Eindregin ósk um forsætisráðherra

 

  Mér er að mestu sama um það hvernig ný stjórn verður sett saman.  Það er að segja hvaða stjórnmálaflokkar mynda meirihluta og þar með ríkisstjórn.  Eða hvort að það verður minnihlutastjórn varin af utanstjórnarflokki.  Þetta eru hvort sem er allt kratar.  Það sem skilur á milli er smotterí sem er ekki á dagskrá næstu árin.  Til að mynda upptaka nýs gjaldeyris eða umsókn um inngöngu í Evrópusambandið.

  Næst á dagskrá er endurreisn heilbrigðiskerfisins,  bættur hagur öryrkja og aldraðra,  meiri spilling og meira pönkrokk.  Allir geta náð sátt um það.

  Mín ósk um nýja ríkisstjórn er að Óttar Proppe verði forsætisráðherra.  Hann hefur samið langbestu lögin af öllum sem sæti eiga á Alþingi. Hann hefur ort flottustu og skondustu textana.  Hann syngur töffaðast.  Hann hefur gert bestu myndböndin.  Sjá hér fyrir ofan og neðan.  Hann á flottustu fötin.

   


mbl.is Vilja Benedikt sem forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jens. Í daglegu tali hér heima hjá mér, þá kalla ég Óttar Proppé: FRÓÐA. (sá gamli og vitri).

Hann Óttar er svo samstarfsmarkmiðaður, ó-hégómlegur, ó-snobbaður, fjölvitur, og svo að sjálfsögðu gífurlega þroskuð og gömul sál.

Okkur vantar fleiri svona sálir eins og Óttar Proppé, hér á skerinu.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 4.11.2016 kl. 22:07

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Alltaf jafn gamansamur eða þannig sko!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 5.11.2016 kl. 12:51

3 Smámynd: Jens Guð

  Anna Sigríður,  Óttar er afskaplega fjölfróður.  Það kom berlega í ljós á meðan hann var í keppnisliði Reykjavíkur í Útsvari. Til viðbótar hef ég hlerað að vinnufélögum hans í borgarstjórna og á Alþingi þyki hann einstaklega þægilegur og kurteis í umgengni.  

Jens Guð, 5.11.2016 kl. 19:06

4 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  þessi lög er afskaplega skemmtyileg.  Og, já, gamansöm.

Jens Guð, 5.11.2016 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband