Íslendingar mjakast hægt í humátt að nútímanum

skömmtunarseðill bjórFyrsta aldarþriðjung ævi minnar var bannað að selja bjór á Íslandi.  Utan Keflavíkurflugvallar,  vel að merkja.  Fólk laumaðist til að kaupa bjór af bandarískum hermönnum á Vellinum.  Þeim þótti þetta vitaskuld vera furðulegt og geggjað.  Og jafnframt verulega sprenghlægilegt.  Þeir voru allir af vilja gerðir að hjálpa til við smygl á bjór ofan af Velli.  Þaðan barst hann í bílförmum áratugum saman. 

  Bjórbannið stóð frá 1915 til 1989.  Eitthvað var um að veitingastaðir hefðu á boðstólum svokallað bjórlíki.  Þar var Kláravíni blandað út í óáfengt öl.  Eftirspurn var góð.  En þetta var meiriháttar kjánalegt.  

  Svo mátti ekki selja áfengi á skemmtistöðum á miðvikudögum  (þann dag átti að renna af mönnum).  Það mátti ekki sýna sjónvarpsdagskrá á fimmtudögum (það átti að vera fjölskyldukvöld) og ekki allan júní-mánuð (þá átti fjölskyldan að njóta sumarfrís).  Það mátti ekki selja mjólk nema í sérstökum mjólkurbúðum.  Það mátti ekki selja útvarpstæki nema í útvarpsverslun ríkisins.  Það mátti ekki selja ost nema í Osta- og smjörsölunni.  Það mátti ekki hafa verslanir opnar lengur en til klukkan 18.00.  Nema á föstudögum.  Þá mátti hafa opið til klukkan 19.00 (það þurfti að sækja formlega um leyfi til þess).  Á laugardögum máttu verslanir vera opnar á milli klukkan 11.00 til 14.00.  Allt lokað á sunnudögum og hátíðisdögum.

 Það mátti ekki halda rokkhljómleika í námunda við hátíðisdaga ríkiskirkjunnar.  Gríntímaritið Spegillinn var gert upptækt og útgefandinn sendur í gjaldþrot vegna góðlátlegs gríns um fermingarbörn.  Það var guðlast.  Engu mátti muna að Spaugstofan hlyti sömu örlög fyrir orðaleik um að Jesú gæfi blindum sýn (í útfærslu Spaugstofunnar gaf Jesú blindum áskrift að sjónvarpsstöðinni Sýn).  

  Það mátti ekki selja föt eða annað utandyra í göngugötu.  Sala á vöfflum bökuðum á staðnum utandyra var stöðvuð af því að það vantaði 4 cm upp á lofthæð þar sem deigið var hrært.  Ábúðafullir embættismenn fengu gott "kikk" út úr því að passa upp á að strangasta lögstaf væri fylgt í hvívetna.    

  Svona mætti lengi lengi lengi telja.  Enn í dag er starfandi manna- og hundanafnanefnd sem bíður á bak við skírnarfontinn og stekkur fram þegar henni mislíkar nafn.  Bann,  bann, bann!

  Ísland var og er ótrúlega forpokað land.  Öll skref í átt frjálsu og nútímalegu samfélagi eru stigin seint og hægt og mæta öflugu mótlæti.  

  Árið 2015 er það uppsláttarfrétt í fjölmiðlum að veitingastaðir tengdir bensínsölu ætli að selja bjór með mat.  Danskan Tuborg bjór í örfáa daga á örfáum matsölustöðum. Það að þetta sé frétt og til umfjöllunar á bloggsíðum sýnir hvað Ísland á langt í land með að komast inn í nútímann.  Í nágrannalöndum þykir sjálfsagt að kaupa bjór í úrvali á bensínstöðvum,  hverfissjoppum og hvar sem er.     


mbl.is Bjór á bensínstöðvum Olís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Réttara sagt, vinstri stefna og forræðishyggja er á hægu undanhaldi....

Siggi Lee Lewis, 17.7.2015 kl. 21:31

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það þurfti enga vinstri menn til. Forræðishyggjan var í boði allra flokka.

Villi Asgeirsson, 17.7.2015 kl. 22:17

3 identicon

Mikid djofull hittirdu oft naglann a hofudid.

Sigurdur Hermannsson (IP-tala skráð) 18.7.2015 kl. 19:29

4 identicon

Forræðishyggjan er ekki eingöngu vinstra megin.  Fyrir löngu var ég handtekinn fyrir að syngja á almannafæri, í Austurstræti um miðja nótt.  Við vorum fjórir félagarnir, og sem betur fer var enginn okkar með hljóðfæri.  Þá hefði brotið verið mun alvarlegra.

Ég held ég fari rétt með að tónlist fór ekki að heyrast í miðbænum fyrr en vinstri menn komust til valda í Reykjavík skamma hríð.

Hörður Björgvinsson (IP-tala skráð) 19.7.2015 kl. 11:02

5 Smámynd: Jens Guð

Ziggy Lee,  forræðishyggja er á undanhaldi.  Veit ekki með vinstri stefnuna.

Jens Guð, 19.7.2015 kl. 19:42

6 Smámynd: Jens Guð

Villi,  var og er í boði 4-flokksins.

Jens Guð, 19.7.2015 kl. 19:43

7 Smámynd: Jens Guð

Sigurður Hermannsson,  takk fyrir það.

Jens Guð, 19.7.2015 kl. 19:43

8 Smámynd: Jens Guð

Hörður,  nýir vendir sópa best.  

Jens Guð, 19.7.2015 kl. 19:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband