Ástæðulausir fordómar í garð prófsvindls

  Á öllum stigum menntakerfisins ríkja neikvæðir fordómar í garð prófsvindls.  Í þeim tilfellum sem kemst upp um prófsvindl er brugðist ókvæða við.  Prófsvindlarinn er rekinn með skít og skömm úr skólanum.  Prófúrlausn hans er ógild um aldur og ævi

  Hvað er svona merkilegt við það að skipta um dekk á vörubil?

  Útsjónarsamt prófsvindl staðfestir hæfileika nemanda til að komast af.  Komast yfir hindrun.  Það er hlutverk menntunar og tilgangur skóla:  Að skila út í lífið einstaklingum sem spjara sig.

  Sumir nemendur skora hátt á prófi með því að læra eins og páfagaukar:  Þeir læra orð,  setningar og texta utan að án skilnings á því hvað um ræðir.  Aðrir stytta sér leið með útsjónarsemi.  Svindla á prófi með slóttugheitum.  Skilja samt jafnvel betur námsefnið en páfagaukarnir.  En nota aðra hæfileika til að standast prófið.  Það eru einmitt þeir hæfileikar sem skila þeim farsælla lífshlaupi þegar upp er staðið en páfagaukunum.  

 Á Indlandi beita foreldrar og ættingjar öllum aðferðum til að hjálpa nemendum við að svindla á prófum.  Á meðan próf er þreytt má sjá aðstandendur klifra eins og fjallageitur upp skólabyggingar í ákafri viðleitni til að hjálpa við prófsvindl.  Það er ekkert nema gaman að sjá samheldar fjölskyldur.  Verra er að vita af afskiptalausum börnum á Íslandi.

prófsvindl

   


mbl.is Meint svindl aldrei sannað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Már Elíson

Heyrðu Jens...Þarna hittirðu naglann beint á bæði höfuðin ! - Það eru hinir greindari og sem eru undartekningalítið minna skólagengnir sem eru hæfileikaríkari og útsjónasamari í lífinu öllu, en sá sem les nóturnar er bara lesinn sem páfagaukur. MIkið af þessu beint fyrir framan okkur í þjóðfélaginu. - Engar tilfinningar, hæfileiki eða útsjónasemi.

Már Elíson, 23.3.2015 kl. 21:32

2 identicon

Rétt Már  ,, Engar tilfinningar, hæfileiki eða útsjónarsemi ". Þarna erum við sko komnir beint inn í íslensku bankana.  

Stefán (IP-tala skráð) 24.3.2015 kl. 13:20

3 Smámynd: Jens Guð

Már, ég kvitta undir þetta.

Jens Guð, 24.3.2015 kl. 21:22

4 Smámynd: Jens Guð

Stefán, nákvæmlega!

Jens Guð, 24.3.2015 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.