Færsluflokkur: Tónlist
19.10.2007 | 14:17
Sagan sem breytist og breytist
Allir kannast við það þegar bandaríska rokkstjarnan Bruce Springsteen - eða Brúsi frændi eins og hann er oft kallaður - tók lagið með íslenska "böskaranum" Jó-jó á Strikinu í Kaupmannahöfn. Enda heimsfrægur viðburður sem trónir nú á youtube. Í dag er sagan þannig:
Jó-jó var að spila dúett með öðrum manni úti á götu. Hinn þurfti að skjótast á klósettið. Á meðan gekk Brúsi hjá, greip upp gítar mannsins og byrjaði að syngja og spila með Jó-jó.
Fyrst eftir atburðinn var sagan hinsvegar á þessa leið:
Jó-jó vissi hvar Brúsi var staddur (á kaffihúsi eða matsölustað). Hann vissi líka hvaða leið Brúsi myndi ganga upp á hótelið sitt, rétt hjá. Jó-jó kom sér því fyrir með aukagítar og kvikmyndatökumann. Beið svo um hríð þangað til Brúsi rölti hjá. Þá kallaði Jó-jó til hans ögrandi áskorun um að sýna að hann sé ekki yfir almenning hafinn og bað hann um að spila með sér eitt lag. Brúsi varð undrandi og hálfringlaður en lét svo slag standa þegar Jó-jó rétti að honum gítarinn.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
16.10.2007 | 13:47
Bestu hljómleikar rokksögunnar
Í nýjasta hefti enska poppblaðsins Uncut er að finna bærilega rökstuddan lista yfir bestu hljómleika rokksögunnar. Þannig raðast í efstu sætin:
1. Jimi Hendrix: Montery Pop Festival í Kaliforníu, 16. - 18. júní 1967 (það var á þessum hljómleikum sem Hendrix lauk laginu Wild Thing með því að kveikja í gítarnum).
2. Bítlarnir: Hammersmith Odeon í London, 26. desember 1964
3. Sex Pistols: Lesser Free Trade Hall í Manchester, 4. júní 1976
4. Bob Marley: The Lyceym í London, 17. júlí 1975 (þekkti og frábæri flutningurinn á No Woman No Cry er frá þessum hljómleikum).
5. David Bowie: Wembley á Englandi, 3. - 8. maí 1976
6. Pink Floyd: The International Times Launch Party í The Roundhouse í Camden á Englandi, 15. október 1966
7. Arctic Monkeys: Sheffield Boardwalk á Englandi, 26. maí 2005
8. Roxy Music: Newport Country Club, einhvertímann í júní 1972
9. White Stripes: The 100 Club í London, 26. júní 2001
10. Clash: The Palladium í New York, 17. febrúar 1979
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
14.10.2007 | 17:23
Fullkomnustu lagasmíðar poppsögunnar
Í nýjasta hefti breska tónlistarblaðsins Q er birtur listi yfir fullkomnustu lagasmíðar poppsögunnar. Þar eru forsendur aðrar en þegar valin eru bestu lög poppsögunnar. Í þessu tilfelli er útgangspunkturinn fagurfræðin/úrvinnslan við framvindu lagsins það sem málið snýst um. Það er hópur þekktra lagahöfunda sem komust að eftirfarandi niðurstöðu:
1. Hallelujah - Leonard Cohen
2. Strawberry Fields Forever - The Beatles
3. Life on Marz - David Bowie
4. Sympathy For the Devil - The Rolling Stones
5. Strange Fruit - Billie Holiday
6. Bitter Sweet Symphony - The Verve
7. Born To Run - Bruce Springsteen
8. God Only Knows - The Beach Boys
9. Blowing in the Wind - Bob Dylan
10 Perfect Day - Lou Reed
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
24.9.2007 | 01:02
Mest pirrandi íslenska dægurlagið
Undanfarnar vikur hef ég haldið úti skoðanakönnun um mest pirrandi íslenska dægurlagið. Ég nálgaðist viðfangsefnið með forvali í kunningjahópi og síðar með umræðu meðal lesenda bloggs míns. Niðurstaðan var nokkuð afgerandi. Langflestir nefndu lagið Nína með Eyjólfi Kristjánssyni og næst flestir lagið Villi og Lúlla með Þú og ég (Þér og mér, ef að við viljum fallbeygja nafn dúettsins). Bæði lögin eru viðbjóður. Sumir telja þó að Villi og Lúlla sé svo hallærislegt að það sé frekar brandari en eitthvað sem að pirrar verulega.
Eftir að örfá atkvæði höfðu verið greidd kom þrýstingur á mig að bæta við laginu Skólaball með Brimkló. Ég lét undan þeim þrýstingi. Samt vitandi að það lag átti ekki séns í hin lögin. En vegna þess að því lagi var bætt inn eftir að 40 atkvæði höfðu verið greidd hinum tveimur lögunum þá hef ég leyft skoðanakönnuninni að fara vel yfir 500 greidd atkvæði. Núna þegar að 583 atkvæði hafa verið greidd er niðurstaðan þessi:
Nína 50,1%
Tónlist | Breytt 26.7.2009 kl. 19:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
21.9.2007 | 21:21
Færeysk frétt
Um síðustu helgi var færeyskt sendiráð opnað á Íslandi með pomp og prakt. Á hátíðardagskrá í glerskálanum við Norræna húsið upplýsti ég færeyskan blaðamann um það að Eivör sat aðra viku í röð í efsta sæti íslenska plötulistans með plötu sína Mannabarn. Þannig segir blaðamaðurinn frá á www.planet.fo og í dagblaðinu Sósíalurin (það er alltaf svo gaman að lesa færeysku).
Eivør enn nummar eitt 19. sep 2007, 22:04 |

Mynd: Eivør og heimmildarmaður okkara í Íslandi, Jens Guð
Eivør er enn nummar eitt í íslendska sølulistanum
Hesa vikuna er Eivør Pálsdóttir aftur nummer eitt á sølulistanum í Íslandi. Hetta er onnur vikan, at fløgan Mannabarn er nummer eitt.
Heimmildarmaður okkara í Íslandi, Jens Guð, metir hetta vera at undrast á. Ikki tí, eins og íslendingar flestir, so hámetir hann sangfuglin Eivør, men meira er tað marknaðarføringin, ella vantandi marknaðarføringin, ið undrar. Og tað, at Eivør liggur á fyrsta plássi, hóast lítla og onga marknaðarføring.
Tað er, sum er tørvur ikki á at gera stórvegis við marknaðarføring, heldur Jens Guð.
Aðrar fløgur, ið liggja væl fyri á listanum, verða førdar fram við lýsingarherferðum, t.d. Magni, ið vann sangkapping í USA og nú er væl umtóktur í heimlandinum Íslandi.
Jens er eisini fegin um væl eydnaðu framførslurnar hjá føroysku tónleikarunum, tá føroyska sendistovan í Reykjavík lat upp í vikuni.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.9.2007 | 15:01
Enn eitt leyndarmálið upplýst
Við eftirvinnslu á plötunni Konu með Bubba þurrkaðist fyrir mistök hluti af söng hans út í einu lagi. Bubbi var kominn í meðferð og átti ekki heimangengt næstu vikurnar. Platan var bókuð í masteringu og fjölföldun úti í Englandi eftir örfáa daga. Nú voru góð ráð dýr.
Svo vildi til að söngvari Bara-flokksins frá Akureyri, Ásgeir Jónsson, sá um áslátt á plötunni. Hann gerði sér lítið fyrir og söng þann sönghluta lagsins sem hafði þurrkast út. Hermdi bara eftir Bubba svo glæsilega vel að munurinn heyrist ekki.
Ásgeir er góður í söngeftirhermum. Hann hermir léttilega eftir David Bowie og Freddie Mercury þegar sá gállinn er á honum. Þar er erfitt að greina á milli eftirhermu og fyrirmyndar.
Lagið sem um ræðir á Konu-plötunni heitir Seinasta augnablikið.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
14.9.2007 | 21:54
Plötudómur
Flytjandi: Hljómsveitin Soundspell
Titill: An Ode to the Umbrella
Einkunn: **** (af 5)
Þessi plata er frumraun hljómsveitarinnar Soundspell á plötu. Liðsmenn hljómsveitarinnar eru aðeins 1 6 - 18 ára. Það er með ólíkindum hvað þessir ungu strákar hafa gott vald á tónlistinni. Það er engan veginn hægt að heyra að um þetta unga nýgræðinga sé að ræða. Öll þeirra tök á viðfangsefninu eru svo fagmannleg og yfirveguð.
Músíkin sver sig í ætt við Coldplay, Keane og Leaves. Í Englandi er svona músík flokkuð sem "indie". Í Bandaríkjunum er hún kölluð háskólapopp. Hérlendis er talað um gáfumannpopp.
Áferðin er mjúk. Lögin eru fremur hæggeng. Einfalt en hnitmiðað píanó"gutl" (með orðinu "gutl" er ekki átt við neikvæða merkingu heldur verið að undirstrika einfaldleika. Hér er ekkert yfirdrifið með stælum af neinu tagi). það er liðsheild hljómsveitarinnar sem skiptir máli. Hér er enginn með stæla eða að reyna að stela "sjóvinu". Þetta er allt látlaust. Rennur mjög þægilega.
Söngurinn er áreynslulaus og "mjúkur" en samt kraftmikill þar sem við á. Útsetningar eru fjölbreyttar og auðheyranlega töluverðar "pælingar" að baki. Jafnvel má merkja smá Sigur Rósar stemmningu myndast á stöku stað.
Laglínur eru fallegar. Í fleiru en einu lagi jaðrar við að stutt sé í Fix Youlag Coldplay.
Þetta er plata sem þarf að hlusta á nokkru sinnum áður en fegurð laganna birtist í öllu sínu veldi.
Platan rennur vel í gegn. Það kemur vel út að hafa "rokkaðasta" lagið sem nr. 2 á plötunni. Þannig kemst til skila að grunnt sé á rokkinu. Þó að þetta sé ekki rokkplata. Þannig lagað.
Á hljómleikum er hljómsveitin töluvert rokkaðri en á plötunni. Á hljómleikum leyfa strákarnir sér meiri læti og hávaða. Hljómsveitin er ljómandi góð hljómleikahljómsveit. Platan er hinsvegar lágstemmd og ljúf.
Ég hvet aðdáendur Coldplay, Keane og Leaves til að kynna sér þessa plötu. Þeir verða ekki fyrir vonbrigðum. Þessir strákar eiga bjarta framtíð fyrir sér og eru til alls vísir.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.9.2007 | 02:57
Annað leyndarmál upplýst
Ég ætla að dæla hér inn upplýsingum um leyndarmál úr poppbransanum. Jafnvel nokkrum safaríkum. Ég byrjaði á að upplýsa um trommuleikinn á plötu Facons frá Bíldudal. Um það má lesa hér aðeins neðar á síðunni.
Nú er röðin komin að laginu Búgívúgíelskhugi sem var B-lag á plötu Bubba & MX21, Skapar fegurðin hamingju? Þetta lag hefur síðar komið út sem aukalag á geisladiski með Bubba. Ég hannaði umslagið og sá um markaðssetningu.
Áður en lengra er haldið vil ég taka fram að bassaleikarinn sem um ræðir er góður. Hefur gert margt gott. Meðal annars í laginu Vegbúinn með KK.
Tómas Tómasson (Stuðmaður) var upptökustjóri. Á þessum árum þurfti að senda upptökur til Englands. Þar voru þær "masteraðar" og unnar undir fjölföldun.
Í þessu tilfelli var upptakan bókuð til sendingar til Englands að morgni næsta dags. Um miðnætti hringdi Tómas í Ása, sem þá var kenndur við Grammið en er í dag kenndur við Smekkleysu. Tommi tjáði Ása að bassaleikurinn virkaði ekki. Úr varð að Tommi ræsti bassaleikarann upp eftir miðnætti til að hljóðrita bassaleikinn að nýju.
Undir morgun hringdi Tommi aftur til Ása og tjáði honum að nýja upptakan hafi ekki virkað heldur. Niðurstaðan varð sú að Tommi spilaði sjálfur bassalínuna. Loforð voru gefin út og suður um að Bubbi fengi ekki að vita af því. Bubbi og bassaleikarinn voru nefnilega svo góðir vinir.
Þegar platan kom út var haldið hóf og blaðamannafundur á Hótel Borg. Þegar platan var ítrekað spiluð þar segir bassaleikarinn sem vissi ekki betur: "Rosalega er ég þakklátur fyrir að Tommi skuli hafa hóað mig út um nóttina. Eins og ég var fúll yfir því. Upptakan sem ég á á kassettu var með glötuðum bassaleik. Núna er þetta perfekt."
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
10.9.2007 | 17:28
Gamalt leyndarmál upplýst
Flestir kannast sennilega við lagið Ég er frjáls. Það kom fyrst út á 4ra laga Ep plötu með hljómsveitinni Facon frá Bíldudal á sjöunda áratugnum. Á þessum árum var aðeins eitt hljóðver á landinu. Það var í ríkisútvarpinu. Panta þurfti tíma þar með margra vikna fyrirvara. Hljóðverið var svo þétt bókað. Ekki síst vegna þess að verulegur hluti dagskrár útvarpsins var hljóðritaður og unnin löngu fyrir útsendingu.
Þegar liðsmenn Facon voru að ferðbúast suður til að taka upp plötuna kom í ljós að trommuleikarinn var fastur úti á sjó. Nú voru góð ráð dýr. Eftir mikla leit að manni til að hlaupa í skarðið féllst Pétur Östlund á að taka að sér verkið. Pétur er í hópi bestu trommuleikara heims. Á þessum tíma var Pétur að færa sig úr rokki yfir í djass. Hann vildi ekki vera bendlaður við þessa plötu á neinn hátt. Þess vegna kom nafn hans hvergi fram á plötuumslagi né í viðtölum við hljómsveitina.
Þegar platan kom út voru gagnrýnendur blaðanna mjög hrifnir af trommuleiknum. Einn gagnrýnandinn orðaði það eitthvað á þessa leið:
Trommuleikarinn er sérdeilis efnilegur. Hann gæti náð langt ef að hann drífur sig suður og fer í læri hjá Pétri Östlund.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
8.9.2007 | 22:40
Af www.planet.fo
Eivør er nummar eitt 07. sep 2007, 11:42 |

Mynd: Eivør Pálsdóttir
Fløgan Mannabarn hjá Eivør Pálsdóttir er nummar eitt á listanum yvir mest seldar fløgur í Íslandi
Fløgan er nummar eitt á listanum hesa vikuna, eftir at hon kom beinleiðis inn á 5. pláss fyri 14 døgum síðani. ´
Í síðstu viku var Mannabarn nummar tvey á listanum. Tá var fløga nummar eitt ein fløga hjá Magna, ið er íslendskur sangari, ið nú er kendur víða um, eftir luttøku í amerikonsku reality sendingini Rock Star Supernova.
Heimmildarmaður okkara í Íslandi, Jens Guð, sigur, at fløgan hjá Magna verður førd fram í stórum lýsingarherferðum. Fløgan hjá Eivør verður hinvegin ikki førd fram á sama hátt, men liggur tó á fyrsta plássi nú á listanum yvir mest seldu fløgur í Íslandi.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)