Fjölmiðlar ljúga gróflega

  Íslenskir fjölmiðlar hafa hamrað á því dögum og vikum saman að coronaveiran - Covid 19 - sé komin til allra Norðurlandanna.  Framan af var reyndar hengt við fréttina að Ísland væri undanskilið.  Svo kom veiran til Íslands. 

  Stóra lygin í þessum fréttaflutningi er að veiran hefur ekki borist til Færeyja (í þessum skrifuðu orðum).  Hafa Færeyingar þó hvergi dregið af sér að spígspora um Tenerife og Ítalíu.

  Ólíklegt er að Færeyingar sleppi við veiruna til frambúðar.  Samt.  Færeyingar eru heilsubesta þjóð í Evrópu (og kannski í heiminum?).  Líka hamingjusamasta þjóð Evrópu (og kannski heims?).  Atvinnuþátttaka Færeyinga er sú mesta í Evrópu.  Bæði meðal karla og kvenna.  85,4 Færeyinga, 15 ára og eldri,  vinna sér til gagns og gamans.  Að auki eru Færeyingar frjósamasta þjóð Evrópu.  Þannig mætti áfram telja.  

  Annað en þó þessu skylt.  Samkvæmt óstaðfestum fréttum greindist maður í N-Kóreu með veiruna.  Hann var skotinn með það sama. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hamingjan fylgir þeim sem ber virðingu og elskar land/þjóö sína. Til hamingju Færeyingar!

Helga Kristjánsdóttir, 4.3.2020 kl. 02:27

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Æi þjóö-/átti að vera þjóð.

Helga Kristjánsdóttir, 4.3.2020 kl. 02:29

3 identicon

Hönd í hönd við dönsum hringdans og syngjum Orminn langa. Spritt verkar best innvortis!

sigurður bjarklind (IP-tala skráð) 4.3.2020 kl. 06:26

4 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Fréttastofur birta helst ekki jákvæðar fréttir. Þess vegna er lítið sem ekkert fjallað um Færeyjar.

Sigurður I B Guðmundsson, 4.3.2020 kl. 10:42

5 identicon

Veiran hefur borist til Færeyja, allavega eitt tilfelli. Mér er sagt að það séu 63 skæðar veirur á Alþingi.  

Stefán (IP-tala skráð) 5.3.2020 kl. 12:12

6 identicon

Fékk aðeins bakþanka vegna neðanmálsins frá N-Kóreu. Ætli Svandís viti af þessu?

sigurður bjarklind (IP-tala skráð) 5.3.2020 kl. 12:47

7 Smámynd: Jens Guð

Helga,  ég tek undir hvert orð!

Jens Guð, 5.3.2020 kl. 20:34

8 Smámynd: Jens Guð

Sigurður Bjarklind (# 3),  ég votta það!

Jens Guð, 5.3.2020 kl. 20:35

9 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  þetta er áreiðanlega rétt hjá þér.

Jens Guð, 5.3.2020 kl. 20:36

10 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  eins og segir í pistlinum þá þótti mér ólíklegt að Færeyingar myndu sleppa við veiruna til lengri tíma.  Svo kom þetta dæmi upp. Mig grunar að ekki verði dauðsfall.

Jens Guð, 5.3.2020 kl. 20:41

11 Smámynd: Jens Guð

Sigurður Bjarklind (# 6),  við skulum ekki segja henni frá þessu.

Jens Guð, 5.3.2020 kl. 20:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband