Íslendingar með allt niðrum sig

strokkur 

  Fyrirséður vaxandi straumur erlendra ferðamanna til Íslands afhjúpar ýmis einkenni Íslendinga.  Til að mynda fyrirhyggjuleysi og gullgrafaraæði.  Ýmsir hafa síðustu ár bent á sáran skort á salernum við helstu áfangastaði ferðamanna.  En þeir sem málið heyrir undir góna út í loftið sljóum augum og aðhafast ekki neitt.  Á sama tíma fjölgar erlendum ferðamönnum.  Þeim fjölgar um mörg prósent í hverjum einasta mánuði.

  Tölurnar eru stórar.  Í fyrra kom ein milljón erlendra ferðamanna til Íslands.  Í ár eru þeir 200.000 fleiri.  Á næsta ári verða þeir um 1,5 millj.

  Túrhestarnir koma hingað með fulla vasa fjár.  Þeir moka seðlunum í sparibauka allra sem koma nálægt ferðaþjónustu.  Hátt hlutfall af fjármagninu hefur viðkomu í ríkissjóði.  Við erum að tala um milljarða.  Enginn hefur rænu á að taka af skarið og láta eitthvað af gróðanum renna í að koma til móts við spurn eftir salernum.  Peningurinn er notaður til að standa straum af nýjum ráðherrabílum og tíðum utanlandsferðum embættismanna. Aðstoðarmönnum ráðherra fjölgar jafn hratt og túrhestum.  Einnig nýjum nefndum,  starfshópum og ráðgjafateymi um allt annað en salernisaðstöðu.  

  Túrhestunum er nauðugur einn kostur að ganga sinna erinda úti um allar koppagrundir. Hvorki kirkjugarðar né aðrir grænir blettir sleppa undan áganginum.  Hvergi er hægt að víkja út af gönguleið án þess að vaða skarn upp að hnjám.

  Víða má í fjarlægð líta snjó í fjallshlíðum.  Þegar nær er komið er engan snjó að sjá. Aðeins klósettpappír.

  Viðbrögð Íslendinga eru þau ein að yppa öxlum í forundran og saka túrhestana um sóðaskap.  

  Góðu fréttirnar eru þær að hraukarnir sem túrhestarnir skilja eftir sig er fyrirtaks áburður.  Eigendur skrautblómagarða gætu gert sér eitthvað gott úr því.   

1tourists   


mbl.is „Míga og skíta“ glottandi við Gullfoss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Upp til hópa illa gefnir, illa að sér, kærulausir og hrokafullir.

aðalsteinn geirsson (IP-tala skráð) 16.7.2015 kl. 21:23

2 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

'Islenskir gróðamenn eru að rústa ferðamannastraum hingað- við komum fram eins og aumasta bananalyðveldi- og rænum ferðamenn með svikinni vöru í mat- og án allrar sjálfsagðrar aðstöðu til þrifa og klósettferða. Menn þurfa að stoppa og letta á ser- sagði Petur fararstjóri í Petursborg- það er orð að sönnu !sealed

Erla Magna Alexandersdóttir, 16.7.2015 kl. 21:28

3 identicon

Þeir íslendingar sem helst eru með allt niður um sig núna eru starfsmenn og stjórnendur Landsbankans og svo íslensku gædarnir sem sagðir eru vísa túristum út í móta til að gera þarfir sínar.   

Stefán (IP-tala skráð) 17.7.2015 kl. 08:19

4 Smámynd: Jens Guð

Aðalsteinn,  ertu að lýsa íslendingum eða útlendu túrhestunum?

Jens Guð, 17.7.2015 kl. 18:53

5 Smámynd: Jens Guð

Erla Magna,  það er mikið til í þessu.

Jens Guð, 17.7.2015 kl. 18:54

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  ég tek undir það.

Jens Guð, 17.7.2015 kl. 18:54

7 identicon

Hvada ferdamannalandi i heiminum getur bodid uppa svona einstaka lifsreinslu eins og ad kuka i gudsgraenni natturinni. Thorbergur Thordarson sagdi ad dasamlegasta augnablik aevi hans var ad kuka i gudsgraenni natturinni akkurat a thvi augnabliki thegar kukurinn tengist vid rass og jord. I stad thess ad skammast yfir thessu er mikklu betra ad sja hverskona taekifaeri er her a ferd,

Gudmundur Runar Asmundsson (IP-tala skráð) 19.7.2015 kl. 21:09

8 Smámynd: Jens Guð

Guðmundur,  þetta er góður punktur.  Þarna er gott viðskiptatækifæri.  

Jens Guð, 19.7.2015 kl. 21:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband