Úrval annarra manna

  Lengst af hafa minningargreinar í Morgunblaðinu verið helsti vettvangur fyrir hrós.  Fólkið sem þar er til umfjöllunar er besta, gestrisnasta, greiðviknasta og skemmtilegasta fólk sem bréfritari hefur kynnst.  Nú bregður svo við að meðmælabréf valinkunnra manna til handa dæmdum kynferðisglæpamönnum ganga lengra í hólinu.

  Um alræmdasta barnanauðgara landsins segir (leturbreyting mín):  "Sem manneskja er hann einstaklega ljúflyndur,  þægilegur og umgengnigóður í hvívetna.  Hann hefur líka jákvætt hugarfar og að sama skapi glaðværð sem smitar út frá sér og skapar gott og hlýlegt andrúmsloft.

  Og:  "Öll hans framganga er til fyrirmyndar."

  Hrotta sem misþyrmdi, pyntaði og nauðgaði þroskaheftri konu er lýst þannig:  "Einstaklega opinn og hjartahlýr maður... traustur, heiðarlegur og góður vinur með einstaklega sterka réttlætiskennd." 

  Körfuboltakall sem nauðgaði 17 ára stúlku er sagður vera "til fyrirmyndar bæði innan sem utan vallar."

barnaníðingar


mbl.is Meðmælin veitt vegna starfsumsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Um minningargreinar í MBL orti G.G.:

Lífshlaup manna misjafnt snýst

margt um það að segja.

Í mogganum er þó alveg víst

að allir landsmenn deyja!

Sigurður I B Guðmundsson, 18.9.2017 kl. 08:22

2 identicon

Henson - Kynnisferðir - Solla græna í Gló - Tolli og svo þeir sem skilja ekkert í því hvernig nöfn þeirra lentu á svona plögg. Í mínum huga er þetta lið lítið skárra en gerendurnir sem það gerir að englum. 

Stefán (IP-tala skráð) 18.9.2017 kl. 08:40

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Í hvað ertu að vísa, Jens?

Halldór Egill Guðnason, 18.9.2017 kl. 10:42

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Uppreist æra..!!

Sá sem margan hefur að særa.

Mun hann einhvern tíman læara

þó liggi á hann kæra.

Uppræst æra,

er líka til að særa.

Þolendur til að æra.

Þvílík væra, að til sé

uppreist æra.

Sigurður Kristján Hjaltested, 18.9.2017 kl. 18:09

5 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  takk fyrir skemmtilega stöku.  Mín uppáhalds setning úr minningargreinum er:  "Og má segja að hún setti ekki svo skál af tvíbökum á borð að ekki stafaði af því mýkt og listfengi."  

Jens Guð, 18.9.2017 kl. 18:57

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  stærsta undrunarefnið er þessir meðmælendur sem koma af fjöllum og kannast ekkert við sín meðmæli.  Svo og þeir sem segjast hafa haldið að þeir væru að votta eitthvað allt annað en meðmæli um uppreist æru.   

Jens Guð, 18.9.2017 kl. 19:01

7 Smámynd: Jens Guð

Halldór Egill,  ég er að vísa orðrétt í ummæli fólks sem hlaðið hefur hrósyrðum á kynferðisglæpamenn.

Jens Guð, 18.9.2017 kl. 19:02

8 Smámynd: Jens Guð

Sigurður Kristján,  takk fyrir kröftuga vísu um uppreist æru skandalinn.  

Jens Guð, 18.9.2017 kl. 19:04

9 identicon

Það er líka skondið þegar ,, hún vr mikil gleðikona " er skotið inn í minningargreinar.

Stefán (IP-tala skráð) 18.9.2017 kl. 22:23

10 Smámynd: Jens Guð

Stefán, það orkar skemmtilega tvímælis. laughing

Jens Guð, 19.9.2017 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband