Bráðskemmtileg bók

 

  Út var að koma bókin "Hann hefur engu gleymt... nema textunum!"  Undirtitillinn er "Gamansögur úr íslenska tónlistarheiminum".  Höfundur er Guðjón Ingi Eiríksson.  Undirtitillinn lýsir bókinni.  Gamansögunum fylgja áhugaverðir fróðleiksmolar um tónlistarmenn og heilmikil sagnfræði.

  Sögurnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar.  Spanna marga áratugi og ná til margra músíkstíla. Örfá dæmi:

  "Hljómsveitin Upplyfting á sér langa sögu og merka og hafa margir velt því fyrir sér hvernig best væri að þýða nafn hennar,  ef hún ákvæði nú að herja á útlönd.  Hinir sömu hafa væntanlega allir komist að sömu niðurstöðunni,  nefnilega... Viagra!

  Karlakórinn Fóstbræður fór í söngferð til Algeirsborgar í Alsír fyrir margt löngu síðan.  Þegar kórinn kom aftur heim varð Bjarna Benediktssyni,  þáverandi forsætisráðherra, að orði:  "Þá er Tyrkjaránsins hefnt!"

  Nokkrum árum eftir að Megas hafði búið á Siglufirði,  eins og fyrr greinir,  hélt hann tónleika þar.  Opnunarorð hans voru:  "Mér er sagt að ég hafi einhvern tímann búið hérna." 

  Hann hefur engui

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Trúi öllu sem þú segir!!

Sigurður I B Guðmundsson, 30.10.2019 kl. 22:00

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  ég líka!

Jens Guð, 31.10.2019 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband