Hvar eru flestar nauðganir?

  Oft og víða er því haldið fram að nauðganir séu hlutfallslega flestar í Svíþjóð af öllum löndum heims.  Þetta er ekki rétt.  En samt næstum því.  Samanburður á tilfellum nauðgana á milli landa er afar ónákvæmur.  Hægt er að bera saman tölur yfir kærðar nauðganir.  Einnig yfir dæmda nauðgara.  Líka skeikular skoðanakannanir.  Þar fyrir utan er skilgreining á nauðgun afar ólík á milli landa og menningarsvæða. 

  Af öllum alvarlegum glæpum eru nauðganir léttvægar fundnar í mörgum löndum.  Í sumum samfélögum getur verið hættulegt að kæra nauðgun.  Í sumum samfélögum er fylgifiskur nauðgunar að þolanda er útskúfað af fjölskyldu sinni og almenningi.  Í öðrum löndum þykir nauðgun ekki vera neitt til að gera veður út af.  Allt að því viðurkennt sport af hálfu nauðgara.

  Netsíðan Wonderlist birtir þennan lista yfir mestu nauðganalönd heims (æ, þetta er illa orðað):

1.  Bandaríkin

2.  S-Afríka

3.  Svíþjóð

4.  Indland

5.  Bretland

  Bandaríkin eru sér á parti (ásamt Ísrael) hvað varðar nauðganir á karlmönnum.  Þær eru ótrúlega algengar.  Einkum í fangelsum,  hernum,  rugby-boltafélögum og bræðralagsfélögum unglingaskóla.  Þær nauðganir eru sjaldnast taldar með.  Ekki kærðar né skráðar.      

  Wikipedía er í mörgum tilfellum þokkalega áreiðanleg heimild.  Að vísu eru tölur þar ekki nýjar.  Þetta eru nokkurra ára gamlar tölur.  Þar eru afrísk lönd í verstu sætunum.  Innan sviga er fjöldi nauðgana á hverja 100.000 íbúa.

1. S-Afríka (132,4)

2. Botswana (92,9)

3. Losotho (82,7)

4. Swasiland (77,5)

5. Bermuda (67,3) 

6. Svíþjóð (63,5)

  Netsíðan Top 10 For birtir þennan lista:

1. Indland

2. Spánn

3. Ísrael

4. Bandaríkin

5. Svíþjóð

  Hvaða listi sem er marktækastur verður ekki framhjá því litið að Svíþjóð er ofarlega á þeim öllum.  Það er skelfilegt.  

  P.s.  Ég er ósammála Páli Vilhjálmssyni um rofnar/órofnar samfarir (sjá HÉR).  Ef að kona eða kall vilja hætta við í miðjum leik þá á viðkomandi fullan rétt á því.  Taki karlinn eða konan ekki mark á því og heldur áfram þá er er það nauðgun.   


mbl.is Nauðgaði „eiginkonunni“ reglulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég sé ekki að neinn hafi sýnt frammá að Svíþjóð sé paradís vondra nauðgandi múslíma, því það gleymist alltaf að munurinn á Svíþjóð og flestum löndum er að eftir 2005 er sænska skilgreiningin á nauðgun víðari en áður var - og eftir þessar breytingar á löggjöfinni, fór tilfellum fjölgandi .. tilviljun?

varðandi samaburð við önnur lönd: engar tölur fást frá sumum löndum, og tölurnar frá sumum löndum eru næstum áreiðanlega rangar - auk þess sem fólk myndi bara ekki leggja í að kæra nauðgun í sumum löndum, einsog þú segir þarna uppi: því meðferð löggunnar gæti verið jafnvond og nauðgarans, eða bara hlegið að fórnarlambinu.

 - á Wikipediu eru taldar upp nokkrar ástæður sem gætu haft áhrif á að tölurnar frá Svíþjóð eru svona háar:

The Swedish police record each instance of sexual violence in every case separately, leading to an inflated number of cases compared to other countries. Sweden also has a comparatively wide definition of rape. This means that more sexual crimes are registered as rape than in most other countries. For example, in 2005 Sweden reformed its sex crime legislation and made the legal definition of rape much wider, which led to a marked increase in reports. Additionally, the Swedish police have improved the handling of rape cases, in an effort to decrease the number of unreported cases.

.. fer samt allt eftir hvað menn vilja sjá út .. einsog með svo margt annað ..

Halldór Carlsson (IP-tala skráð) 12.6.2015 kl. 21:21

2 Smámynd: Jens Guð

Halldór,  takk fyrir ábendingarnar.  Ég var búinn að gleyma þessum sænsku lögum.  Þau bjóða upp á mjög víðtæka túlkun.  Til að mynda flokkast það undir nauðgun að karl svíkist um að nota smokk eftir að konan hefur sagt honum að nota smokk.  Gott ef það flokkast ekki líka undir nauðgun að sofa hjá konu sama dag og sofið hefur verið hjá annarri konu án þess að gera grein fyrir því. 

Jens Guð, 12.6.2015 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband