Skemmtilegt námsefni

  Þetta eru skrýtnir tímar.  Við erum flestöll í sjálfskipaðri sóttkví.  Eða forðumst að minnsta kosti margmenni og óþarfa heimsóknir og ráp.  Þetta er einkar erfitt ástand fyrir börn.  Þá er gott að vita af kennslubókunum Lærum saman.  Þær eru fjórar saman í handhægri öskju ásamt spennandi verkefnabók, fjórum spilastokkum og lykilorði að hljóðbókum með öllum sögunum og níu myndböndum.

  Verkefnabókin inniheldur æfingar og fylgigögn; föndur, leiki og spil. 

  Pakkinn er miðaður við aldurshópinn 5 - 8 ára.  Sögubækurnar segja frá systkinum sem eru einmitt 5 - 8 ára.  Þau fást við ýmislegt áhugavert sem býr þau undir skólagönguna sem framundir er.  Uppskriftin er þannig að hún veki löngun og áhuga barna á að læra meira.

  Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar af Brimrúnu Birtu Friðþjófsdóttur.  Höfundur efnisins er Kristín Arnardóttir.

  Nánar um þetta á www.laerumsaman.is 

Laerum_saman_pakki  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Lærum um tölur er rétta jólagjöfin handa Sjálfstæðisflokknum. cool

Þorsteinn Briem, 7.11.2020 kl. 15:44

2 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Myndefnið er vafasamt. Það er enginn með grímu. 

Þorsteinn Siglaugsson, 7.11.2020 kl. 16:49

3 Smámynd: Jens Guð

Þorsteinn Briem,  góður að vanda!

Jens Guð, 7.11.2020 kl. 18:15

4 Smámynd: Jens Guð

Þorsteinn Siglaugsson,  áreiðanlega var myndefnið afgreitt fyrir daga Covid.

Jens Guð, 7.11.2020 kl. 18:16

5 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Svona á að læra stafina: Á: Ási og Ása. Ási sá Ásu og Ása sá Ása. Ási á Ásu. Ási og Ása mása og blása. Pása. Næsti stafur L: Lóa og Lalli. Lalli lá á Lóu. Lalli tók lilla. Sko lilla í lófa á Lalla sagði Lóa. Læt þetta duga núna. 

Sigurður I B Guðmundsson, 7.11.2020 kl. 21:31

6 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  mig rámar í að hafa einmitt lært stafina svona. 

Jens Guð, 7.11.2020 kl. 22:17

7 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ég lærði gagn og gaman, ef ég man rétt. Og það virkaði ágætlega.

En grímurnar, ábyggilega ekki langt í að það verði skilgreint sem hatursáróður að setja fram námsefni þar sem börn eru ekki með grímur.

Hefur annars einhver velt því fyrir sér hvernig fer með félagsþroska barna ef þau sjá aldrei framan í hvert annað?

Erum við búin að missa vitið?

Þorsteinn Siglaugsson, 7.11.2020 kl. 23:57

8 Smámynd: Jens Guð

Þorsteinn Siglaugsson,  ég hef misvísandi upplýsingar um grimur.  11 ára afadóttir min er með grímu í sínum skóla.  Ekki 8 ára bróðir hennar.  

Jens Guð, 8.11.2020 kl. 11:56

9 identicon

Ég hélt þetta væri umfjöllun um kristilega kvennafræðarann á www.laerinsaman.is

Ragnar (IP-tala skráð) 8.11.2020 kl. 21:59

10 Smámynd: Jens Guð

Ragnar,  takk fyrir hnyttið komment!

Jens Guð, 9.11.2020 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband