Keppt í nefarækt

  Gott er talið að vita lengra en nef sitt nær.  Einkum þykir það gott hjá þeim sem skarta stóru og löngu nefi.  Þar fyrir utan er margskonar kostur við stórt nef.  Það rennur betur á lykt af nýbökuðu brauði.  Það auðveldar fólki að reykja í sturtu.  Þannig mætti áfram telja

  Víðast um heim eru stór nef eftirsótt.  Enda hvers manns prýði.  Í aldir hafa Þjóðverjar,  Austurríkismenn og fleiri reynt að rækta sem stærst nef í sínum fjölskyldum.  Metnaðurinn er slíkur að hann hefur gert nefrækt að gríðarvinsælli keppnisgrein.  Heimsmeistarakeppni nefstórra var að ljúka í Þýskalandi.  Hér fyrir ofan má sjá hvernig staðið var að henni.  Í lokin sést sigurvegarinn kampakáti.

nef cnef dnef bnef e     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þau ná þá upp í nefið á sér og geta gefið langt nef!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 22.6.2016 kl. 10:21

2 identicon

 Mér finnst Gosa nefið á Sigmundi Davíð hafa verið að lengjast ... 

Stefán (IP-tala skráð) 22.6.2016 kl. 13:32

3 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  hvorutveggja er kostur.  

Jens Guð, 22.6.2016 kl. 18:52

4 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  það er að túttna úr.

Jens Guð, 22.6.2016 kl. 18:53

5 identicon

Já Jens, reyndar er hann allur að tútna út eins og virk eldstöð ...

Stefán (IP-tala skráð) 23.6.2016 kl. 10:31

6 identicon

Karldýrin hjá þessari apategund nota stór nef til að trylla dömurnar

https://s-media-cache-ak0.pinimg.com/736x/e0/9c/b5/e09cb51e959183647a1742c3e8479414.jpg

Grrr (IP-tala skráð) 23.6.2016 kl. 16:35

7 Smámynd: Jens Guð

smile

Jens Guð, 24.6.2016 kl. 10:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband