Fréttablaðið er að standa sig

  Ég var að hlusta á útvarp.  Þar var nýr framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík skilgreindur sem rauðsokkulisti.  Ég veit ekkert um réttmæti þess.  Vel liðnum núverandi borgarfulltrúum er sparkað út í hafsauga.  Þakkað góð störf með því að vera hent í ruslið.

  Í stað þeirra er raðað á framboðslistann konum sem fáir vita deili á.  Þeirri sem stillt er upp í 2. sæti er sögð vera frambjóðandi Jóns Ásgeirs/Baugs/365 miðla.  Dóttir eða tengdadóttir ritstjóra Fréttablaðsins.

  Kannski er það sterkur leikur að bjóða fram í 1. sæti frambjóðanda Morgunblaðsins og í 2. sæti frambjóðanda Baugsmiðla.  Það er skotheld uppskrift á góðri fjölmiðlaumfjöllun stærstu fjölmiðla landsins.  Munar um minna.  

  Fréttablaðið er komið á flug.  Nýverið hleypti það af stokkum nýrri og ferskri netsíðu.  Hún mætir sterk til leiks.  Birtir allt aðra áhugaverða punkta en rata í prentútgáfu Fréttablaðsins.  Þar á meðal HÉR

   

    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Spurning hvort Áslaug Friðriksdóttir, Kjartan Magnússon og þeirra fólk muni yfir höfuð kjósa Sjálfstæðisflokkinn í komandi kosningum ?

Stefán (IP-tala skráð) 24.2.2018 kl. 12:53

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sonur NATO-Manga gæti auðvitað verið með sérframboð af sjálfum sér og kallað það D2, eða jafnvel R2-D2.

En framboðið af lögfræðidúkkulísum í Sjálfstæðisflokknum er meiri en eftirspurnin.

Nema í rúminu, eins og dæmin sanna, Jensinn minn.

Image result for r2d2 costume

Þorsteinn Briem, 24.2.2018 kl. 13:18

3 Smámynd: Jens Guð

  Stefán,  á Fésbók og í athugasemdakerfum netmiðla hafa margir dyggir kjósendur xd lýst yfir óánægju með brottrekstur Áslaugar og Kjartans.  Sumir segjast ætla - í mótmælaskyni - í fyrsta skipti á ævinni ekki kjósa D.  Ég er ekki kjósandi D-lista en hef mætur á Kjartani og Áslaugu.  Í borgarstjórnartíð Ólafs F. kynntist ég þeim af góðu einu;  heiðarleika og hreinskiptni.  Hið sama er ekki að segja um alla aðra borgarfulltrúa.  Langt í frá.

  Þó að framboðslisti xd leggist illa í marga gamalgróna kjósendur þá er of snemmt að spyrja að leikslokum.  Kannski luma óþekktu dömurnar á listanum á einhverju sem á eftir að heilla kjósendur.  Í yfirlýsingu frá Áslaugu segir að vísu að þær séu á hennar línu (les: kratar).  

  Ég er ekki vel inni í innanhúsmálum xd.  Bæði í dag og í gær hef ég hitt menn sem halda því fram að framboðslistinn sé tiltekt Guðlaugs Þórs.  Ég veit ekkert um þessa hluti.     

Jens Guð, 24.2.2018 kl. 18:56

4 Smámynd: Jens Guð

Steini,  gaman að heyra frá þér eftir langt hlé.  En þú ert beittur sem fyrr!

Jens Guð, 24.2.2018 kl. 18:59

5 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það hefur vissulega stundum gerst í prófkjörum hjá öllum flokkum að reynt og dugmikið fólk dettur út af lista. Við því er ekkert að segja því þessu ráða almennir flokksmenn. Enginn klíkuskapur þar. En það er fáheyrt að gengið sé fram á þennan hátt. Horfið frá lýðræðishefð og sett á uppstillinganefnd og reyndum, vel liðnum og hæfum fulltrúum síðan skákað út fyrir óreynt fólk sem enginn veit nein deili á. Ég er sannfærður um að þetta á eftir að draga dilk á sér og feginn er ég að búa á Nesinu og þurfa ekki að velja á milli þess að kjósa íhaldið með óbragð í munni eða þá einhvern annan, líka með óbragð í munni. Betra að gera bara kosið nesíhaldið án óbragðs :)

Þorsteinn Siglaugsson, 24.2.2018 kl. 19:51

6 identicon

Jens. Kvartað er yfir því þessa dagana, að ekki sé verið að ræða mikilvæg löggjafaþingsins mál? Í þjóðleikhúsinu við Austurvöll?

Á hvaða nótum ætli umræðan sé?

Á hvaða tungumáli ætli umræðan sé?

Er ekki sagt að söngur sé á sama tungumáli (tónum) í öllum ríkjum og hjá öllum þjóðflokkum? Söngurinn sameinar ólíka, og allt það dæmi?

Gætu Íslendingar samt ekki í sinni heimsfrægu villimanna-dómaraflækjufóta lögmanna-"málfræði"-túlkunarhefðarvenju, sokkið enn dýpra í gamla og rótgróna drullupytt drottnunar-græðginnar? Þ.e.a.s: að rangtúlka lagabókstafi vest-norrænna "laga"?

Eða þannig?

Þetta er freklega hrár húmor hjá mér, en þú ert nú vonandi enn með umburðarlyndis húmor fyrir vitleysunni í mér, hér á þinni síðu.

Reynslan er strangur kennari, og segir mér að ekkert lagasafn geti orðið til góðs, nema upprunalegi tilgangurinn sé hreinn og lögverjandi. Beggja megin við hafið.

Jens minn. Ekki dettur mér í hug að þú sért strangur kennari, síður en svo. En það eru því miður ekki allir heimsstjórarnir eins mannúðarmennskir og þú.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 24.2.2018 kl. 22:44

7 identicon

Steini Briem, ertu að tala um "game over"?

,,Lífsleiknin" er aldrei búin. Lífsleiknin var, er, og verður alltaf verkefni allra ólíkra og jafn merkilegra og tilverurétthárra. En ekki bara þeirra sem telja sig hafa flækjufóta-einræðisruglara-dómsvöldin á jörðinni.

Ísland er enn á jörðinni.

Jafnvel þótt of margir hæstaréttardómarar og líklega flestir lögmenn telji að eyjaskeggja-baktjaldamafían okurlánagræðgibankandi, lífeyrissjóðarænandi, lögmannavarðhegðunarvanda-sveita-bjögunar-liða-blindaðir og helbláir í "ljósa"-norðrinu, séu því miður enn fyrir utan allra siðmenntaðra réttarríkja lögverjandi viðmið.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 25.2.2018 kl. 00:45

8 identicon

Jú Jens, ég þekki alveg nógu marga ,, stuðningsmenn " Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík til að vita að það er mikil óánægja í gangi með þessa uppstillingu. 

Stefán (IP-tala skráð) 25.2.2018 kl. 12:16

9 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ýtti á HÉR og sá þá fjallmyndalegan mann en kem honum ekki alveg fyrir mér!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 25.2.2018 kl. 12:59

10 Smámynd: Jens Guð

Þorsteinn,  tilveran er einfaldari hjá ykkur á Nesinu en hjá okkur í Reykjavík1

Jens Guð, 25.2.2018 kl. 16:35

11 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður,  ég er einstaklega ljúfur kennari!

Jens Guð, 25.2.2018 kl. 16:37

12 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  góður! laughing

Jens Guð, 25.2.2018 kl. 16:39

13 Smámynd: Jens Guð

Stefán (#8), á móti vegur að þessi kvennalisti slær út af borðinu áform Sóleyjar Tómasdóttur og fleiri um að endurreisa Kvennalistann.

Jens Guð, 26.2.2018 kl. 06:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband