Stórmerkilegur fróðleiksmoli um áfengisfrumvarpið

  "Einu sinni, einu sinni enn," segir í dægurlaginu.  Þar er vísað til þess að einu sinni, einu sinni enn er á Alþingi lagt fram frumvarp til laga um að svalandi heilsudrykki megi selja í fleiri búðum en vínbúð íslenska ríkisins.  Sauðsvartur almúginn er ekkert að æsa sig yfir Borgun eða 44% launahækkun þingmanna og sveitastjórnarmanna á meðan hann er upptekinn við að þrefa um bjór.

  Víkur þá sögu að manni.  Sá heitir Ólafur Grétar Gunnarsson.  Hann er fræðimaður og veit hvaða áhrif sala á áfengi í matvörubúð hefur á konur.  Í aðsendri grein á www.kvennabladid.is upplýsir hann stöðuna:  Aukið aðgengi að áfengi veldur því að konur eru yngri þegar þær verða mæður.  

  Ég get staðfest að opnun vínbúðar í Ólafsvík (í barnafataverslun) í lok síðustu aldar olli því að kona í Ólafsvík varð yngri þegar hún varð móðir.  

fullar stelpur    

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þarna er loksins komin skýringin á því hvers vegna kona ein, sem ég kannast lítillega við, er jafngömul börnunum sínum. Búinn að velta þessu lengi fyrir mér. Kærar þakkir Jens, fyrir að benda á þetta. Ráðgátan er loksins leyst.

 Góðar stundir, með kveðju að sunnan.

Halldór Egill Guðnason, 17.2.2017 kl. 21:13

2 Smámynd: Gunnlaugur Hólm Sigurðsson

Æskubrunnurinn fundinn!

Gunnlaugur Hólm Sigurðsson, 17.2.2017 kl. 22:54

3 identicon

Íslandsvinurinn og laxveiðimaðurinn Eric Clapton ólst upp hjá afa sínum og ömmu og hélt að þau væru foreldrar sínir. Pat mamma hans bjó þar líka og Clapton hélt að hún væri systir sín, enda var hún bara fimmtán árum eldri. Clapton var orðinn níu ára þegar hann uppgötvaði að ,, stóra systir " var í raun móðir hans. Ekki löngu síðar uppgötvaði Clapton áfengi og drakk meira af því næstu áratugi en flestir aðrir. Oftast náði hann þó að spila betur á gítar en aðrir samtíma gítarleikarar, jafnvel þó að stundum þyfti hann að spila liggjandi sökum ölvunar. Keith Richards lognaðist eitt sinn út af á sviði í Þýskalandi og það í miðju gítarsólói, hann drattsðist svo á fætur og kláraði gítarsólóið óaðfinnanlega. Reyndar var laginu þá lokið af hinum í hljómsveitinni. Keith hefur sennilega drukkið manna mest af áfengi, en blandar hreinum appelsínusafa út í það að læknisráði í dag. Keith á áttræðisaldri er við góða heilsu að eigin sögn. Skjálfandi spritttunnan Ozzy Osbourne dugði ekki bara Sharon í rúminu, heldur fór hann að halda við hárgreiðsludömu frúarinnar af skjálfandi krafti. Það er auðvitað misjafnt hvernig fólk höndlar Bakkus, en allir sem á annað borð þyrtir í áfengi komast yfir það hvort sem það er selt í ríkinu eða matvöruverslunum. Eitt er þó óumdeilanlegt, það að bjórsala hefur stórbætt áfengismenningu landans. Áður lágu unglingar ælandi og spúandi af kókblönduðu Brennivíni og spíra.    

Stefán (IP-tala skráð) 17.2.2017 kl. 23:38

4 Smámynd: Már Elíson

Góður Stefán - Þú lest rétt í þetta. - Góð og hnyttin alvörufærsla.

Már Elíson, 18.2.2017 kl. 00:30

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Og þá væri ég líklega orðinn vel yfir sjötugt!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 18.2.2017 kl. 22:16

6 Smámynd: Jens Guð

Halldór Egill,  bestu kveðjur suðureftir.

Jens Guð, 19.2.2017 kl. 16:58

7 Smámynd: Jens Guð

Gunnlaugur Hólm,  flóknara er það ekki.

Jens Guð, 19.2.2017 kl. 16:58

8 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  þetta er snilldar "komment" hjá þér. Ekki síst lýsingarnar á Keith.

Jens Guð, 19.2.2017 kl. 17:03

9 Smámynd: Jens Guð

Már,  takk fyrir það.

Jens Guð, 19.2.2017 kl. 17:03

10 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B, góður!

Jens Guð, 19.2.2017 kl. 17:04

11 identicon

Noh bara eiginlega sama afsökun og með bannið á kannabis... hvítar konur mundu leggjast með svertingjum.. þetta er alveg næsti bæri við í rugli

DoctorE (IP-tala skráð) 20.2.2017 kl. 11:35

12 Smámynd: Jens Guð

DoctorE, kynblöndun er af hinu góða.  Innræktun er ólán.

Jens Guð, 20.2.2017 kl. 16:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband