26.12.2007 | 03:12
Afi - V
Ég geri mér ekki grein fyrir því hvort ég var 10 eða 11 ára. Veðurspá í Hjaltadal í Skagafirði síðsumars benti til langvarandi vætutíðar. Pabbi vildi koma öllu þurru heyi í hús áður en vætutíðin hæfist. Til að auðvelda löndun á heybólstrum inn í hlöðu voru hurðar teknar af hjörum. Þetta voru stórar hurðir. Hamast var fram í myrkur við að koma heyi í hús.
Er heimilisfólkið gekk frá heyskap og til náða þá dró ég aðra hlöðuhurðina þétt fyrir glugga á svefnherbergi afa á jarðhæð. Morguninn eftir laug ég því að foreldrum mínum að afi ætlaði ekki að mæta til morgunverðar né í mat þann daginn. Það var engin nýlunda. Afi átti það til að hafa allt á hornum sér varðandi borðhald og sniðganga kaffi- og matmálstíma.
Í sveitinni var niðursetningur, gamall einstæðingur sem kallaðist Siggi póstur. Honum var skipt á milli bæja í 3 - 4 vikur í senn á hverjum stað. Afi neitaði að matast samtímis honum. Taldi það vera fyrir neðan virðingu sína að sitja til borðs með "öðrum eins hálfvita". Afi tiltók meðal annars að Siggi póstur sötraði úr skeið þegar hann borðaði súpu, "eins og ódannaður útigangsmaður. Og á engan hátt samboðinn siðuðu fólki."
Afi sparaði Sigga pósti, þeim indæla kalli, heldur hvergi kveðjur. Hótaði honum öllu illu og hellti sér yfir hann við hvert tækifæri þannig að foreldrar mínir þurftu að hasta á afa. Sem lét sér þó hvergi segjast. Mestan þann tíma sem Siggi póstur dvaldi heima sniðgekk afi eldhúsið. Þess í stað lét hann okkur krakkana lauma inn í herbergi til sín - svo lítið bar á - mjólk, brauði, hafragrjónum og fleiru.
Sömuleiðis átti afi það til að sinnast við sumarkrakka sem voru á heimilinu. Ósjaldan með þeim afleiðingum að afi hætti að mæta í matmálstíma til að þurfa ekki að sitja til borðs með "kaupstaðafíflum".
Það kippti sér því enginn upp við það að afi mætti hvorki í mat né kaffi þann daginn sem hlöðuhurðin var fyrir glugganum á svefnherbergi hans. Hurðin myndaði algjört myrkur í herbergi afa þann daginn og afi svaf í myrkrinu allan daginn því að hann hélt að enn væri nótt. Afi brúkaði hlandkopp og fór því ekkert út úr herberginu á meðan hann hélt að væri nótt.
Afi svaf að sjálfsögðu alla nóttina en líka allan næsta dag og þarnæstu nótt. Fattaði ekkert að dagur kom og önnur nótt. Að morgni annars dags hafði rigningu slotað tímabundið og ég tók hurðina frá glugga afa og við pabbi komum henni fyrir í hlöðudyrunum.
Þegar afi vaknaði til morgunverðar á öðrum degi hafði hann á orði hvað hann hafði sofið illa. Sagðist ítrekað hafa vaknað til að pissa. Foreldrar mínir föttuðu ekki um hvað afi var að tala. Næstu daga var afi stöðugt að ruglast á dagsetningum. Á mánudegi stóð hann í þeirri trú að það væri sunnudagur og svo framvegis. Heimilisfólkið var alveg undrandi á ruglinu í afa. En var þó ýmsu vant í þeim efnum.
Eldir sögur af afa: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/389916/
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:33 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Tónlistarspilari
Spurt er
Nýjustu færslur
- Af hverju hagar fólk sér svona?
- Passar hún?
- Þegar Paul McCartney yfirtók frægustu hljómsveit heims
- Framhald á frásögn af undarlegum hundi
- Furðulegur hundur
- Undarleg gáta leyst
- Lífseig jólagjöf
- Spennandi sjávarréttur - ódýr og einfaldur
- Til minningar um gleðigjafa
- Þegar Jón Þorleifs kaus óvænt
- Heilsu- og megrunarkúr sem slær í gegn
- Leifur óheppni
- Anna frænka á Hesteyri hringdi á lögguna
- Erfiður starfsmaður
- 4 vísbendingar um að daman þín sé að halda framhjá
Nýjustu athugasemdir
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Sigurður I B, snilld! jensgud 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Þetta minnir mig á.... Hjónin eyddu um efni fram og maðurinn sa... sigurdurig 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Jóhann, ég veit ekki hvar þau kynntust. Þín ágiskun er alveg ... jensgud 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Stefán, góður! jensgud 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Getur verið að þetta unga par hafi kynnst í "KLÚBBNUM" og skem... johanneliasson 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Þetta minnir mig á átök innan stjórnmálaflokka þar sem hatur og... Stefán 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Ingólfur, takk fyrir þínar ágætu og áhugaverðu vangaveltur. jensgud 29.1.2025
- Af hverju hagar fólk sér svona?: Þetta er ágæt saga um mannlegan breyzkleika, svona hagar fólk s... ingolfursigurdsson 29.1.2025
- Passar hún?: Stefán, Steinn Steinarr klikkar ekki! jensgud 24.1.2025
- Passar hún?: Nýlega sköpuðust miklar umræður hér á þessu bloggi um hunda óme... Stefán 24.1.2025
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 2
- Sl. sólarhring: 432
- Sl. viku: 1386
- Frá upphafi: 4123283
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 1130
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- sigurjonth
- asthildurcesil
- siggith
- hallarut
- reykur
- rannveigh
- skulablogg
- fiski
- gudruntora
- asgerdurjona
- zeriaph
- jevbmaack
- lehamzdr
- ffreykjavik
- fuf
- stormsker
- xfakureyri
- jonmagnusson
- palmig
- jonaa
- jakobsmagg
- ktomm
- th
- jenfo
- gurrihar
- kiddirokk
- hlynurh
- skessa
- prakkarinn
- maggadora
- skinkuorgel
- agustolafur
- einherji
- heidathord
- atlifannar
- konukind
- gudnim
- 730
- blekpenni
- heida
- annabjo
- vglilja
- sleggjan007
- markusth
- bergruniris
- aevark
- rannthor
- katrinsnaeholm
- birgitta
- jullibrjans
- fararstjorinn
- agny
- ippa
- hugrunj
- aring
- ikjarval
- gujo
- bjorgvinbjorgvinsson
- drhook
- runarsv
- sjos
- doriborg
- haukurn
- gammon
- millarnir
- robbitomm
- korntop
- killjoker
- vantru
- evathor
- partners
- heiddal
- meistarinn
- skrifa
- heidistrand
- iaprag
- semaspeaks
- svei
- jonthorolafsson
- sverrir
- bonham
- bjarnihardar
- sigurgeirorri
- ladyelin
- birnamjoll
- veraknuts
- fia
- plotubudin
- ringarinn
- nonninn
- larahanna
- juliusvalsson
- skari60
- ingvarvalgeirs
- lubbiklettaskald
- kolgrimur
- olinathorv
- hreinsi
- baddinn
- hrolfur
- jenni-1001
- handsprengja
- ahi
- perlaheim
- gudrunmagnea
- ommi
- hemba
- grumpa
- bergthora
- grafarholt
- mummigud
- athena
- sigaxel
- bjolli
- gummiarnar
- kerchner
- rustikus
- hordurj
- thegirl
- birna-dis
- siggivalur
- krizziuz
- fridaeyland
- evabenz
- quackmore
- andres08
- bleikaeldingin
- bardurorn
- snorris
- ver-mordingjar
- nexa
- thorasig
- lindalinnet
- gudni-is
- mordingjautvarpid
- arh
- sinfonian
- raggipalli
- mongoqueen
- lovelikeblood
- holi
- jakobk
- rannveigbj
- stebbifr
- credo
- ylfalind
- herdis
- steinnhaf
- halo
- gullilitli
- 810
- motta
- leifurl
- janus
- ljonid
- kerla
- solir
- nilli
- guru
- steinnbach
- skagstrendingur
- hemmi
- gunnar
- hannamar
- mosi
- geislinn
- hlekkur
- luther
- zumann
- jara
- hector
- malacai
- polly82
- hughrif
- einarlee
- loopman
- sign
- destiny
- gilsneggerz
- thuridurbjorg
- liljabolla
- saethorhelgi
- svatli
- siggiholmar
- folkerfifl
- sigurjonsigurdsson
- eythora
- kiddijoi
- kjartanis
- rosagreta
- gurkan
- killerjoe
- gthg
- gebbo
- laugatun
- tru
- presley
- siggileelewis
- helgamagg
- doddilitli
- kjarrip
- steinibriem
- huldumenn
- jobbisig
- id
- mp3
- blomid
- ketilas08
- lilly
- hjolaferd
- lostintime
- skordalsbrynja
- birtabeib
- karitryggva
- marzibil
- zunzilla
- fjola
- storibjor
- rannug
- glamor
- venus
- eurovision
- skjolid
- einarsigvalda
- minna
- austurlandaegill
- coke
- eyja-vala
- harpao
- ljosmyndarinn
- doriegils
- lordbastard
- neddi
- holmarinn
- vga
- bus
- dolli-dropi
- vefritid
- eirikurgudmundsson
- hallibjarna
- svetlana
- blues
- huxa
- judas
- asdisran
- omarpet
- skattborgari
- himmalingur
- neytendatalsmadur
- salkaforlag
- kje
- laufabraud
- vestskafttenor
- gunnarggg
- esb
- ingvarari
- gunnarpalsson
- hreinn23
- saltogpipar
- hergeirsson
- jea
- arniarna
- psychosurfer
- metal
- hreinsamviska
- godinn
- krissa1
- robertb
- perlaoghvolparnir
- brandurj
- madddy
- tibet
- minkurinn
- hallidori
- liso
- graceperla
- mrsblues
- gummiogragga
- sisvet
- vild
- holar
- presleifur
- helgadora
- xjonsig
- helgananna
- meyjan
- tungirtankar
- visindavaka
- borgarfjardarskotta
- mal214
- vilberg
- brandarar
- einarhardarson
- steffy
- adhdblogg
- litliper
- audunnh
- gotusmidjan
- saemi7
- dorje
- sterlends
- jgfreemaninternational
- aloevera
- lucas
- olibjossi
- bestfyrir
- helgigunnars
- gleymmerei
- leifur
- ace
- diesel
- methusalem
- astroblog
- lynx013
- brell
- kikka
- doddyjones
- sigurjon
- birnast
- gunnarbjorn
- disdis
- valdinn
- ragnar73
- helgatho
- cigar
- parker
- manisvans
- kerubi
- mis
- bmexpress
- drum
- gisgis
- finni
- tbs
- topplistinn
- rognvaldurthor
- pjeturstefans
- gullfoss
- lotta
- thjodarsalin
- freyrholm
- olii
- gattin
- bjornj
- olafiaherborg
- rallysport
- sur
- sigrunzanz
- rafng
- hrannsa
- draumur
- aslaugas
- aeon
- gumson
- glamur
- skinogskurir
- launafolk
- bjarnimax
- westurfari
- bookiceland
- braskarinn
- elfarlogi
- komediuleikhusid
- elismar
- emilhannes
- fingurbjorg
- frida-litlah
- gudjul
- gp
- gusg
- gubo
- vgblogg
- hafthorb
- morgunblogg
- sveinnelh
- rattati
- diva73
- itlajh
- minos
- kliddi
- daliaa
- axelma
- ingolfursigurdsson
- thjodfylking
- fun
- jaisland
- jeremia
- johanneliasson
- eyfeld
- johannesthor
- stjornun
- josefsmari
- x-d
- kristjan9
- larusg
- lifsrettur
- lifsyn
- loftslag
- ludvikludviksson
- margretsverris
- mofi
- sumri
- skari
- raffi
- rso
- roslin
- runarf
- jardytan
- sigridursig
- joklamus
- siggifannar
- sigurdurig
- stjornlagathing
- stefanjul
- stommason
- steinki
- svanurg
- spurs
- sveinneh
- tryggvigunnarhansen
- myworld
- valdimarjohannesson
- valmundur
- vest1
- totibald
Athugasemdir
þetta hlýtur að hafa verið frábær afi, ég er búin að lesa allar færslurnar um hann og ég kannast smá við manngerðina
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 26.12.2007 kl. 03:27
Jens,þú skrifar skemmtilega um afa þinn, og þess vegna les ég. En ég er ekki hrifin af fólki sem er ekki gott við börn, en það mun hafa verið landlægur andskoti til sveita.
Takk fyrir mig.
Jenný Anna Baldursdóttir, 26.12.2007 kl. 08:25
Ja hérna Jens, frábærar frásagnir hjá þér, hann hefur nú átt eitthvað erfitt
afa tetrið þitt, en þeir réðu ríkjum gömlu mennirnir, hér áður og fyrr.
Hafðu góða daga Jens og takk fyrir mig.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 26.12.2007 kl. 09:58
Saga að mínu skapi. Gleðileg jól!
Siggi Lee Lewis (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 13:49
Hahaha frábær saga!
Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 26.12.2007 kl. 13:58
Dette er en morsom historie. Slike mennesker setter farve på omgivelsene og blir ikke glemt. Jeg kan tro at det kan være krevende og bo sammen med så store personligheter.
Tusen takk for historiene.
Heidi Strand, 26.12.2007 kl. 14:15
Það var gaman að lesa þetta, takk.
Vafalaust hefur sá gamli bara haft gott af því að sofa út.
Greta Björg Úlfsdóttir, 26.12.2007 kl. 15:59
Óvenjulegt, en gaman þegar drengir líkjast öfum sínum svona mikið þegar aldurinn færist yfir!
Árni Gunnarsson, 26.12.2007 kl. 16:08
P.s. Mér er sagt að það sé allt í lagi að vera svolítið andstyggilegur þegar kominn er annar í jólum.
Árni Gunnarsson, 26.12.2007 kl. 16:11
Jens, ég ætla að senda systur minni sem bjó í nokkur ár í Hjaltadalnum slóðina á þessa færslu. Ég veit að hún mun hlæja sig máttlausa - þetta er akkúrat hennar húmor!
Greta Björg Úlfsdóttir, 26.12.2007 kl. 16:38
Jens, hvar finn ég fyrstu færsluna um Önnu á Hesteyri?
Greta Björg Úlfsdóttir, 26.12.2007 kl. 17:00
Jóna, það var mikið ævintýri fyrir okkur börnin að alast upp með afa. Það bar stöðugt eitthvað til tíðinda. Hinsvegar gátu dyntir afa reynt á þolrif foreldra minna. Til að mynda lagði hann sig í líma við að kenna okkur krökkunum ýmis ráð til að óhlýðnast þeim. Jafnframt hrósaði hann okkur ef við brúkuðum munn við mömmu. Þá verðlaunaði hann okkur með brjóstsykri.
Hörður, það má til sanns vegar færa.
Jenný, ég varð var við það í sveitinni í gamla daga að á sumum bæjum þurftu börn að þola harðræði. Ég held þó og vona að allt slíkt sé á hröðu undanhaldi. Að minnsta kosti hérlendis.
Guðrún, ég veit ekki hvað veldur því að sumt fólk burðast með stóran skammt af innbyrgðri reiði sem brýst fram í skapofsaköstum af litlu tilefni. Kannski er það arfleifð frá Sturlungaöld. Víkingagenin að láta á sér bæra. En að burðast með stöðuga reiði hlýtur að vera erfitt. Stundum að minnsta kosti.
Gleðileg jól, Siggi og þið hin.
Ása, það er mikil skemmtun fyrir mig að rifja upp þessar sögur af afa. Gaman að fleiri hafi skemmtun af sögunum.
Heidi, að minnsta kosti leiddist manni ekki á meðan tilveran í kringum afa var svona viðburðarrík.
Óskar, að ósekju hefði verið allt í lagi að dempa aðeins í rembingnum og stælunum í afa. Mamma hefði þegið það.
Gréta, í það minnsta gerði það honum ekkert vont. Hvar var systir þín í Hjaltadal.
Árni, ég held að því sé öfugt farið. Að ég hafi verið undir meiri áhrifum frá afa sem ungur maður en sé allur að slípast til með aldrinum.
Jens Guð, 26.12.2007 kl. 17:28
Systir mín var á Hofi. Maðurinn hennar fyrrverandi sá um fiskeldið á Hólum í nokkur ár. Ég var þarna hjá þeim eitt sumar með strákana, það var sumarið 1986, og vann í mötuneytinu á Hólum.
Greta Björg Úlfsdóttir, 26.12.2007 kl. 17:35
Fyrsta færslan um Önnu er á http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/337158.
Foreldrar mínir fluttu frá Hrafnhóli í Hjaltadal til Akureyrar í lok áttunda áratugarins. Það er frábært að vera á Hólum. Þú kannski veist að Hólar mældust vera veðursælasti staður landsins á síðustu öld.
Jens Guð, 26.12.2007 kl. 17:41
Vill bara benda á að það er ekkert frekar landlægur andskoti að vera vondur við börn í sveitum landsinns heldur en í bæjum. Fólk er gott eða vont eftir innræti ekki búsetu. Og ég tel að góður meirihluti þeirra sem að fóru í sveit líti til þeirra ára með hlýju og sem bæjarbúi alin upp í sveit leyfi ég mér að mótmæla alhæfingum í garð þess folks sem ók okkur upp.
Jón Aðalsteinn Jónsson, 26.12.2007 kl. 23:18
Ég þekki ekki til uppeldis krakka í kaupstöðum. En ég vona og veit að þau börn sem voru í sveit heima á Hrafnhóli í Hjaltadal hafi ekki kynnst ofbeldi af hálfu fullorðins fólks. Ég minnist bara skemmtilegra daga frá mínum uppeldisárum. En ég varð þó var við að farið var illa með börn á sumum bæjum í sveitinni.
Jens Guð, 27.12.2007 kl. 00:17
Það er gaman að sögurnar skuli létta konunni lífið. Hafið bæði hina gleðilegustu hátíð.
Jens Guð, 27.12.2007 kl. 15:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.