  Fleiri uppástungur óskast.

  Sem öfgamađur í músíksmekk kvitta ég undir ađ kammerútsetning Villa Vill á laginu sé til fyrirmyndar.  Útlendu útfćrslurnar eru viđbjóđur. 

       


Íslenskst fönk á vinsćlustu netsíđunni

  Stćrsta og vinsćlasta vinylplötunetsíđa heims er breska The Vinyl Factory Limited. Hún er miđpunktur heimsins í umrćđu um vinylplötur.  Á dögunum brá svo viđ ađ ţar birtist yfirgripsmikil umfjöllun/samantekt um sjaldgćfar íslenskar fönk-vinylplötur.  Fyrirsögnin er "Frozen soul picnic:  The hunt for Iceland´s forgotten funk records". 

  Heimildarmađur umfjöllunarinnar er fćddur á Íslandi en starfandi plötusnúđur og útvarpsmađur í Bandaríkjunum.  Hann gegnir nafninu DJ Platurn.  Á síđunni er hćgt ađ spila rösklega 43ja mínútna samantekt hans á íslensku fönki.  Skemmtilegt dćmi. Jafnframt eru 8 íslenskar plötur kynntar međ ítarlegum texta.

  Skilgreining DJ Platurn á fönki er víđari en mín.  Samt.  Gaman ađ ţessu.  Sjá HÉR      


Músíktilraunir blómstra sem aldrei fyrr

  Músíktilraunir eru eitt besta fyrirbćri í íslenskri tónlist.  Ţćr eru útungunarvél frjósamrar tónlistarflóru nýliđa.  Ađ vísu hafa vinningshljómsveitir ekki alltaf veriđ upp á marga fiska.  Allt í lagi međ ţađ.  Ađrar hljómsveitir í Músíktilraunum hafa ţá veriđ ţeim mun áhugaverđari.

  Fyrstu Músíktilraunir voru 1982.  Ţá sigrađi hljómsveitin Dron.  Ţunnur ţrettándi.  Skemmti mér samt vel viđ ađ fylgjast međ keppninni..  Sem og nćstu ár.  Ég sótti öll kvöld Músíktilrauna árum saman.  Svo fćrđist aldurinn yfir.  Undanfarin ár hef ég látiđ nćgja ađ fylgjast međ úrslitakvöldi í útvarpi og sjónvarpi.  Mjög gaman.  Síđustu Músíktilraunir sem ég fylgdist međ frá upphafi til enda var 2002.  Ég fćrđi mig svo yfir til fćreyska systurfyrirbćrisins Sements. 

  Lengst af voru Músíktilraunir karllćgar.  Mjög karllćgar.  Af tugum hljómsveita sem öttu kappi var sjaldnast ađ finna fleiri en eina eđa tvćr stelpur.  Ađ vísu komu, sáu og sigruđu kvennasveitir 1983 (Dúkkulísur) og 1992 (dúndurflott Kolrassa krókríđandi).  2004 var röđin komin ađ hinni frábćru hljómsveit Mammút.  Helmingur liđsmanna var og er kvenkyns. Nú fór ađ fćrast fjör í leikinn:

  - Sigurvegari Músíktilrauna 2010 var hljómsveit Nönnu Bryndísar,  Of Monsters and Men. Framhald á sólódćmi hennar, Songbird.

  - Sigurvegari Músíktilrauna 2011 var tríóiđ Samaris,  skipađ tveimur stelpum og einum gutta.   

  - Sigurvegari Músíktilrauna 2013 var hljómsveitin Vök;  međ í fararbroddi hljómborđsleikarann, gítarleikarann og söngkonuna Margréti Rán.

  - Sigurvegari Músíktilrauna 2016 var Garđabćjar-pönkbandiđ Hórmónar. Meirihluti liđsmanna stelpur.

  - Sigurvegari Músíktilraun 2017 var vestfirski stelpnadúettinn Between Mountains.

  - Sigurvegari Músíktilrauna í ár er kvennasveitin Ateria.

  Mér segir svo hugur ađ námskeiđin "Stelpur rokka" eigi stóran ţátt í stórtćkri og árangursríkri ţátttöku kvenna í Músíktilraunum á síđustu árum.

 


Enn stendur slagur á milli Bítla og Stóns

 Á sjöunda áratugnum sló breska hljómsveitin Bítlarnir (The Beatles) í gegn á heimsmarkađi.  Rćkilega.  Svo rćkilega ađ hvert met var slegiđ af öđru.  Met sem mörg standa enn hálfri öld síđar.  Met sem aldrei verđa jöfnuđ.

  Dćmi:  Ef undan er skilin fyrsta smáskífa Bítlanna,  "Love me do",  fóru allar ađrar smáskífur ţeirra og stórar plötur í 1. sćti breska vinsćldalistans og síđar ţess bandaríska.

  Voriđ 1964 áttu Bítlarnir 5 söluhćstu lög á bandaríska vinsćldalistanum.  Í árslok reyndust 6 af hverjum 10 seldum plötum ţađ ár í Bandaríkjunum vera Bítlaplötur.

  Ţegar Bítlarnir héldu í hljómleikaferđ til Bandaríkjanna urđu uppţot fastur liđur.  Hljómleikasalurinn tók kannski 5000 eđa 7000 manns.  En allt upp í 50 ţúsund reyndu ađ kaupa miđa.  Ţeir sem ekki náđu miđum gengu berserksgang.  Grenjuđu eins og kornabörn,  brutu rúđur og unnu önnur eignaspjöll.  Allt upp ađ 240 manns á dag voru fluttir stórslasađir á slysavarđstofu. Í ţađ minnsta tífalt fleiri voru lemstrađir án ţess ađ leita á náđir sjúkrahúsa.

  Lögreglan réđi ekki viđ ástandiđ. Ţetta var neyđarástand. Lausn fólst í ţví ađ fćra hljómleika Bítlanna úr hljómleikahöllum yfir í íţróttaleikvangi. Ţeir rúma marga tugi ţúsunda gesti.  Jafnvel uppfyrir 50 ţúsund.  Allsstađar uppselt.

  Ţetta var nýtt:   Ađ hljómleikar vćru haldnir á íţróttaleikvangi.  Hljóđkerfi íţróttaleikvanganna var ömurlegt og ekki hannađ fyrir tónlist.  Skipti engu. Áheyrendur voru mćttir til ađ sjá Bítlana og öskra.  

  Hvar sem Bítlana bar niđur mćttu ţúsundir á flugvöllinn til ađ berja ţá augum.  Í Ástralíu spannađi hópurinn 15 kílómetra svćđi.  Kvartmilljón manns! 

  Ein hljómsveit komst međ tćr ţar sem Bítlarnir höfđu hćla.  Ţađ var the Rolling Stones.   Fjölmiđlar stilltu almenningi upp viđ vegg og spurđu:  "Hvort ertu Bítill eđa Stónsari?"  Í uppstillingunni voru Bítlarnir snotrir, snyrtilegir og settlegir sćtabrauđspopparar en Stónsarar ófríđir, ruddalegir og hćttulegir blús-rokkarar.

  Almenningur vissi ekki ađ um snjalla sviđssetningu var ađ rćđa.  Í raunveruleika voru ţađ Bítlarnir sem uppgötvuđu the Rolling Stones;  komu ţeim á plötusamning,  sömdu fyrir ţá fyrsta smellinn og kenndu ţeim ađ semja lög.  Togstreita á milli hljómsveitanna var tilbúningur.  Ţćr störfuđu náiđ saman.  Sendu aldrei frá sér lög eđa plötur á sama tíma.  Ţess var gćtt ađ ţćr felldu ekki lag eđa plötu hvorrar annarrar úr 1. sćti.

  Bítlahljómsveitin leystist upp 1969.  Stóns er hinsvegar enn í fullu fjöri.  Ein lífseigasta hljómsveit sögunnar. Í fyrra var hún söluhćsta hljómleikahljómsveit heims - eins og svo oft áđur.  Númer 2 var bítillinn Paul McCartney.  Samanburđurinn er ekki alveg sanngjarn.  Einn sólóbítill á móti rótgróinni hljómsveit.  Langt ţar á eftir var í 3ja sćti nýstirniđ drepleiđinlega Ed Sheeran.


Ţađ er svo undarlegt međ augabrúnir

  Augabrúnir eru til prýđis.  Ţćr hjálpa til viđ ađ ramma andlitiđ inn.  Jafnframt gegna ţćr ţví göfuga hlutverki ađ hindra ađ sviti bogi niđur enni og ofan í augu.  

  Konur hafa löngum skerpt á lit augabrúnna.  Á síđustu árum er algengt ađ ţćr láti húđflúra augabrúnastćđiđ.  Ţađ er flott.  Í sunnanverđum Bandaríkjunum eru konur kćrulausari međ ţetta.  Ţćr eru ekkert ađ eltast viđ augabrúnastćđin af nákvćmni.  Iđulega raka ţćr af sér augabrúnirnar og láta húđflúra augabrúnir uppi á miđju enni.  Eđa stílisera lögun augabrúnna á annan hátt.  Fögnum fjölbreytni!

augnbrúnir aaugnbrúnir baugnbrúnir caugnbrúnir daugnbrúnir eaugnbrúnir faugnbrúnir g


Danir fjárfesta í Íslendingi

  Í fyrrakvöld horfđi ég á dönsku sjónvarpsstöđina DR1.  Á dagskrá var ţáttur sem heitir Lövens Hule.  Í ţćttinum eru ný fyrirtćki sett undir smásjá.  Forsvarsmenn ţeirra eru yfirheyrđir og fariđ yfir áćtlanir.  Fjárfestum gefst fćri á ađ kaupa fyrir lítinn pening smáan hlut í vćnlegum hugmyndum.  Ég man eftir íslenskri útgáfu af ţessum ţćtti í - ađ mig minnir - Rúv.

  Í ţćttinum í DR1 kynnti Íslendingur,  Guđmundur Örn Ísfeld,  vinylplötufyrirtćki sitt RPM Records.  Hann flutti til Danmerkur fyrir nokkrum árum.  Fyrir jól bloggađi ég um ţetta fyrirtćki.  Sjá HÉR

  RPM Records hefur ekki ennţá hafiđ starfsemi.  Ţađ er veriđ ađ setja upp flókinn tćkjabúnađinn og innrétta ađstöđuna.  Engu ađ síđur sló uppskriftin í gegn í sjónvarpsţćttinum.  Tveir fjárfestar keyptu sitthvorn hlutinn á 8.350.000 ísl kr.  (500.000 danskar krónur).  Samtals 16,7 milljónir.  

  Í sögu Lövens Hule hafa viđbrögđ ekki veriđ jafn jákvćđ og skilađ ţetta hárri upphćđ.  Íslendingurinn Guđmundur Örn Ísfeld er ađ gera verulega gott mót í Danaveldi.

Gudmundur Orn Isfeld  


Kántrý-skotnir vísnasöngvar

 Ljóđin í sálinni er fjórđa plata Góla - Guđmundar Óla Scheving.  Hún inniheldur 21 lag.  Spilunartíminn er klukkustund.  Ţađ er ţriđjungi lengri spilunartími en venja er.  Öll lögin eru frumsamin.  Á fyrri plötum hafa textar veriđ eftir Góla í bland viđ eftir helstu ljóđskáld síđustu aldar, svo sem Stein Steinarr, Örn Arnarson og fleiri, ásamt snjöllum hagyrđingum ţessarar aldar á borđ viđ hinn margverđlaunađa Guđmund djákna Brynjólfsson.  Ađ ţessu sinni eru öll kvćđin eftir Davíđ Stefánsson frá Fagraskógi.  Ţau eru bragđsterkir og fjölbreyttir konfektmolar.  Samúđ liggur međ vinnandi stéttum og málleysingjum.  Hćđst er ađ borgarastéttinni.

  Lögin klćđa ljóđin prýđisvel.  Gćđa ţau lífi.  Galsafengin ljóđ fá fjörleg lög;  tregafull ljóđ fá angurvćr lög og svo framvegis.  Öll eru ţau grípandi,  söngrćn og einföld; flćđa lipurlega.  Hćgt er ađ syngja međ ţeim strax viđ fyrstu hlustun.  Mörg eru seyđandi fögur.  Sterkust í ţeim stíl eru Fasteignasalinn, Léttúđin og Sporin ţín.  Mörg önnur gefa ţeim lítiđ eftir.  Ţeirra á međal Auđnin ţegir.

  Ljóđin bjóđa ekki upp á afgerandi viđlög.  Ţađ er snyrtilega leyst í útsetningum sem jafnframt gefa lögunum sérkenni.  Gott dćmi er skemmtilega einföld en áleitin gítarlína í glađlega kántrý-laginu Dönsku skónum.  Annađ dćmi er lagiđ Ţú.  Ţađ hefst á söng viđ mildar kassagítarstrokur (strömm), rís síđan upp viđ fullan hljómsveitarflutning međ rafgítar og bakraddasöng. Í kántrý-laginu Einn kemur, ţá annar fer er einskonar viđlagsbútur trallađur.

  Ofar er nefnt lagiđ magnađa Sporin ţín.  Framan af einkennir ţađ sérlega skemmtilegur trommuleikur. Er á líđur verđur orgelspil áberandi.  Útsetningin stađsetur lagiđ bćđi í flokkinn heimspopp (world music) og framsćkna jađarmúsík (alternative).  Ađrir músíkstílar á plötunni falla undir víđa skilgreiningu á ţjóđlagakenndum vísnasöng (folk music) ásamt kántrý-sveiflu.  Hljóđfćraleikur er sparlegur.  Víđa ađeins kassagítar.  

  Góli er ágćtur og blćbrigđaríkur söngvari.  Stundum syngur hann lágstemmt og blítt.  Stundum ţenur hann sig.  Allt eftir yrkisefni ljóđsins.  Auđheyranlega kann hann kvćđin utanađ og túlkar innihald ţeirra af innlifun og einlćgni.

  Ljóđin í sálinni er góđ og eiguleg plata.  Og skemmtileg.  Hljóđheimurinn (sánd) er tćr og hreinn.  Ţökk sé www.studionorn.is.                       

Ljóđin í sálinni       


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.