Fćrsluflokkur: Tónlist
8.9.2007 | 12:02
Bestu hljómleikahljómsveitirnar
Vegna fćrslu minnar um hljómleika Soundspell í gćr ţá er ég í hljómleikastemmningu. Ţess vegna birti ég hér niđurstöđu úr lesendakönnun bandaríska tímaritsins Rolling Stone yfir bestu starfandi hljómleikabönd heims. Rolling Stone er söluhćsta músíkblađ heims og úrslit í lesendakönnunum blađsins ţykja áreiđanleg. Ţetta ţykja bestu hljómleikaböndin:
1. The White Stripes
2. Radiohead
3. Pearl Jam
4. Rage Against the Machine
5. U2
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
5.9.2007 | 21:28
Ný áhugaverđ plata
Ég var ađ fá í hendur splunkunýja plötu međ íslensku hljómsveitinni Soundspell. Platan heitir An Ode to the Umbrella. Viđ fyrstu hlustun heyrist mér hljómsveitin vera á líkri línu og Coldplay, Keane og Leaves. Músíkstíllinn fellur undir víđtćka samheitiđ gáfumannapopp. Í Englandi er hann kallađur indie og í Bandaríkjunum háskólapopp.
Strákarnir í Soundspell eru ekki nema 17 - 18 ára. Músíkin hljómar samt eins og ađ ţarna séu vanir fagmenn ađ verki. Útsetningar eru hugmydnaríkar og flutningurinn yfirvegađur.
Ég mun gera betri grein fyrir plötunni ţegar ég hef hlustađ á hana mörgum sinnum og rćkilega.
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (23)
4.9.2007 | 21:20
Nýr dagskrárliđur hjá frábćrri útvarpsstöđ
Ég hef áđur hćlt útvarpsstöđinni Reykjavík FM101,5. Ţessi stöđ er snilld. Ţeir sem eiga ekki útvarp eđa eru utan útsendingarsvćđi stöđvarinnar geta hlustađ á netinu http://www.rvkfm.is.
Í dag var hringt í mig frá Reykjavík FM101,5. Mér var tilkynnt um ađ ţar á bć vćri reglulega gluggađ í bloggiđ mitt. Og ađ stíllinn á ţví passi viđ morgunţátt stöđvarinnar, Capone. Spurningin vćri ađ fá mig til ađ fara vikulega yfir tíđindi vikunnar međ ţeim Capone-brćđrum.
Samningaviđrćđur urđu hvorki langar né strangar. Klukkan 9 á hverjum föstudagsmorgni mćti ég galvaskur upp í Reykjavík FM101,5 og rćđi um fréttir vikunnar. Ja, lengi getur gott útvarp batnađ. Ég segi nú ekki annađ.
Svo ćtla ég hćgt og bítandi ađ hafa spjalliđ lengra og lengra. Byrja ađ mćta ađeins fyrr líka. Áđur en nokkur veit af verđ ég búinn ađ leggja undir mig alla dagskrá á stöđinni og yfirtaka reksturinn. Um svipađ leyti verđur RÚV sett á frjálsan markađ. Ţá sameina ég ţessi tvö fyrirtćki. Páll Magnússon fćr samt ađ halda jeppanum. Nafniđ RÚV mun ţá standa fyrir Reykjavíkurútvarpiđ.
Samkeppnislög koma í veg fyrir ađ ég geti yfirtekiđ 365 miđla líka. Ţađ er allt í lagi. Ţá sameina ég bara Reykjavíkurútvarpiđ og Veđurstofu Íslands í stađinn. Og síđar Fiskistofu einnig. Ţegar ţar ađ kemur verđa ríki og kirkja ađskilin. Ţá yfirtek ég ríkiskirkjuna.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:39 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
4.9.2007 | 02:24
Plötudómur
Flytjandi: I Adapt
Titill: Chainlike Burden
Einkunn: ****1/2 (af 5)
Nýjasta plata I Adapt er gullmoli. 10 flott lög. Ţetta er sennilega 6 ára gömul hljómsveit. Stofnuđ upp úr ýmsum harđkjarna hljómsveitum (Bisund, Snafu, Molesting Mr. Bobo.fl.). Harđkjarni er á ensku kallađur hardcore og nćr yfir pönkhljómsveitir í ţyngri og harđari kantinum. Mikil öskur. Mikil lćti.
Framan af var "pjúra" pönk áberandi. Á nýju plötunni er músíkin orđin ţyngri, yfirvegađri og ađ hluta "rólegri" eđa hćggengnari. Án ţess ađ ţađ eigi ađ hljóma eins og eitthvađ neikvćtt gagnvart eldri frábćrum plötum I Adapt ţá er nýja platan eins og meira "alvöru". Hljómsveitin er eins og ţroskađri.
Ţađ vantar ekkert upp á kraft eđa hrađa. Ţó ađ inn á milli sé keyrslan ekki eins yfirkeyrđ. Trommuleikurinn er einstaklega skemmtilegur. Kröftugar áherslurnar í trommuleiknum gera mikiđ fyrir lögin. Söngvarinn, Birkir Fjalar Viđarsson, var lengi í framlínu bestu trommara landsins. Spilađi međ Bisund, Döđlunum og Stjörnukisa. Var réttilega kosinn besti trommuleikarinn í Músíktilraunum ţegar Bisund lenti ţar í 2. sćti (man ekki hvort ađ ţađ var á eftir Sođinni fiđlu eđa Steiner). Birkir myndi ekki sćtta sig viđ neitt minna en ţann snilldar trommuleik sem heyrist á plötunni.
Birkir rćđur viđ ađ öskra út í eitt. Smá hnökri viđ plötuna er ađ söngurinn hefđi fyrir minn smekk mátt vera hljóđblandađur pínu pons framar. Samt ekki neitt sem kemur ađ sök. Platan hljómar flott eins og hún er. Á köflum tel ég mig heyra samhljóm međ einni af mínum uppáhalds hljómsveitum, hinni bandarísku Minsitry. Kröftugur öskursöngur yfir rólyndislega en ţunga undiröldu.
Annar lítillegur hnökri er ađ ég heyri ekki orđaskil og textarnir sem prentađir eru í flott umslag eru illlćsilegir fyrir mann á sextugsaldri. Ţetta atriđi skrifast ţó frekar á sjóndepurđ gamals manns en plötuumbúđir.
Ţriđja atriđiđ er ađ I Adapt er ein allra skemmtilegasta hljómleikahljómsveit landsins. Stemmningin sem hljómsveitin nćr ađ magna upp á hljómleikum skilar sér eđlilega ekki ađ fullu á plötu.
Fjórđa atriđiđ er ađ platan er frekar seintekin. Ég er búinn ađ hlusta á hana um ţađ biđ 30 sinnum. Ţađ tók mig nokkrar hlustanir ađ fá góđar lagasmíđarnar til ađ laumast inn.
Eftir stendur ađ ţetta er frábćr plata međ frábćrri hljómsveit. Platan fćst í 12 Tónum, Smekkleysu og fleiri búđum öđrum en Skífunni.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 04:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (15)
29.8.2007 | 22:56
Óli Palli er snillingur!
Ţađ er mikil gćfa fyrir rás 2 ađ búa ađ jafn góđum útvarpsmanni og Óla Palla. Einum ţeim albesta í útvarpssögu landsins. Hann er međ góđan músíksmekk en jafnframt mjög umburđarlyndur og fordómalaus gagnvart allskonar músík.
Ţekking hans á músík er góđ. Hann er ágćtur gítarleikari. Til viđbótar er hann afskaplega áhugasamur um ţađ sem er ađ gerast í músík. Hann er mćttur hvort sem er á Músíktilraunir, hljómleika vítt og breitt um landiđ eđa í nágrannalöndum. Allsstađar er Óli Palli mćttur fyrstur manna á svćđiđ. Hann er međ puttann á púlsinum.
Til viđbótar er hann ţćgilegur útvarpsmađur. Međ ţćgilega útvarpsrödd og laus viđ ţá sjálfsupphafningu sem einkennir marga útvarpsmenn á öđrum útvarpsstöđvum. Einkum Effemm 957.
Í dag heyrđi ég í Óla Palla rćđa á rás 2 viđ Lönu Kolbrúnu, djassgeggjara, um yfirstandandi djasshátíđ. Taliđ barst ađ bloggi. Óli Palli sagđi: "Uppáhaldsbloggarinn minn er Jens Guđ." Lana sagđist ekki geta tekiđ undir ţađ. Óli Palli ítrekađi sitt viđhorf. En Lana var á öđru máli.
Sem er allt í lagi mín vegna. Djassţćttir Lönu á rás 1 hafa veriđ hundleiđinlegir. Og djass er leiđinleg músík.
Nei, nei, ég segi nú bara si svona. Djassţćttir Lönu hafa veriđ eyrnakonfekt. Djassmúsík er jafnframt mín uppáhaldsmúsík. Ađ sjálfsögđu er bara hiđ besta mál ađ Lana skuli ekki taka undir lofsamleg ummćli Óla Palla um bloggiđ mitt. Djassţćttir hennar eru jafn góđir eftir sem áđur og áhugi hennar á djassi og kynning hennar á djassi er jafn ađdáunarverđ ţó ađ hún sé neikvćđ í garđ bloggsins míns. Ég geri mér grein fyrir ţví ađ minn bloggstíll er ekki allra. Ţvert á móti ţykir mér flott hjá henni ađ vera hreinskilin međ ţađ. En jafnframt ţykir mér upphefđ í ađ Óli Palli sé á öđru máli. - Ţó ađ hann hafi klikkađ á ađ útvega mér síđasta Rokklandsdiskinn. Sem hann var ţó búinn ađ lofa mér.
Ég vil bćta ţví viđ ađ rás 2 er einkar heppin međ fleiri dagskrárgerđarmenn. Ţar er rjóminn: Andrea Jóns, Guđni Már, Freyr Eyjólfs, Snorri Sturluson, Ásgeir Eyţórs, Kalli Sigurđs og Ásgeir og eflaust fleiri sem ég er ađ gleyma í fljótu bragđi.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (46)
26.8.2007 | 23:15
5 atriđi sem skautađ er framhjá í ćvisögu Bobs Dylans
Bob Dylan kom verulega á óvart međ ćvisögu sinni, Chronicles, í fyrra. Reyndar ekki í fyrsta skipti sem hann hefur komiđ á óvart. Bókin ţykir ekki meistaraverk í stíl og sver sig ekki á ţann hátt í samlíkingu viđ texta Dylans. Á móti kemur - og skiptir kannski meira máli - ađ hún er mjög skemmtileg. Margar kannast viđ ađ hafa byrjađ ađ glugga í bókina í bókabúđ og ekki getađ hćtt ađ lesa. Keypt bókina og velt fyrir sér ýmsu sem ţar kemur fram.
Bókin er líka áhugaverđ vegna ţess ađ Dylan hefur alltaf veriđ hrađlyginn. Hann lýgur á fćribandi ađ ţeim sem hann umgengst og ekki síđur í viđtölum viđ fjölmiđla.
Viđ skráningu á bókinni virđist lygaáráttan ekki hafa sótt á kallinn.
Margir hafa tekiđ eftir ađ í bókinni skautar Dylan aftur á móti framhjá atriđum sem ćtla mátti ađ Dylan hefđi gert skil í bókinni. Ţau helstu eru:
- Ástarsamband hans og Jóhönnu frá Bćgisá (eins og Halldór Laxness kallađi ţjóđlagadrottninguna Joan Baez). Ţađ var hún sem kynnti hann og söngva hans fyrir ţjóđlagasenunni. Ţegar ástarsamband ţeirra hófst var hún heimsfrćg, á forsíđu fréttablađsins Time og ofarlega á vinsćldalistum en Dylan óţekktur. Til gamans má geta ađ áđur en Dylan kynntist Joan ţá sat hann ađ sumbli međ mági hennar, Richard Farina. Dylan spurđi Richard: "Hver er einfaldasta leiđ mín til ađ slá í gegn?" Richard svarađi í gríni: "Ađ taka upp ástarsamband viđ Joan Baez." Nokkrum dögum síđar hitti Richard ţau Dylan og Baez. Ţá voru ţau byrjuđ saman. Í bókinni afgreiđir Dylan ástarsamband ţeirra í 7 orđum.
- Alvarlegt mótorhjólaslys sem Dylan lenti í 1966. Ţađ afgreiđir hann í 14 orđum í bókinni.
- Ţegar Dylan hitti Bítlana í fyrsta skipti ţá kenndi hann ţeim ađ reykja hass. Ţađ er ekki stafkrókur um ţađ í bókinni.
- Stćrsti vendipunktur á tónlistarferli Dylans var ţegar hann setti kassagítarinn til hliđar og fór ađ rokka međ hljómsveit. Ţá var hann orđinn stćrsta nafniđ í vísnatónlist. Hann var stćrsta nafniđ á helstu tónlistarhátíđ ţjóđlagatónlistar, Newport Folk Festival. Ţar voru áhorfendur komnir til ađ hlusta á rjómann í órafmagnađri ţjóđlagatónlist. Ţeir fengu áfall er Dylan mćtti međ rafmagnađa rokkhljómsveit. Áheyrendur bauluđu Dylan af sviđinu. Honum til undrunar og áfalls. Í bókinni er ekki minnst orđi á ţetta.
- Hér er atriđi sem kannski er ekki í samrćmi viđ ofantalin atriđi. Dylan hefur átt fleiri en eina konu. Í bókinni nefnir hann "konuna mína" án ţess ađ tilgreina viđ hverja hann á.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2007 | 14:13
Rýnt í niđurstöđur könnunar um besta rokksöngvarann
Hvađ er skemmtilegra en góđ skođanakönnun? Ekkert. Nema kannski ennţá betri skođanakönnun. Ţannig var einmitt síđasta skođanakönnun. Ţar var reynt ađ finna besta íslenska rokksöngvarann. Ég dró línuna viđ ađ ţá sem ráđa viđ öskursöngstílinn sem einkennir gott rokk. Ég útilokađi ţá sem eru minna ţekktir og ţá sem hafa ekki veriđ í hringiđunni til margra ára. Niđurstađan var eftirfarandi:
1. Bubbi 27,9%
Sigur Bubba kemur ekki á óvart. Ekki ađeins vegna vinsćlda kóngsins heldur einnig vegna ţess ađ hann hefur ţol í góđa rokkdagskrá. Sama hvort hefur veriđ međ Utangarđsmönnum, Egói, Das Kapital, MX-21 eđa Stríđi & friđi.
2. Eiríkur Hauksson 19,5%
Ég bjóst viđ ađ biliđ yrđi styttra á milli á Eika og Bubba. Eins og Eiki er frábćr rokksöngvari ţá er ađ öllum líkindum léttpoppiđ ađ ţvćlast fyrir honum í svona könnun. Margir ţekkja hann einungis sem Eurovisjon-söngvara.
3. Jenni í Brain Police 9,4%
Framan af í könnunni vakti undrun mína ađ nafni minn var lengst af ekki öruggur í 3ja sćtinu. Ég var svo viss um ađ hann nćđi ţessu sćti. Í spjalli viđ kunningja mína verđ ég var viđ ađ sumir telja hann dálítiđ einhćfan söngvara. Engu ađ síđur eru allir séu sammála um ađ hann sé frábćr söngvari.
4. Atli Fannar í Haltri hóru 8,8%
Ég sá ekki fyrir ađ Atli Fannar yrđi í 4đa sćti. Ađ vísu er Hölt hóra frábćr hljómsveit og Atli Fannar vel ađ ţessu sćti kominn. Ég skemmti mér alltaf rosalega vel á hljómleikum Höltu hórunnar. En ég var ekki búinn ađ átta mig á ađ stađa Atla Fannars og Höltu hórunnar vćri ekki svona sterk.
5. Bóas í Reykjavík! 8,6%
Bóas er bara frábćr söngvari. Líka frábćr "performer". Mér ţótti reyndar gamla hljómsveitin hans, Vígspá, ennţá skemmtilegri hljómsveit en Reykjavík! Ţađ er af ţví ađ ég er sérvitur.
6. Biggi í Gildrunni 8,2%
Ef einhver er John Fogerty Íslands ţá er ţađ Biggi í Gildrunni. Getur öskrađ út í eitt án ţess ađ blása úr nös og getur ţaniđ sig í hćstu hćđir.
7. Birkir Fjalar í I Adapt 6,6%
Birkir Fjalar var ekki ađeins frábćr trommari í Bisund og Stjörnukisa heldur einhver líflegasti söngvari harđkjarnans. Hann gefur allt í dćmiđ.
8. Siggi Pönk í Forgarđi helvítis 6,0%
Siggi Pönk er bara snillingur. Hjúkka og anarkisti. Er til flottari blanda? Forgarđurinn er einhver kraftmesta hljómsveit rokksögunnar. Og ekki er hann síđri međ pönksveitinni DYS.
9. Krummi í Mínus 5,1%
Eđal töffari og eđal söngvari í eđal hljómsveitinni Mínusi. Ég hefđi viljađ sjá Krumma ofar á listanum. En ţađ er svo sem ekki slćmt ađ vera einn af 9 bestu rokksöngvurum landsins.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:41 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (11)
19.8.2007 | 03:56
Mest óţolandi íslenska dćgurlagiđ
Tónlist | Breytt s.d. kl. 16:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (57)
18.8.2007 | 23:15
Úrslit í skođanakönnun um besta rokksöngvarann
Nú er komin niđurstađa í skođanakönnun um besta íslenska rokksöngvarann. Ég tilkynnti í upphafi ađ útkoman yrđi birt ţegar 500 atkvćđu vćru greidd. Sá atkvćđafjöldi nćgir vel til ađ niđurstađan sé marktćk.
Reyndar kom fljótlega mynd á niđurstöđuna sem breyttist lítiđ ţó ađ atkvćđum fjölgađi. Ţrjú efstu sćtin taldi ég nokkuđ gefin. Ég var ekki eins viss um önnur sćti. En ţetta er niđurstađa 534 atkvćđa:
1. Bubbi 27,9%
2. Eiríkur Hauksson 19,5%
3. Jenni í Brain Police 9,4%
4. Atli Fannar í Haltri hóru 8,8%
5. Bóas í Reykjavík! 8,6%
6. Biggi í Gildrunni 8,2%
7. Birkir Fjalar í I Adapt 6,6%
8. Siggi Pönk í Forgarđi helvítis 6,0%
9. Krummi í Mínus 5,1%
Tónlist | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
18.8.2007 | 02:03
Snilldarţýđing
Ég heyrđi áđan út undan mér Snorra Sturluson afgreiđa ágćta nćturvakt á rás 2. Snorri á ţađ sameiginlegt međ flestum dagskrárgerđarmönnum rásar 2 ađ vera međ ágćtan músíksmekk - ef viđ skautum framhjá Kiss. Snorri spilađi hiđ ljúfa lag međ Bob Marley "No Woman, No Cry". Sumir vilja meina ađ titill lagsins beri keim af jamaískri málvillu. Titillinn eigi ađ vera "No Woman don´t Cry" ef hangiđ er í kórréttri ensku. Snorri ţýddi titilinn "Hćttu ađ gráta hringaná". Frábćr ţýđing.
Til gamans má geta ţess ađ ég tók símaviđtal viđ Bob Marley í námunda viđ 1980 og tók ţátt í ađ reyna ađ fá hann til hljómleikahalds á Íslandi. Ţađ gekk ekki eftir.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (27)