Biskup níðir Magnús Skarphéðinsson

  Í þar síðustu jólapredikun biskups íslensku ríkiskirkjunnar,  Karls Sigurbjörnssonar,  sagði:  "...Ég trúi ekki á jólasveininn,  fremur en nokkur heilvita,  fullorðin manneskja."  Þetta er dálítið hrokafull afstaða.  Magnús Skarphéðinsson,  músa-,  geimveru- og hvalavinur,  trúir - eins og margir aðrir - á tilvist jólasveina og hefur lýst því yfir í viðtali hjá Markúsi Þórhallssyni á Útvarpi Sögu að hann trúi á tilvist gömlu íslensku jólasveinanna.  Magnús færði meira að segja góð rök fyrir tilvist þeirra.  Eða réttara sagt vísaði í frásagnir fólks sem hefur séð þá eða orðið vart við tilvist þeirra að öðru leyti. 

  Magnús Skarphéðinsson er merkilegur náungi og það er ljótt af biskupi að úrskurða hann ekki heilvita. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Reyndar hefur biskup gengið lengra en það því hann er afskaplega mótfallinn allri nýaldarhyggju.

Þegar Karl var prestur í Hallgrímskirkju boðaði hann nýaldarfólk á fund í kirkjuna.  Þangað mætti nýaldarliðið opið og spennt, hlakkaði til að ræða við séra Karl.   En þegar það kom á staðinn kom í ljós að Karl vildi ekkert við þau ræða, heldur hélt hann yfir þeim reiðilestur og hundskammaði þau fyrir andkristilega hegðun.

Ég er hræddur um að margir íslendingar sem trúa á ýmislegt sem ekki samræmist kristinni kenningu (tja, miðla!) geri sér ekki grein fyrir því hvaða skoðun biskupinn og aðrir svartstakkar hafa á slíkri villutrú.

Matthías Ásgeirsson, 17.12.2007 kl. 00:13

2 Smámynd: Bono

Tær snilld! Skyrgámur eða Jave!

Bono, 17.12.2007 kl. 00:19

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Ég hef tvívegis rætt við álfa, sem liðsinntu mér og vísuð mér til vegar. Í öðru þessara tilvika leiddi álfurinn mig þá sex ára gamlann hönd í hönd, þar til bærinn var í augsýn. Nú skilst mér að gömlu jólasveinarnir séu útlitslega ekki frábrugðnir álfum. Nú fullyrðir biskupinn að jólasveinar séu ekki til og þá velti ég því fyrir mér hvort fólk sé nokkuð að rugla þessu tvennu saman og sjái í raun álfa þegar það telur sig sjá jólasveina?  Þessu þyrfti ég að spyrja biskupinn að.

Sigurður Þórðarson, 17.12.2007 kl. 00:26

4 Smámynd: Jens Guð

  Jóhann,  ég er ekki jafn sannfærður um raunverulega tilvist jólasveinsins og Magnús.  En Magnús hefur vitnisburð konu sem hefur séð gamla íslenska jólasveininn berum augum.  Til viðbótar hefur hann frásögn vörubílstjóra sem var að keyra fjarri mannabyggðum.  Þá skyndilega helltist yfir hann sterk hangikjötslykt í - að mig minnir - heilan klukkutíma fremur en tvo.  Síðar uppgötvaði vörubílstjórinn að þetta var einmitt dagurinn sem kjötkrækir kom til byggða. 

  Næstu setningar biskups voru:  "Það er munur á leik og alvöru.  Börn skynja það.  Börn læra að greina á milli sannleika og blekkinga.  Þau þekkja leikinn og ævintýrið. En þau vita líka hvað er satt og heilt.  Það er mikil synd þegar hinir fullorðnu gera þar ekki greinarmun á,  og rugla börn beinlínis í ríminu. Jólaguðspjallið er heilagur sannleikur."

  Við þetta er því að bæta að í Nýja testamentinu eru alls ekki samhljóða frásagnir af atburðarrás.  Heilagur sannleikur er þess vegna misvísandi.

  Matthías,  meirihluti Íslendinga trúir á tilvist huldufólks,  álfa og annarra vætta.  Hvað hátt hlutfall Íslendinga leitar til miðla,  spákvenna,  stjörnuspekinga?  Þetta er vinsælt útvarpsefni.  Rétt um helmingur Íslendinga (52%) telur sig vera kristinn. 

  Haukur,  það þarf ekki að vera annað hvort Skyrgámur,  Jahve eða Óðinn og Þór.  Þetta getur allt verið í sama pakkanum.

  Haukur,   

Jens Guð, 17.12.2007 kl. 00:38

5 Smámynd: Jens Guð

  Siggi,  álfar spila stóra rullu í íslensku samfélagi.  Ekki síst í vegagerð.  Ítrekað hefur verið samið við álfa um vegalagningu.  Jafn oft hefur tillit verið tekið til álfabyggða við vegalagningu á þann hátt að beygt hefur verið framhjá þeim.

  Anna,  ég hef heldur aldrei séð guð (þennan sem úrskurðaði Gyðinga sem sína útvöldu þjóð).  Ég hef eiginlega meiri trú á tilvist íslenska jólasveinsins.  Að minnsta kosti huggnast mér betur hugmyndafræði hans. 

Jens Guð, 17.12.2007 kl. 00:44

6 identicon

Alltaf þegar ég heimsótti móðurafa minn í Breiðholtinu sagði hann mér tvenns konar sögur, annars vegar fallegar álfasögur úr Svarfaðardalnum og hins vegar ljótar sögur af Steingrími Hermannssyni, ex ráðherra, en hann var eini maðurinn sem afi lagði fæð á. Afi sá mikið af álfum og huldufólki á sinni löngu æfi, enda lifði hann öldum saman, fæddist árið 1899 og dó rúmlega 100 árum seinna. Afi minntist hins vegar aldrei á að hann hefði séð Guð, hvorki í skötulíki né annars konar líki. Hvor er þá meiri rugludallur, afi eða biskupinn?!

Eitt sinn tók ég strætó eftir að hafa heimsótt afa og var þá ekki téður Magnús Skarphéðinsson steinbítsbróðir undir stýri í  annars tómum vagni og tuttugu mínútum of seinn. En síðar kom reyndar í ljós að þetta var marbendill í líki Magnúsar og annar er í líki bróður hans, eins og ég hef áður greint frá í skýrslu til bandaríska sendiráðsins.

Jólasveinarnir hafa árum saman komið í Þjóðminjasafnið síðustu dagana fyrir jól, þannig að það er nú meira en lítið einkennilegt ef biskupinn trúir ekki á tilvist þeirra. Hann ætti að prófa að berja einn þeirra í hausinn með krossi og athuga hvað skeður.

Steini Briem (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 00:56

7 Smámynd: Jens Guð

  Steini,  eins og ég hef mikla andúð á Framsóknarflokknum þá hefur álit mitt á Steingrími vaxið með árunum.  Í mínum huga er alveg klárt að afi þinn var ekki minni rugludallur en biskup ríkiskirkjunnar.

  Fyrir aldarfjórðungi eða svo tók ég strætó sem Magnús ók.  Hann tók óvæntan aukarúnt að Stjörnubíói vegna þess að hópur strætófarþega var að fara í bíó þar.  Mér þótti það bara flott.

Jens Guð, 17.12.2007 kl. 01:43

8 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Jens, ég þekki þessar tölur nokkuð vel - við í Vantrú höfum verið dugleg við að benda á þær.  Ég gæti trúað því að ef íslendingar væru beðnir um að velja á milli Magnúsar og Karls myndu fleiri velja Magnús.  Ég myndi segja pass.

Það er eitthvað stórkostlega kómískt við það þegar biskupinn eða prestar Ríkiskirkjunnar tala um jólasveinatrú sem barnaleg hindurvitni

Matthías Ásgeirsson, 17.12.2007 kl. 02:00

9 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég hef hitt Jens Guð og hann er óttalegur Jólasveinn.

Jón Steinar Ragnarsson, 17.12.2007 kl. 02:03

10 identicon

Þetta er nú ekki vísindalegur samanburður hjá þér, Jensinn minn, þar sem þú heyrðir ekki sögurnar sem afi sagði af Steingrími og getur því ekki borið þær saman við sögur biskupsins af Jesú og Magnúsi Skarphéðinssyni. Þú ættir því að hafa þig hægan í þessum efnum, kallinn minn.

Steini Briem (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 02:25

11 Smámynd: Jens Guð

  Matthías,  það er engin spurning í mínum huga að ég hallast tvímælalaust að trúarsannfæringu Magnúsar umfram biskoppi ríkiskirkjunnar.

  Jón Steinar,  ég samsama mig með íslenska jólasveininum langt umfram Jehova frá Arabíu.  Þó ekki væri nema að ég jafn rjóður i kinnum og jólasveinninn.

  Steini,  að óreyndu hallast ég fremur af sögum afa þíns og Magnúsar en misvísandi þjóðsögum vitnisburðar Araba fyrir 2000 árum.     

Jens Guð, 17.12.2007 kl. 02:54

12 identicon

Afa hefði aldrei dottið í hug að ljúga eða gera nokkurn skapaðan hlut af sér öll þau hundrað ár sem hann lifði og tíu sinnum lengur tókst ekki að drepa hér niður þjóðtrúna með kristinni trú, ættaðri frá Miðausturlöndum. Og núverandi biskup hér tekst það ekki heldur, frekar en öðrum trúbræðrum hans sem hafa makað krókinn hér á kostnað skattborgaranna síðastliðin þúsund ár, oftast við lítinn orðstír.

Steini Briem (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 03:10

13 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Var Bjartur í Sumarhúsum til? Snæfríður Íslandssól? Jón prímus? Lína langsokkur? Soffía frænka? Eiríkur Fjalar? Í hugarheimi nútíma Íslendinga er allt þetta til og hluti af umhverfi okkar. Það nægir mér og steingeldar deilur um að sanna tilvist þeirra á DNA-plani finnst mér óþarfar.

Ómar Ragnarsson, 17.12.2007 kl. 07:53

14 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Haha, skýr og skorinorð athugasend frá okkar elskulega Ómari.

Og gjörið svo vel að taka mark á henni!

En varðandi miðla, þá þekki ég mann sem á móður er sannarlega sér lengra en nef hennar nær! Þó sér hún reyndar betur aftur á bak en áfram eftir því sem mér skilst á fólki sem farið hefur til hennar, fortíðin hjá fólki virðist henni skýrari en framtíðin. vísindamenn hafa löngum verið að rannsaka miðla, t.d. hinn margfræga og margræða youri Geller. SVindl með hann og fleiri hefur þótt sannast, en svo eru líka til flóknari kenningar til að skýra augljósa gáfu sumra þeirra, samanber nefnda móður mannsins sem ég þekki!

EF mér skjátlast ekki þeim mun meira, minnið svíki mig, þá nýtir meðalmaðurinn vart meir en svona um 7% af heila sínum. Er því talið að margir sem hafa slíka hæfileika og fleiri umfram aðra, séu því einfaldlega að nýta stærra hlutfall heilans, virkni hans sé mun meiri en að meðaltali´! Langt síðan ég heyrði eða las um slíkar kenningar, þannig að ég man þetta nú ekki na´nar, en líkast til gæti því ekkert dularfullt verið á ferðinni hvað miðlana snertir eða meiri skynjun þeirra á umhverfinu framyfir meðaljóninn!

Magnús Geir Guðmundsson, 17.12.2007 kl. 09:06

15 Smámynd: Haukur Nikulásson

Það að Karl biskup trúi á Guð og Magnús á Jólasveininn eru jafn langsótt þegar tala á í einhverri alvöru. Svona órum á að henda út úr kostnaðarliðum samfélagsins og gera að einkamáli.

Mér finnst í lagi að fólk skemmti sér við tilhugsunina og hafi þetta prívat til hugarhægðar.

Haukur Nikulásson, 17.12.2007 kl. 09:10

16 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já ég fyrir mig veit að til er bæði huldufólk og álfar, hvers vegna ekki líka jólasveinarnir, og þá er Grýla væntanlega líka til og Leppalúði.  En ég segi eins og Ómar allt sem hefur verið skapað og fundið rými í huga okkar er í raun og veru til.  En munurinn á þeim persónum sem búnar hafa verið til af mönnum, og svo álfum, huldufólki og öðrum jarðarverum er sá að þau eru til á sama grunni og við.  Þau hafa lifað með okkur frá upphafi. 

Og ef ég ætti að velja milli félagsskapar Magúsar Skarphéðinssonar og Séra Karls, er enginn efi í mínum huga, ég stend hugmyndafræðilega miklu nær Magnúsi en Karli.

Mér finnst líka dálítið fyndið þegar prestar afneita álfum og slíkum, en vilja svo að annað fólk trúi biblíunni frá orði til orðs.  Til dæmis þegar þeir prédika að Jésús hafi fæðst á jólunum.  Hvenær er lygi lygi og hvenær verður hún sannleikur ? Ekki það að mér finnst allt í lagi að leyfa Jésúm að vera jólabarnið.  Okkur var jú gefin sú útleið að mega blóta á laun ekki satt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.12.2007 kl. 09:14

17 Smámynd: Magnús Geir Guðmundsson

Ég segi nú ekki eitt einasta orð um "Mangana" Magnús og Karl, nema hvað annar er mun stærri en hinn og heitir mun fallegra nafni, engin sérstök verðlaun að giska á við hvern þeirra er átt! Hins vegar er ég nánast sannfærður um, að Ásthildur er álfadrottning í mannheimum geymd, slík er tign hennar og aðdráttarafl!

Magnús Geir Guðmundsson, 17.12.2007 kl. 09:45

18 identicon

Ómar Ragnarsson er með þetta á hreinu, skýrleikinn alveg í fyrirrúmi.

Hvað er raunveruleiki og hvaða máli skiptir það hvort hægt sé að sanna með aldagömlum aðferðum tilvist eða vísindalega tilveru einhvers?

Raunveruleiki er hvernig við skynjum umhverfi okkar og það getur verið breytilegt frá hverjum einstaklingi. Hver er svo hátt yfir aðra hafinn að geta staðhæft að jörðin sé flöt, að hluta eða í heild?

Magnús Skarphéðinsson er skemmtilegur orginal einstaklingur sem fólk ætti að hlusta meira á, ekki endilega til að samþykkja og vera sammála, en kannski til að spegla sínar eigin skoðanir á lífinu í. Það þarf ekkert að vera flókið, en það gæti verið skemmtilegt.

Njótið lífsins, það margborgar sig.
Toddi Goði

Þorvarður Goði (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 09:46

19 Smámynd: Benedikt Halldórsson

það er innihaldið sem skiptir máli. Þannig er boðskapur kristninnar meðal annars sá að kasta ekki steinum í konur og ýmislegt annað sem ég nenni ekki að telja upp.

Ekki þekki ég jólasveinana nógu vel til að líka illa við þá, hvað þá grýlu sem ég skil bara ekki frekar en femínista.

Benedikt Halldórsson, 17.12.2007 kl. 10:37

20 identicon

Kristnir hafa lengi talið það sinn einkarétt að níða aðra, enda eru þeir með súpermann í skýjunum á bakvið sig

DoctorE (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 11:31

21 identicon

Ég hef hitt Guð, hún er fín.. alveg fyrirtak og afskaplega elskuleg.. myndi aldrei dæma neinn norður og niður enda fyrirgefandi með afburðum og óendanlegt umburðarlyndi

Með jólasveina.. er enginn spurning.. að sjálfsögðu eru þeir til.. nóg af þeim hér á moggablogginu og sjálfsagt fleiri en 13..

Gleðileg jól !

Björg F (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 12:12

22 identicon

Við skulum bara vona að engin börn hafi verið að hlusta á biskup (eflaust segist biskup vera barngóður líkt og Jesú) , hann hefði grætt þau börn.

Karl hefur engan húmor f. jólasveinum kannski? Kannski hann hafi húmor f. jólunum samt eins og páskunum sem hann sagði vera "brandara Gvuðs" ... sem ég skildi ekki alveg... en fannst hlægileg tilraun til að reyna að vera fyndinn og frumlegur.

Biskup er annars sískítandi á sig undanfarið með drulli á Siðmennt ("hatrömm samtök") og þaráður með afstöðu sinnar til samkynhneigðra. Ég bara rétt vona að þeir sem eru óánægðir með afstöðu hans gerist ekki svo sinnulausir að vera enn í þjóðkirkjunni ef þeir eru skráðir í hana. Hann gerir þetta í skjóli yfirburðarstöðu þjóðkirkjunnar.

ari (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 12:20

23 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Sko mér finnst Magnús einstaklega skemmtilegur og frábær karakter, Trúi algerlega á Jens Guð og hef meira að segja unnið með honum..Veit líka að Guð er til og að margt fólk sér og skynjar meira en aðrir. Að alls konar verur eru til á mismunandi sviðum og að ég þekki nokkrar frábæra miðla og heilara og finnst gott og gaman að fara í kirkju og hlusta á suma presta. Tel að Sumir prestar séu andlegri en aðrir og að starfsheiti þurfi ekkert endilega að gefa til kynna raunverulega andans skynjun eða visku. Og ég hef fyrir löjgu gefist upp á að setja upplifanir mínar eða skynjun  í kenningabox sem smíðuð eru af alls konar fólki.  Það þarf ekkert endilega allt að vera annað hvort eða..það má líka vera bæði og jafnvel allt.

Rosalega er eitthvað mikið af englum og gyðjum á þessu bloggi...eða eru þetta kannsi jólaveinur og trjáandar í rauðum kjólum???

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.12.2007 kl. 12:55

24 Smámynd: Víðir Ragnarsson

Mér finnst ekki fallegt af biskupi að tala svona niðrandi um annað fólk þó það kjósi að trúa einhverju öðru en hann gerir sjálfur.

En það er kannski ekki að marka því ég trúi ekki á guð. Ég trúi reyndar ekki heldur á álfa en ég trúi hins vegar á bjálfa og ég veit að það er til nóg af þeim.

Víðir Ragnarsson, 17.12.2007 kl. 13:15

25 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Það er gaman að sjá að fólk er með húmorinn í lagi.  Mér hefur nú stundum fundist herra Karl eiga ýmislegt sameiginleg með núverandi páfa, þ.e. að halda að ef hann segi eitthvað, þá trúi allir honum og fylgi því í blindni.  Það getur vel verið að Jólaguðspjallið sé sannleikanum samkvæmt eða stílfærð endursögn af fæðingu Jesú, en að halda því fram að um sannleikann sé að ræða er nokkuð vel í lagt. Því langar mig að taka tilvísunina í herra Karl og breyta henni eilítið:  "...Ég trúi ekki [að Jólaguðspjallið sé hárrétt frásögn af atburðum],  fremur en nokkur heilvita,  fullorðin manneskja." Það er ekki þar með sagt að mér finnist Jólaguðspjallið eitthvað ómerkilegra og minna mikilvægt, langt því frá.  Það er bæði merkilegt og mikilvægt, en það eru líka jólasveinar, hulduvættir, álfar, guðlegar verur allra trúarbragða og heilagar verur guðspekifólks eða nýaldarsinna.  Mér hefur lærst það, að ganga ekki út frá því að heimurinn sé bara það sem augað sér eða vísindin hafa sannanir fyrir.  Maður þarf ekki annað en að hafa umgengist Erlu Stefánsdóttur, þá mögnuðu konu, til að vita að litróf alheimsins er fjölbreyttara og fallegra en augu flestra dauðlegra vera ná að greina.  Hvet ég alla sem áhuga hafa að lesa bókina hennar, Lífssýn mín.

Marinó G. Njálsson, 17.12.2007 kl. 14:02

26 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég geri ekki svo mikið með það sem hér hefur verið sagt utan þetta sem hann Magnús G. sagði um heilann og sjö prósentin.

Þá stóð ég frammi fyrir skýringunni á kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins.

Árni Gunnarsson, 17.12.2007 kl. 15:40

27 Smámynd: Steinn Hafliðason

Jólasveinninn hefur oft komið til mín en þó sjaldan hin seinni ár. Ég var þægur krakki og fékk því aldrei kartöflu í skóinn utan að einu sinni þurfti ég að leyta að skónum mínum en mamma sagði mér að jólasveinninn hefði verið fúll yfir því hvað ég hefði verið óþægur um kvöldið að fara að sofa.

En hin síðari ár hefur hann sjaldan heimsótt mig og ekki einu sinni haft fyrir því að setja kartöflu í skóinn. Ég held samt enn í vonina en líklega hef ég ekki verið sú fyrirmynd sem jólasveininum þóknast á fullorðisárum mínum.

Steinn Hafliðason, 17.12.2007 kl. 16:32

28 identicon

Það er óþarfi að pexa mikið um þetta. Sjálfur sá ég tvo með berum augum síðastliðinn fimmtudag!

Siggi Lee Lewis (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 17:06

29 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Sóknarbarn, ég vona að það sé eitthvað annað til en það sem stendur í Biblíunni.  Ég kannast t.d. ekki við að það standi neitt um frumbyggja Ameríku eða Ástralíu í Biblíunni, en þeir eru samt til.

Marinó G. Njálsson, 17.12.2007 kl. 17:52

30 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Jesús kemur og fer eins og hvert annað nígeríusvindl en jólasveinninn er eilífur.

Baldur Fjölnisson, 17.12.2007 kl. 17:53

31 identicon

johann örn; það hefur nu aldrei verið heldur sannað með óyggjandi hætti að guð hafi verið eða sé til, ne hefur mannkynssagan samræmst truarbragða bokunum svo að þetta jafnast ut i eitt með trúna á jolasveininn hvort sem að viðkomandi er hvalavinur eða predikar i kjól yfir aumum almuganum. hvor ætli se meira heilvita eða heilsteyptari sá í kjólnum eða hvalavinurinn ?

eg held að kall i kjol talandi um eitthvað sem einginn hefur nokkurn timann seð og er illskyljanlegt fyrir börnin, se erfiðara fyrir börn að skylja heldur en sagan um jolasveininn sem lika er auðveldara að myndskreyta. leifum börnunum að vera börn, ekki taka fra þeim ánæjuna af jolasveininum sem amk gefur i skoinn en hinn osynilegi ekki. jolasveinninn er a hverju horni þessa dagana, ef það hefur misfarist hje einhverjum hvaða rauð klæddu gæjar þetta eru

jola hvað

Rob

Rob (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 17:56

32 Smámynd: Júlíus Valsson

Hver hefur ekki einhvern tímann séð jólasvein?
Ég bara spyr.

Júlíus Valsson, 17.12.2007 kl. 19:14

33 Smámynd: Kristjana Bjarnadóttir

Þetta er einhver sú skemmtilegasta umræða sem ég hef lengi séð. Hífir þetta trúboðskarp upp úr hjólförunum.

Ég vil hins vegar leggja áherslu á að jólasveinarnir eru 12. Það er saga á bakvið það, ég sá nefnilega einn DAUÐAN þegar ég var krakki. Sjá nánar hér. Það er eitthvað gruggugt í gangi hjá börnum sem fá 13 sinnum í skóinn.

Kristjana Bjarnadóttir, 17.12.2007 kl. 19:29

34 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Jólasveinninn hefur eins og aðrar mýtur þróast afar lengi og eins og venjulega í mýtuhönnun hefur hver stolið óspart frá öðrum. Grunnhugmyndin er úr heiðninni, það er þetta var einn fjölmargra guða sem heiðingjar treystu á og hann sá um að eldurinn í eldstæðinu kulnaði ekki. Við þurfum að setja þennan átrúnað í samhengi við nútíma og veruleikaskynjun þeirra sem stunduðu hann. Þeir voru með fjölmarga guði með ákveðna verkaskiptingu (rétt eins og virkaði í mannheimum). Ekki þýddi að yfirhlaða guðina verkefnum, slíkt var líklegt til að misbjóða þeim og vera argasta vanvirðing í þeirra garð. Trúarbragðahönnun heiðingja var því "lýðræðisleg" eða öllu heldur anarkísk öfugt við fasískar kenningar júdaismans, kristninnar og íslams sem allar boða jú einræðislega eingyðistrú - klæðskerasniðna fyrir kontrólfrík sem hafa óspart notað sér þessar fasísku kenningar gegnum söguna.

Baldur Fjölnisson, 17.12.2007 kl. 19:34

35 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Nú, í þessum gamla og frumstæða heimi sem treysti og trúði á guði náttúrunnar til að komast af í sinni afar hættulegu og afar ótryggu tilveru, skipti öllu að koma sér vel við alla þessa guði. Og fyrirrennari jólasveinsins kom niður um strompinn í myrkasta skammdeginu og verðlaunaði þá sem höfðu gert vel við hann og fórnað honum en lagði bölvun og óáran á hina. Eldurinn var með því allra mikilvægasta hjá fornmönnum og sjálfsagt yfirleitt spurning um hreinlega líf eða dauða og því hefur jóli sjálfsagt með tímanum þróast upp í sjálfan yfirguðinn - Óðin sem þeysti um loftin blá á áttfættum hesti, eða með hreindýrahjörð eftir því hvaða útgáfu þú vilt nota.

Baldur Fjölnisson, 17.12.2007 kl. 19:51

36 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Nei sóknarbarn, kirkjan úrskurðaði á fjórðu öld að hinn meinti Jesús (nýjasti sólguðinn þá) hefði fæðst 25. desember til að stela glæpnum frá heiðingjum sem höfðu að sjálfsögðu haft stórhátíðar í kringum sólstöðuna forever. Eins og gefur að skilja var ekki snjóboltaséns í helvíti að vera frumlegur í trúarbragðahönnun fyrir 1500-2000 árum eftir að menn höfðu japplað á því árþúsundum saman. Jafnframt er það alvarlegur misskilningur að umburðarlyndi og náungakærleikur hafi verið fundið upp fyrir 1500 árum eins og nígeríusvindl kirkjunnar gerir ráð fyrir.

Baldur Fjölnisson, 17.12.2007 kl. 20:39

37 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Skólakerfið, ruslpóstur (sem eitt sinn nefndist fjölmiðlar) og stjórnmálamenn forðast skipulega að ræða hugmyndafræði og sögu, það er hvað það er sem hefur leitt átrúnaðar nútímans. Hvernig það hefur þróast. Hvernig hver hefur stolið hugmyndum frá öðrum. Hvernig sagan hefur verið skrifuð eftir á til að réttlæta stórfelldan þjófnað (og fjöldamorð) á eignum þeirra sem hafa ekki viljað kóa með opinberu nígeríusvindli samtímans á hverjum tíma. 

Baldur Fjölnisson, 17.12.2007 kl. 20:56

38 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Sóknarbarn, ég verð að viðurkenna, að séra Flóki var að blanda sér inn í mál sem honum komu ekkert við og sýndi alveg augljós skort á umburðarlyndi og skilning á boðskap Krists.  "Allt sem þér viljið að mennirnir gjöri yður, skulið þér og þeim gjöra."  Ég lærði þessa Gullnu reglu af góðum manni fyrir 35 árum eða svo.  Hvað þýðir þessi regla?  Hún þýðir að ég skuli virða skoðanir annarra vegna þess að ég vil að fólk virði skoðanir mínar.  Hún þýðir að ég skuli virða uppeldisaðferðir annarra vegna þess að ég vil að aðrir virði uppeldisaðferðir mínar.  Hún þýðir að ég skuli virða fjölskyldugildi annarra, vegna þess að ég vil að aðrir virði fjölskyldugildi mín.  Hún þýðir að ég skuli ekki segja öðrum hverju þeir eigi að trúa, þar sem ég vil ekki að aðrir segi mér hverju eigi að trúa.  Hún þýðir að ég eigi ekki að misbjóða öðrum með orðum mínum, vegna þess að ég vil ekki að aðrir misbjóði mér með orðum sínum.  Ég gæti haldið svona áfram endalaust og samt bara verið að tala um það hvernig séra Flóki virti að vettugi það sem Kristur kenndi.  Hann minnti mig á sögur sem kona mín sagði af atburði sem gerðist þegar hún var lítil.  Í blokkinni sem hún bjó í var kona sem börnunum fannst ekki alveg eins og flestir.  Þessi kona féll ekki í hópinn og fullorðna fólkinu var ekkert sérlega vel við hana.  Til að hefna sín, þá sagði hún öllum börnum í götunni að jólasveinninn væri ekki til.  Þessi kona var talin andlega vanstillt.  Ég sé ekki mikinn mun á því sem þá gerðist og því sem guðsmaðurinn séra Floki gerði.  Ég tel atvikið með séra Flóka alvarlegra, vegna þess að hann gerði þetta af yfirlögðu ráði.  Ekki beint kristilegt siðgæði þar á ferð.

Marinó G. Njálsson, 17.12.2007 kl. 22:40

39 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Það er nú ekki þannig að kirkjan hafi fundið siðferðið upp og afar blóðug saga hennar ber vott um það gegnum tímann og allt til vorra daga við að ljúga hlutina fram.

Baldur Fjölnisson, 17.12.2007 kl. 22:52

40 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

orð biskups segja ekkert um Magnús, eða jólasveininn. þau segja allt um biskup sjálfan.

guð er til, en mitt guð er ekki sama og annarra. guð er tilfinning.

jólasveinninn er til. ég hef póstað sönnun þess á bloggið mitt. ég bíð hinsvegar enn eftir samskonar sönnun fyrir tilvist hins persónugerða gyðingaguðs.

Brjánn Guðjónsson, 18.12.2007 kl. 08:48

41 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Mig minnir nú að um sama leyti og Flóki skemmdi sveinana fyrir börnunum hafi annar prestur fordæmt það athæfi með þeim orðum að trú á jólasveininn væri ágætis æfing fyrir trú á Guð og Jésú. 

Margir segjast hafa séð Jésú, aðrir álfa, tröll, drauga, jólasveina...er það ekki allt sama tóbakið?

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 18.12.2007 kl. 09:22

42 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Takk fyrir skemmtilegar umræður...mér dettur fyrst í hug þega biskupinn talar svona um jólasveina og nýaldarhyggju að krikjan hans er í bullandi samkeppni þar. 

DNA plan jesu krists ætti að sanna að hann er sonur guðs og svo reis hann upp til himna á 3 degi...bókstaflega!  Það trúir varla nokkur heilvita,  fullorðin manneskja því?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 18.12.2007 kl. 11:00

43 identicon

Nú er ég ekki mikið fyrir jólasveina eða annað slíkt þar sem ég er heilvita fullorðin manneskja. Ég verð nú samt að segja að ef menn vilja endilega trúa á jólasveina þá ættu menn að minnsta kosti að reyna að halda hinni íslensku jólasveinahefð lifandi. Það er pirrandi að lesa athugasemdir þar sem er fjallað um "Jólasveininn", eins og það sé bara einn Jólasveinn!?

Síðan kemur Baldur Fjölnisson og blandar saman hinu og þessu eins og venjulega. Baldur, auðvitað hefur kirkjan ekki fundið upp siðferðið. Gamla testamentið varð til löngu fyrir tíð kirkjunnar. Hvað varðar blóðuga sögu kirkjunnar, þá er það rangt að taka kirkjuna sem stakan hlut. Það væri réttara að segja blóðug saga mannsins, því það er maðurinn ekki trúin sem framkvæmir illverkinn.

Gunnlaugur Snær Ólafsson (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 11:59

44 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Gunnlaugur, þetta er góð ábending.  Þeir eru 13 bræðurnir og því rétt að tala um jólasveinana.  Þetta er bara málvenja að tala um þá bræður í eintölu.

Marinó G. Njálsson, 18.12.2007 kl. 12:24

45 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

ja...santa claus, sem hægt er með góðum vilja að rekja til heilags Nikulás og jafnvel Coka Colaauglýsingar, er bara einn!  Íslensku jólasveinarnir eru 13, stundum 9 (sbr...jólasveinar einn og átta).

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 18.12.2007 kl. 12:28

46 identicon

Varðandi færslur frá 'Sóknarbarn':

Það hefur verið mikið talað um að Siðmennt séu hatramir og vilji eyða jólunum og jólahaldi út úr skólum, þar með talið jólasveinum, jólalögum og jólahvað..

En er það allt í lagi að biskup og aðrir prestar komi fram og segji að þetta sé allt saman plat, nema náttúrulega fæðing jesú.  Akkuru eru þeir svona æstir í að syngja jólalög í skólum ef þetta er allt saman bara plat?

Hvort er verra, trúlaus jól eða jólalaus trú? 

Arnar (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 14:25

47 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

jólalaus trú er hræðileg...enda fer engin í kirkju nema á jólum, nema í jarðafarir.  Var að lesa um að eitt af nöfnum Óðins hafi verið Jólnir og þaðan er nafnið "jól".

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 18.12.2007 kl. 14:37

48 identicon

Eftir að hafa rennt yfir þessa umræðu, hver getur þá efast lengur um að jólasveinar séu til?

Grýla (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 16:04

49 identicon

Á þá að bola jólunum (nema náttúrulega jesú og jötunni) út úr td. grunnskólum?  Jólasveinaruglið truflar börnin náttúrulega bara frá trúarinnrætingunni. 

Arnar (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 16:05

50 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

jólasveinar eiga rétt á sér eins og jesusfæðingarruglið! Jesus fæddist alls ekki á jólunum.

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 18.12.2007 kl. 16:25

51 Smámynd: Íslands-Bersi

Jólin er hátíð jólasveinana þessa kristnu því kristnir gleðjast yfir hátíð ljósin sem er heiðin trú frá víkingunum en Jesús fæðist sjö árum eftir Krist að vori skrýtið, þess vegna voru fjár húsin tóm og hirðingjarnir úti með féð þetta veit hver bóndi

Íslands-Bersi, 18.12.2007 kl. 23:15

52 Smámynd: Mofi

Vantar dáldið að skilgreina hvað jólasveinn er. Einum bloggara hérna trúir að jólasveinar eru til og þeir voru að blogga hérna rétt áðan. Ég efast stórlega um að einhver fullorðinn trúi að rauðklæddur maður ferðist um allann heiminn á einum degi í sleða dreginn af fljúgandi hreindýrum... gæti auðvitað haft rangt fyrir mér. Gaman að sjá hvaða rök Magnús hefur fyrir tilvist jólasveina og hvernig hann sér þá fyrir sér.

Mofi, 18.12.2007 kl. 23:19

53 Smámynd: Jens Guð

  Mofi, skv. vitnisburði Magnúsar,  eða réttara sagt vitna hans,  þá er jólasveinninn ekki rauðklæddur Kóka-kóla fígúra heldur rammíslenskur tötrum klæddur í gamaldags íslensk prjónaföt.  Ég vísa að öðru leyti í færslu #6.

Jens Guð, 18.12.2007 kl. 23:37

54 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Karl trúir .. ekki á Jólasveinin.. en hann trúir á Jesú.. Þó svo að sagnfræðilegar heimildir um krissa kallinn séu á skornum skammti.. 

Persónulega sé ég ekki munin á því að trúa á jesú og jólasveininn.....  bæði tengist þetta trú og bæði fólki heilagt sem trúir á það.  

Brynjar Jóhannsson, 19.12.2007 kl. 00:09

55 Smámynd: Sævar Einarsson

Jólasveininn er væist til og það sannast nú bara best með þessum ummælum ykkar ! þið eruð öll jólasveinar/svínkur og hana nú !

Sævar Einarsson, 19.12.2007 kl. 00:26

56 Smámynd: Sigurjón

Ég vil bara minna á að það var haldið upp á jól, sem heiðna sólrisuhátíð, löngu áður en Sússi fæddist.  Jólin eru svo nefnd eftir Jólni (Óðni).  Bara minna ,,sóknarbarn" og fleiri á það að þetta er hátíð ,,ljóss og friðar" (sólrisu).  Það er mergurinn málsins; ekki einhver fæðing bruggara.

Sigurjón, 19.12.2007 kl. 10:56

57 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hvoruveggja átrúnaðurinn á þessar ævintýrapersónur er tröllvitlaus en skattgreiðendur borga þó ekki milljarða árlega til að ljúga fram jólasveininn og hann er skömminni til skárri en Sússi að því leyti.

Baldur Fjölnisson, 19.12.2007 kl. 11:15

58 identicon

"jesusfæðingarruglið"

Skrýtið hvernig sumir alltaf sjá það réttlætanlegt að vanvirða algjörlega líf annarra...

Gunnlaugur Snær Ólafsson (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 11:57

60 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Gunnlaugur, ég held jól í anda kærleika og samveru, en auðvitað kenni ég syni mínum ekki að Jesús hafi verið fæddur þá, því það væri ósatt?...ekki satt?  Jesúsfæðingarruglið er það sem ég meina með að Jesus hafi fæðst á jólunum (það er einfaldlega ekki satt) en ég er ekki og vil alls ekki vanvirða líf annara??? Hvernig færðu það út?

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 19.12.2007 kl. 16:18

61 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Kirkjan í Róm úrskurðaði á fjórðu öld afmælisdag á þessa þjóðsagnapersónu og hafði fram að því úrskurðað hana sjálfa fram. Þetta er í rauninni nokkuð dæmigerð skáldsagnapersóna og alveg eftir sagnamótífunu alþekkta: geðþekkur karakter lendir í andstreymi, og svo framvegis. Jesús er síðan eina stórmenni sögunnar sem er án ævisögu sem bendir sterklega til þess að hann hafi aldrei verið til, amk. ekki í þeirri mynd sem lygasögur kirkjunnar presentera hann.

Baldur Fjölnisson, 19.12.2007 kl. 16:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband