Hver skóp gjá á milli ráðamanna og þjóðar?

  Mikla undrun og athygli vakti að almenningi var kyrfilega haldið frá Austurvelli þjóðhátíðardaginn 17. júní.  Margir hafa vanið sig á - alveg frá 1944 - að standa á "sínum stað" á Austurvelli undir hátíðarræðum ráðamanna. Í gær mættu þeim girðingar og lögregluþjónar,  gráir fyrir járnum með kylfur og handjárn í beltisstað og gasúða á brúsum. Aldrei jafn tilbúnir og nú að hrópa:  "Gas! Gas! Gas!".

  Gamla fólkið vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið.  Það fékk ekki að brölta í gamla stæðið sitt.  Þarna utan girðingar hvorki sá það né heyrði í ráðamönnum þjóðarinnar.  Kannski táknrænt.  Á Fésbók hefur yngra fólk einnig kvartað undan því að hafa ekki náð að heyra né sjá hvað landsfeður höfðu þarna að færa,  Höfðu þó sumir einlæga þörf fyrir að fá leiðsögn frá þeim í lífinu. 

  Enginn kannast við að hafa búið til þessa gjá á milli ráðamanna og þjóðar. Hver vísar á annan.  Forsætisráðherra vísar á lögregluna. Hún vísar til baka á forsætisráðherra.  Segir þetta hafa verið samráðsverkefni forsætisráðherra og þjóðhátíðarnefndar.  Þjóðhátíðarnefnd kannast ekki við sína aðkomu.  

  Lögreglan hefur bent á að hún hafi aðeins staðið vörð um hefðbundna gjá á milli þjóðar og ráðamanna.  Þetta hafi verið nákvæmlega eins í fyrra. Gjáin hafi einungis verið stækkuð um 5 metra á kant,  samtals aðeins 20 metra.  

  Einhverjir hafa vísað til þess að hróp voru gerð að Sigmundi Davíð,  þáverandi forsætisráðherra, í fyrra.  Aðrir benda á að sú uppákoma hafi verið vel og rækilega boðuð og auglýst fyrirfram.  Nú hafi aftur á móti ekkert slíkt verið boðað eða fyrirhugað.  Enda hefur núverandi forsætisráðherra,  Sigurður Ingi, gagnrýnt lögregluaðgerðirnar.  Þrátt fyrir að löggan fullyrði að hann og hans embætti hafi staðið fyrir því að gjáin á milli ráðamanna og þjóðar var breikkuð í gær.

Austurvöllur

      

   


mbl.is Undrast lokanir lögreglu á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það má segja í þessu tilfelli hafi stjórnmálamennirnir á alþingi verið þjóðníðingarnir.  Það þarf enginn að segja mér að þessi uppákoma sér runninn undan einhverjum öðrum rifjum.  Skömmin er algjörlega þeirra.  Talandi um Jóhönnu og Steingrím þá eru þessir ráðamenn svona um það bil að gera þau góð.  Hélt að það væri ekki hægt, en svona er þetta bara. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2016 kl. 19:07

2 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil,  það er athyglisvert hvernig embættin vísa - hvert á fætur öðru - frá sér allri ábyrgð af frumkvæði og samráði um aðgerðina.  Einhver segir ósatt.   

Jens Guð, 18.6.2016 kl. 19:14

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Svo sannarlega, og hvað segir það okkur? Jú þeir kunna svolítið að skammast sín en eru ekki nógu heiðarlegir að biðjast afsökunar.  Þetta er ekkert minna en skandall.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2016 kl. 19:40

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jens. "Embættin vísa-hvert á fætur öðru-frá sér allri ábyrgð af frumkvæði og samráði um aðgerðina". Einmitt þannig er stjórnsýslan á Íslandi raunveruleikans.

Þetta minnir mig á þegar Tryggingarstofnun Ríkisins og ábyrgt forsvarsembætti Lífeyrissjóðanna ætlaði að taka mig fyrirvaralaust af örorku, um mánaðarmótin Júní/Júlí á síðasta ári.

Vegna þess að ég bar víst fulla ábyrgð á að kunna ekki utanbókar vinnu öryrkja við pappírsútfyllingar. Tveir læknar höfðu skilað inn umsókn um áframhald, en það dugði ekki? Ég gladdi þá ekki með að fá hjartaáfall, svo losna mætti við þetta rusl sem ég er. Því miður heldur martröð óréttlætisins í kerfinu áfram, eins og vel launuð spillingartannhjólanna aftökuvél. Maður veltir því fyrir sér hvenær almættinu þóknast að leysa mann úr þessum álögum ómennskunnar?

Mammon hefur víða skapað valdstjórnarinnar gjá milli mennsku og ómennsku.

Með lögum skal land byggja og ólögum eyða?

Sá ekki betur en forseti Hæstaréttar Íslands; Markús Sigurbjörnsson, og valdhafandi lagaprófessorsfrúin hans í Háskóla Ísalands; Björg Thorarensen, væru í liðinu sem hefur valið almenning burt? Á fremsta bekk, ásamt Kristjáni L. Möller?

Höfuðstöðvar alls valds á Íslandi er hjá Hæstarétti Íslands, Háskóla Íslands, og fjölmiðlum valdsstjórnarinnar.

Sturla Jónsson fær mitt verðskuldaða atkvæði í forsetakosningunum. Flóknara er réttlætið í þeim kosningum ekki núorðið, í mínum huga.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 18.6.2016 kl. 20:03

5 identicon

Ég tók þessu sem svo að það væri verið að verja þjóðina gegn því að ráðamenn kæmust að henni.

Grrr (IP-tala skráð) 19.6.2016 kl. 07:02

6 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Getum við þjóðin ekki bara haft eigin opna hátíðardagsskrá á næsta ári?

Jósef Smári Ásmundsson, 19.6.2016 kl. 12:30

7 identicon

Allavega tókst mótmælendum að eyðileggja sautjánda júní í fyrra með einhverjum trefli og skrílslátum.  Kemur ekki á óvart að teknar séu upp nýjar ráðstafanir gegn slíku.  Ég hef oftast mætt niður á Austurvöll og fundist það hátíðlegt, en nú er öldin önnur og mótmælendum hefur tekist að eyðileggja þennan mikilvæga dag.  Þeir geta sjálfum sér um kennt.

Birna Katrín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 19.6.2016 kl. 13:48

8 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

ÞETTA ERU HRÆDDIR MENN- VEGNA VERKA SINNA  !

Erla Magna Alexandersdóttir, 19.6.2016 kl. 14:09

9 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil (#3),  þetta er skandall.  Ég tek undir það.

Jens Guð, 19.6.2016 kl. 16:12

10 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður,  takk fyrir áhugaverðar vangaveltur.  Gott hjá þér að kjósa Stulla.

Jens Guð, 19.6.2016 kl. 16:14

11 Smámynd: Jens Guð

Grrr,  já,  var það ekki tilgangurinn?

Jens Guð, 19.6.2016 kl. 16:15

12 Smámynd: Jens Guð

Jósef Smári,  jú,  eða jafnvel fyrr.

Jens Guð, 19.6.2016 kl. 16:16

13 Smámynd: Jens Guð

Birna Katrín,  svo sannarlega geta mótmælendur sjálfum sér um kennt að þú sért hætt að mæta á Austurvöll 17. júní.  

Jens Guð, 19.6.2016 kl. 16:27

14 Smámynd: Jens Guð

Erla Magna,  eins og titrandi strá í vindi.

Jens Guð, 19.6.2016 kl. 16:28

15 identicon

Það er ömmulegt þegar fólk notar þennan viðburð, 17. júní hátíðahöldin til að mótmæla ríkisstjórn, eða hverju svo sem er. Ég ætla rétt að vona að þessi mótmæli í fyrra séu algjör undantekning.

Svo skulum við muna það næsta 17. júní að minnst viku fyrir þjóðhátíðardag skulum við hrinda af stað umræðu sem þessari með væntingar um engar lokanir. þannig að ekki þarf að koma til lokanna vegna mótmælenda sem skemma fyrir afmælisgestum.

Hvað gerum við þegar einhver reynir að spilla afmælisveislu ? Hendum honum út.

Birgir Kristbjörn Hauksson (IP-tala skráð) 19.6.2016 kl. 20:04

16 identicon

Ég tel ástæðuna fyrir þessari miklu öryggisgæslu og víggirðingum endurspegla það að litið sé á ræðuhöld framsóknarmanna sem hryðjuverkaógn.

Stefán (IP-tala skráð) 20.6.2016 kl. 08:10

17 Smámynd: Jens Guð

Birgir Kristbjörn,  mér finnst það ekki svo ömmulegt.  

Jens Guð, 20.6.2016 kl. 18:00

18 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  þú hittir naglann á höfuðið!

Jens Guð, 20.6.2016 kl. 18:00

19 identicon

Það er ömmulegt þegar fólk notar þennan viðburð, 17. júní hátíðahöldin til að mótmæla ríkisstjórn, eða hverju svo sem er. Ég ætla rétt að vona að þessi mótmæli í fyrra séu algjör undantekning.

Svo skulum við muna það næsta 17. júní að minnst viku fyrir þjóðhátíðardag skulum við hrinda af stað umræðu sem þessari með væntingar um engar lokanir. þannig að ekki þarf að koma til lokanna vegna mótmælenda sem skemma fyrir afmælisgestum.

Hvað gerum við þegar einhver reynir að spilla afmælisveislu ? Hendum honum út.

Birgir Kristbjörn Hauksson (IP-tala skráð) 21.6.2016 kl. 00:29

20 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Ef fólki er illa við 17. Júní hátíðarhöld, af hverju er það að mæta og taka þátt í hátíðarhöldunum.

Fólki sem er illa við 17. Júní hátíðarhöld ættu frekar að halda sér heima hjá sér og kveikja upp í hasspípuni sinni, það væri mikið betra með tíman farið og allir væru ánægðir.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 21.6.2016 kl. 04:46

21 Smámynd: Jens Guð

Birgir Kristbjörn,  umræðan þarf að hefjast ekki seinna en 1. júní 2017.

Jens Guð, 22.6.2016 kl. 06:18

22 Smámynd: Jens Guð

Jóhann,  ég veit ekki af hverju fólki er illa við 17. júní.  Skil það ekki.  

Jens Guð, 22.6.2016 kl. 06:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband