Vilt þú syngja á jólatónleikum?

Norska söngkonan Sissel Kyrkjebø verður með jólatónleika í Reykjavík núna fyrir jólin (af hverju eru aldrei jólatónleikar eftir jól?). Hún leitar að íslenskri söngkonu sem er til í að syngja dúett með henni. Skiptir engu máli hvort viðkomandi er þekkt eða óþekkt. Ert þú til? Afritaðu þá á eftirfarandi slóð copy/paste:   http://sissel.net/singwithsissel/ 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Frábært, það vantaði alveg jólatónleika þessi jólin!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 27.9.2018 kl. 11:03

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  líka vantar jólahlaðborð. 

Jens Guð, 28.9.2018 kl. 19:52

3 identicon

,, Jólini eru stóra gleðihátíðin, har kærleiki, hugni og felagsskapur valda " eins og okkar bestu vinir færeyingar orða það. Offramboð verður væntanlega sem fyrr af jólatónleikum og jólahlaðborðum á Íslandi. En það er ekki ætlað öllum íslendingum að komast á slíkt. Tæplega þeim sem lepja dauðann úr skel, svo sem öryrkjum, eftirlaunaþegum, leigjendum eða arðrændum innflytjendum í veitinga og ferðabransanum. Jólatónleikar og endalaus jólahlaðborð eru hins vegnar sniðin fyrir útgerðarmenn sem nú greiða sér milljarða arðgreiðslur sem aldrei fyrr. 

Stefán (IP-tala skráð) 28.9.2018 kl. 21:14

4 identicon

Já Stefán.Það vantar eiginlega eitt jálahlaðborð með djúpsjávarréttum fyrir okkur neðri stéttar.frown. En í alvöru talað: þetta er laukrétt hjá þér. Heyrðu já- kannski mætti vera með laukrétt.

Jósef Smári Ásmundsson (IP-tala skráð) 29.9.2018 kl. 09:35

5 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  jólin eru hátíð ljóss og friðar,  eins og við í Ásatrúarfélaginu köllum það.  Blessunarlega hafa margir efni á því að fjölmenna með fjölskylduna og vini og vandamenn á jólahlaðborð þar sem skammturinn kostar um 10 þúsund kall á kjaft.  Leiðinleg músík innifalin.  Einhverra hluta vegna skilar brauðmolakenningin ekki þeim kosti til öryrkja og ellilífeyrisþega að taka þátt í veislunni - þrátt fyrir orð þáverandi fjármálaráðherra korteri fyrir bankahrun:  "Drengir,  sjáið þið ekki veisluna?"

Jens Guð, 29.9.2018 kl. 21:27

6 Smámynd: Jens Guð

Jósef Smári,  já, og þá frekar músík með Gentle Giant en skallapoppurunum. 

Jens Guð, 29.9.2018 kl. 21:28

7 identicon

Ef jólin fást keypt fyrir peninga þá eru þau harla lítils virði. Ekki að ég sé trúaður um of en jólagleði verður maður að finna hjá sjálfum sér og það kostar ekki mikið.

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 30.9.2018 kl. 07:34

8 Smámynd: Jens Guð

Sigurður Bjarklind,  ég kvitta undir það.

Jens Guð, 30.9.2018 kl. 09:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband