Jólakakan

jólakaka 

  Eftirfarandi uppskrift að jólakökunni góðu fékk ég senda.  Mér segir svo hugur að fleiri kunni vel að meta þessa einföldu,  fljótlegu og skemmtilegu uppskrift.

Jólakakan góða

Hráefni:
1 bolli vatn
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurrkaðir ávextir
1 teskeið bökunarsódi
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 flaska af eftirlætis viskíinu 

Meðhöndlun:
1. Smakkaðu viskíið til að ganga úr skugga um að það sé ekki skemmt.
2. Takið stóra skál. Athugið viskíið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt.
3. Hellið viskíinu í bolla og drekkið.
4. Endurtakið.
5. Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra mjúka skál.
6. Bætið 1 teskeið út í og hrærið aftur.
7. Athugið hvort viskíið sé nokkuð farið að skemmast.
8. Fáið ykkur annan bolla.
9. Slökkvið á hrærivélinni.
10. Brjótið tvær fætur og bætið í skálina og hendið útí bollanum af þurrkuðu ávöxtunum.
11. Hrærið í kveikivélinni.
12. Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærarana losið þá þá af með rúfskjárni.
13. Bragðið á viskíinu til að athuga brestgatið.
14. Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju.
15. Athugið viskíið.
16. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar.
17. Bætið einu borði, skeið, af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt.
18. Smyrjið ofninn.
19. Stillið kökuformið á 250 gráður.
20. Gleymið ekki að hræra í stillaranum.
21. Hendið skálinni út um gluggann og rokið lúðunni.
22. Athugið vískíið aftur. Og aftur. Farið að sofa. Það langar engan í jólaköku lengur. Ekki núna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Mig langar til þess að baka svona köku fyrir jólin!!!!

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 4.11.2010 kl. 00:48

2 Smámynd: J.Ö. Hvalfjörð

Kæri Jónsi. geturru sagt aftur ða sem komettir að maður er búnað smyrra obninn?

J.Ö. Hvalfjörð, 4.11.2010 kl. 08:21

3 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Og ein saltskeið te.

Senn líður að Sigga kökum.

Siggi Lee Lewis, 5.11.2010 kl. 19:34

4 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Gat ekki klárað að gera kökuna var orðin íhá eftir þessari upskrift Hicc,.Alltaf gaman að lesa þig.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 7.11.2010 kl. 14:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.