Til hamingju Ísland!

son of a point 
Hey þú, ógeðslega töff, ég er að tala við þig.
Ég er Son of a Point shining in the light.
Ég veit þú þráir mig.
Born in Selfoss, gemmér nú einn koss, farðu ekki í kross.
Ég veit ég vinn fokkings Baugsfeðga,  allir hinir hafa tapað.
.
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér!
Ég er Son of a Point og þið haldið með mér.
European Nation fær sko flog er ég kem.
Ég er fæddur til að vinn´etta, tremma í hel!
Töff, töff, töff.
.
Mín mynt, ógeðslega töff, ekkert evru ógeð.
Hún er töff, ókey, hún er ekki gay.
Ég er kominn hér to stay!
Evrusinnarnir eru bólugrafnir en ég er ókey.
.
Þið elskið mig, þið dýrkið mig, sætt, en samt eitthvað svo glatað.
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér!
Ég er Son of a Point og þið haldið með mér.
European Nation fær sko flog er ég kem.
Ég er fæddur til að vinn´etta, tremma í hel!
Töff, töff, töff.
.
Ísland.
Til hamingju Ísland. Til hamingju Ísland.
Til hamingju Ísland. Til hamingju Ísland.
Til hamingju Ísland. Til hamingju Ísland.
Til hamingju Ísland.
.
Halló!  Er þetta Ísland?
Ógeðslega mikið til hamingju með að ég er búinn að ná Kaupþingi niður,
skilurðu...?
Sjáumst!
.
Til hamingju Ísland með að ég fæddist hér!
Ég er Son of a Point og þið haldið með mér.
European Nation fær sko flog er ég kem.
Ég er fæddur til að vinn´etta, tremma í hel!
Töff, töff, töff.

mbl.is Efast um að Davíð eigi við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Skál ertu Jens

Ómar Ingi, 25.11.2008 kl. 20:13

2 Smámynd: Heidi Strand

Heidi Strand, 25.11.2008 kl. 22:10

3 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Hahaha töff....Samdir þú þetta Jens?

Siggi Lee Lewis, 25.11.2008 kl. 22:36

4 Smámynd: Jens Guð

  Textinn er eftir Silvíu Nótt.  Ég rakst á hann fyrir klaufaskap áðan og sá í hendi mér að með því að skipta út nafni Silvíu í stað Son of a Point þá fjallar textinn um atburði líðandi stundar. 

  Ljósmyndina fékk ég senda með þeim upplýsingum að hana eigi að nota á frímerki.  Hinsvegar væri beðið með prentun á frímerkinu vegna þess að Geir myndi sleikja það báðu megin.  Ég hef grun um að það sé lygi svo ég nota myndina frekar við þetta kvæði heldur en bera út óstaðfesta sögu.

Jens Guð, 25.11.2008 kl. 23:27

5 Smámynd: Jens Guð

  Til gamans má geta að öldruð kona sem ég þekki keypti algjörlega Silvíu Nótt.  Hún fattaði ekki grínið en var mjög hneyksluð yfir að þessi heimska Silvía Nótt væri með sjónvarpsþátt.  "Þetta er svo vitlaus stelpa að það er með ólíkindum að henni sé hleypt í sjónvarpið," sagði sú gamla og lét þess getið að henni væri hreinlega illa við "stelpukvikindið".

Jens Guð, 26.11.2008 kl. 01:52

6 identicon

Hér er slóð á frétt sem tengist blogginu þínu í sjálfusér.

http://vf.is/Frettir/38550/default.aspx

Álfheiður (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 12:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.