Ţegar Harrison hrekkti Phil Collins

 

  Ýmsir tónlistarmenn líta á Phil Collins sem fígúru.  Eđa hafa ađ öđru leyti lítiđ álit á persónunni.  Til ađ mynda Liam Callagher.  Bítlarnir Paul McCartney, Ringo Starr og George Harrison líka.  

  1970 fékk sá síđastnefndi Phil til ađ spila á bongótrommur í laginu "Art of dying" fyrir plötuna flottu "All things must pass".  Hann var ţá í hljómsveitinni Flaming Youth.  Ţetta var nokkru fyrir daga Brand X og Genesis. 

  Ţegar platan kom út var bongótrommuleikur Phils fjarri góđu gamni.  Ţađ var áfall fyrir unga manninn sem dýrkađi Bítlana og hafđi stúderađ trommuleik Ringos út í hörgul.  Hann kunni ekki viđ ađ leita skýringar fyrr en mörgum árum síđar.  Ţá var hann orđinn frćgur og kominn međ sjálfstraust til ţess.

  George brá á leik.  Hann var alltaf stríđinn og hrekkjóttur.  Hann fékk Ray Cooder til ađ koma í hljóđver og spila afar illa og klaufalega á bongótrommur undir lagiđ.  Svo skemmtilega vildi til ađ í lok upphaflegu hljóđritunarinnar á laginu heyrist George kalla:  "Phil,  viđ hljóđritum ţetta aftur og nú án bongótrommuleiks."  

  Ţessa upptöku međ lélega bongóleiknum spilađi George fyrir Phil.  Honum var verulega brugđiđ; miđur sín yfir ţví hvađ bongótrommuleikur "hans" var ömurlegur.  Einnig viđ ađ heyra George í raun reka hann.  

  Phil sá sem George ávarpađi í upptökunni var ekki Collins heldur upptökustjórinn, Phil Spector.   Mörgum árum síđar sagđi George kauđa frá hrekknum.  Ţungu fargi var af honum létt. 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Phil Collins er einn allra besti trommuleikari sem uppi hefur veriđ í rokki og jazzrokki, en morđinginn Phil Spector verđskuldar hinsvegar ađ vera kallađur fígúra eđa ţađan af verra. 

Stefán (IP-tala skráđ) 21.2.2020 kl. 14:53

2 Smámynd: Jens Guđ

Stefán,  ég tek undir hvert orđ og geng út frá ţví sem vísu ađ Bítlarnir myndu einnig gera ţađ.

Jens Guđ, 22.2.2020 kl. 07:43

3 identicon

Ţetta er skkemmtileg saga og gaman ađ heyra Phil sjálfan segja hana í sjálfsćvisögunni . Til á Storytel.

Ólafur Ţórir Auđunsson (IP-tala skráđ) 23.2.2020 kl. 17:17

4 Smámynd: Jens Guđ

Ólafur,  takk fyrir ţetta innlegg.  Ég vissi ekki af bókinni. 

Jens Guđ, 23.2.2020 kl. 19:48

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.