Hvaða þjóðir njóta mesta netfrelsis?

  Í útlöndum er til stofnun sem mælir netfrelsi hinna ýmsu þjóða.  Hún heitir Freedom house.  Allt sem snýr að netfrelsi er skoðað.  Meðal annars út frá því hvort eða hvaða skorður yfirvöld setja á umgengni almennings við netið.  Til að mynda hvort að einhver forrit séu bönnuð eða aðgengi að þeim takmörkuð og bara allskonar.  Listinn yfir þær þjóðir sem búa við mesta netfrelsi er forvitnilegur.  Ekki síst fyrir okkur Íslendinga.  Þessi lönd tróna á toppnum:

1  Ísland

2  Eistland

3  Kanada

4  Ástralía

5  Þýskaland 

  Íranar búa við minnst netfrelsi.  Þar er eiginlega flest blokkerað eða stranglega bannað.  Sýrlendingar koma þar næst.  Síðan eru það Kínverjar.  Kúbanar eru í fjórða neðsta sæti.  Á hæla þeirra koma Eþíópar.

  Ekki reyndist unnt að mæla netfrelsi í N-Kóreu.  Enginn þeirra íbúa sem rannsóknarteymið ræddi við þar í landi hafði hugmynd um hvað internet er.    

-----------------------------------------------------------

vegaholuauglýsing  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég man ekki betur en ný fallinn sé dómur, hvar símafyrirtækjum íslenskum var gert að loka fyrir aðgang að erlendum síðum sem ekki voru að skapi ákveðinna samtaka á Íslandi.

Er þetta netfrelsi ekki ofmetið rétt eins og sú útbreidda skoðun að ekki fyrirfinnist spilling á Íslandi?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 6.12.2014 kl. 20:30

2 identicon

FACEBOOK KNOWS EVERYTHING ABOUT YOU & MORE  

https://www.youtube.com/watch?v=gNxQuJrTjjw

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 6.12.2014 kl. 23:11

3 Smámynd: Jens Guð

  Axel Jóhann,  það má rétt vera að netfrelsi á Íslandi sé ofmetið.  Einnig er til í dæminu að þrátt fyrir að frelsi á netinu sé ekki takmarkalaust þá meiri hömlur hjá öllum öðrum þjóðum.

Jens Guð, 7.12.2014 kl. 19:11

4 Smámynd: Jens Guð

  Helgi,  við erum vaktaðir úr öllum áttum.

Jens Guð, 7.12.2014 kl. 19:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband