Kreppuráð - sparnaður í eldhúsinu

  Það er gott að kunna sparnaðarráð í miðri óðaverðbólgu,  næst hæstu stýrisvöxtum í heimi (á eftir Tyrkjum),  hæsta matvælaverði í heimi,  tollamúrum á landbúnaðarvörur,  gjaldi og sköttum sem nema næstum helmingi af eldsneytisverði og svo framvegis.  Hér kemur ráð sem getur komið sér vel:

  Þegar silungur er smjörsteiktur á pönnu er gott að steikja möndlumylsnu með.  Möndlumylsna er dýr.  Hana má drýgja með því að ydda framan af blýanti og mylja yddið saman við möndlumylsnuna.  Betra er að brjóta fyrst blýið.  Blý er óhollt.    

blýantur1


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jens minn ég held að ég sleppi því að eta hjá þér

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 9.4.2008 kl. 15:11

2 identicon

Haha sammála síðasta ræðumanni, þessi uppskrift hljómar ekki vel...

Ása Ninna Katrínardóttir (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 15:33

3 identicon

Ég held mig við mína naglasúpu

DoctorE (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 16:02

4 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ef maður hefur efni á nýjum silungi til að steikja hlýtur maður að hafa efni á möndlum.
Ég vildi heldur fara í naglasúpu til doktorsins en í silung til þín, Jens... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 9.4.2008 kl. 16:05

5 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 9.4.2008 kl. 16:07

6 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Úff, það sem þér getur dottið í hug. Langar ekki í blýantssilung.

Helga Magnúsdóttir, 9.4.2008 kl. 16:16

7 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Það er hræódýrt að kaupa bara muesli. kostar 600 kr pakkinn sem ætti að nægja til meðlætis með þónokkuð mörgum steiktum silungsmáltíðum.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 9.4.2008 kl. 16:26

8 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 9.4.2008 kl. 16:29

9 identicon

Það er ást þegar hún stingur óvart fingrinum, í staðinn fyrir blýantinum, í yddarann á skrifborðinu sínu á skrifstofunni þegar hann gengur framhjá. Og það er sönn ástríða (true passion) þegar hún liggur nakin fyrir framan hann á skrifborðinu eftir vinnu og hann fattar ekki fyrr en eftir góða stund að typpið er ekki á réttum stað, heldur í yddaranum.

Þegar blýanturinn sér rétta yddarann fyrir sig blýstendur honum náttúrlega og það þýðir nú ekki að troða stórum blýanti í pínulítinn yddara. "Obb, obb, obb, hvað ert þú að vilja upp á dekk, Keikó minn!", segir yddarinn þá si sona við blýantinn.

Ég var alltaf að leita að rétta yddaranum og máta blýantinn minn við hina og þessa yddara út um allar koppagrundir, allt frá Grænhausaeyjum til norðurhjara veraldar, sumsé göngugötunnar á Akureyri. Þetta var nú óttalega þreytandi iðja til lengdar og aldrei fannst rétti yddarinn.

En þá ákvað ég að auglýsa hér á Moggablogginu eftir yddara sem passar við blýantinn minn til að spara mér alla þessa vinnu og fyrirhöfn, og koma í veg fyrir að spreða yddi út um allar þorpagrundir, svona algjörlega að óþörfu.

Ég er búinn að fá þó nokkuð mörg tilboð frá hinum og þessum yddurum hérna en ég veit ekki ennþá hvort ég á að leggja í að setja blýantinn í einhvern af þeim, því það er nú ekkert gamanmál ef blýanturinn er annað hvort of stór eða of lítill, og oft er auðveldara í að komast en úr að fara.

Steini Briem (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 16:41

10 Smámynd: Markús frá Djúpalæk

Steini - þú skemmir alltaf fyrir mér daginn. Takk fyrir það

Markús frá Djúpalæk, 9.4.2008 kl. 17:06

11 identicon

Verði þér að góðu, Markús minn, eða forláttu (fyrirgefðu), eins og hún amma mín sagði.

Steini Briem (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 17:42

12 Smámynd: Heidi Strand

Da anbefaler jeg heller Ora fispatroner. De er billigere enn mandler.

Heidi Strand, 9.4.2008 kl. 18:41

13 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Jens aldrei, aldrei, aldrei, aldrei bjóða mér í mat!!!!!!!!!    Steini stuð góður í dag

Ía Jóhannsdóttir, 9.4.2008 kl. 19:43

14 Smámynd: Rannveig H

Athuga þetta næst þegar þú kemur til mín í mat  gott ef ég verð bara ekki tilbúin með þetta þega þú kemur frá Brúski.

Rannveig H, 9.4.2008 kl. 20:29

15 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

.

Gunnar Gunnarsson, 9.4.2008 kl. 21:09

16 identicon

Góður réttur fyrir seðlabankastjóra!

Jón Örn (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 21:48

17 identicon

Má nota ydd úr trélitum? Gerir réttinn litríkari og skemmtilegri, auk þess sem það gæfi eflaust fjölbreyttara bragð. Kannski gulan, rauðan, grænan og fjólubláan.

Siggi Lee Lewis (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 22:19

18 Smámynd: Ragnheiður

ég ætla ekki að borða hjá þér, allaveganna ekki meðan kreppa ríkir. Steini góður !

Ragnheiður , 9.4.2008 kl. 22:29

19 identicon

Góður

Anna Ólafsdóttir (anno) (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 22:58

20 Smámynd: Óskar Arnórsson

Enn hvað 'islendingar eru matvandir Jens Guð! Kannski þarf þessa kreppu og hallæri til að koma fólki í samband aftur við raunveruleikann! Ef 15 - 20% af mannkyninu á 85 - 90 % af auðlindum þess eins og búið er að reikna út aftur og aftur með smá frávikum..

Er það eitthvað að keppast að, að vera í hópi þessara 15 - 20% og taka þannig þátt í því að drepa með því milljónir fólks úr hungri?

Þennan óbalns ættu allir að hjálpast við að laga..Jens Guð, bara til að bæta við mataruppskriftirnar þínar, eru ræktað rottur nákvæmlega eins á bragðið og kjúklingar, ákveðnar tekundir ág snákum betri en bestu nautalundir, enda bara vöðvi, og djúpsteiktir kakkalakkar eru eins og döðlur á bragðið. 

Blý er óhollt og ég mæli ekki með því. Aloablöð hituð á grilli og vafin um löppina með ígerð, er næstum eins góð lækning og fúkkalyf. Ég kem gjarna í mat og prófa þetta. Ég prófa allt a.m.k.einu sinni. Treystu ekki mínu uppeldi né "fræðslu" sem var troðið í hausinn á mér þegar ég var í skóla. Búin að skipta þeirri "þekkingu" út fyrir aðra sem gerir það að verkum að ég get komist af, hvar sem væri plantað á jarðkúlunni.

Menntun og reynsla er mikill máttur. Kemur sér vel að kunna að éta hvað sem er. í frumskógum Asíu þar sem mér líður best.. Takk fyrir uppskriftina. Tek með mér nokkra blýanta í nesti... 

Óskar Arnórsson, 10.4.2008 kl. 00:19

21 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

ég get huggað þig með að 'blýið' í blýöntum inniheldur ekki blý, heldur kolefni. svo nú geturðu yddað að vild. út í kaffið líka.

Brjánn Guðjónsson, 11.4.2008 kl. 14:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.