Heiðra minningu Helga Hóseasonar með sönglagi

helgihóseason1

  Simmi og Jói kallast tvíeyki sem þekktast er fyrir að vera kynnar í sjónvarpsþáttunum Ædol á Stöð 2.  Þeir halda úti bloggsíðu og - að ég held - útvarpsþætti.  Ég er ekki klár á hvaða útvarpsstöð.  Hef þó grun um að það sé á Bylgjunni.  Nú hafa þessir drengir hljóðritað sönglag til að heiðra minningu Helga Hóseasonar.  Lagið má heyra á:  http://blogg.visir.is/simmiogjoi/2009/09/12/vi%c3%b0-hei%c3%b0rum-minningu-helga-hoseassonar-me%c3%b0-lagi-mp3/#comments.  Þegar smellt er á rauðlitað nafn Helga hefst spilun á laginu.

  Þetta er ljómandi gott hjá drengjunum og fallegt uppátæki.  Áreiðanlega eiga þeir eftir að setja lagið einshversstaðar á netið þar sem hægt verður að hala því niður. 

  Til gamans má rifja upp að rokksveitin Atomstöðin gaf fyrir nokkru út plötu sem var tileinkuð Helga Hóseasyni.  Helgi tók því vel en þótti músíkin viðbjóður (sennilega notaði hann annað orð).  Enda lítið fyrir rokkið. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Þessi snillingur er án efa ekki hress með þetta uppátæki þessarar rugludalla.

Ómar Ingi, 13.9.2009 kl. 23:05

2 Smámynd: Jens Guð

  Það væri á skjön við karakterinn frábæra,  Helga Hóseson,  að vera hress með þau viðbrögð sem fráfall hans hefur framkallað:  Yfir 20 þúsund undirskriftir um að honum verði reistur minnisvarði.  Og að minning hans sé heiðruð með guðspjalla-sálmi eftir kanadíska gyðinginn Leonard Cohen,  Hallelúja.  En samt.  En samt. 

  Til gamans má rifja upp að eitt sinn var verið að jarðsyngja vinnufélaga Helga.  Helgi mætti prúðbúinn og nýrakaður vinnufélaganum til virðingar við jarðarförina.  En stóð fyrir utan kirkjuna og þegar vinnufélaginn var færður í gröf stóð Helgi fyrir utan kirkjugarðinn og tók ofan höfuðfat hinum látna til virðingar á meðan aðstandendur krossuðu yfir kistuna. 

Jens Guð, 13.9.2009 kl. 23:33

3 Smámynd: Gunnar Ásgeir Ásgeirsson

Jú rétt er það Jói og Simmi eru með þáttinn sinn á Bylgjunni sem er bara mjög skemmtilegur.

Þeir voru einmitt að tala um minnisvarðann fyrir Helga Hós núna í síðasta þætti, voru að tala um að það væri sniðugt að hanna stittuna þannig hægt væri að skipta út skiltum sem minnisvarðinn mun bera í eftirmynd Helga. Voru að tala um að það væri sniðugt að skipta mánaðarlega um skilti.

Ég er nú samt með betri hugmynd.. Væri ekki sniðugra að koma fyrir litlu fléttiskilti og hafa þar svona slides show með bestu skiltunum hanns Helga. Þannig að stittan af helga mun bera svona skilti sem stittan heldur á og ef það er fléttiskilti þá er hægt að láta skiltin skiptast automatískt á 10 sec fresti.

Hægt er að hala niður þessu lagi þeirra af heimasíðu bylgjunnar:
http://bylgjan.is/?PageID=2176 -hér

Gunnar Ásgeir Ásgeirsson, 14.9.2009 kl. 01:28

4 Smámynd: Jens Guð

  Gunnar Ásgeir,  takk fyrir hlekkinn og fróðleiksmolana.  Þetta er góð hugmynd með flettiskiltið.

Jens Guð, 14.9.2009 kl. 19:50

5 Smámynd: hilmar  jónsson

Ég heiðraði Helga með lagi fyrir 2 árum. ( Hver skapaði sýkla, sjá tónlistarspilara hjá mér)

hilmar jónsson, 14.9.2009 kl. 22:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband