Fćrsluflokkur: Ljóđ
22.2.2011 | 00:59
Plötuumsögn
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 01:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2011 | 01:27
Jónsi á lista hjá Spin
Ţađ er alltaf eitthvađ rosalega gaman viđ ađ sjá íslenska tónlistarmenn skora mark í útlöndum. Rétt eins og ţađ er gaman ađ sjá íslenskar plötur í útlendum plötubúđum. Jafnvel ţó ţađ sé ađ verđa hversdagsleg sjón ađ sjá plötur Bjarkar, Sigur Rósar, Emilíönu Torríni og Jónsa í útlendu plötubúđunum. Extra gaman var ađ sjá plötu unglingsstelpnanna Pascal Pinon í stćrstu plötubúđ New York í síđasta mánuđi og lesa lofsamlegan dóm um ţá plötu í bandaríska rokkblađinu Under the Radar. Svo ekki sé minnst á plötur I Adapt í ţýskum og pólskum plötubúđum.
Nćst söluhćsta poppblađ Bandaríkjanna (á eftir Rolling Stone) er Spin. Í nýjasta heftinu upplýsa 25 poppstjörnur hverjar eru ţeirra uppáhaldsplötur og uppáhaldslög frá síđasta ári. Tilnefningar ţeirra eru rökstuddar. Ţar á međal tilnefnir Haylay Williams í Paramore lagiđ Month of May međ Arcade Fire; Ezra Koenig ađ uppáhaldsalagiđ sé Zebra međ Beach House; Wayne Cone í Flaming Lips ađ uppáhalds lag sitt sé Born Free međ M.I.A.
Randy Randall í No Age tilnefnir plötuna Le Noise međ Neil Young.
Og Michael Angelakos í Passion Pit tilnefnir plötuna Go međ Jónsa. Rökin eru ţau ađ hann hafđi lesiđ um ađ platan ćtti ađ vera órafmögnuđ. Hún hafi hinsvegar ţróast í ađ verđa hamingjulega himnesk. Plötur Sigur Rósar séu myrkar og ţunglyndislegar en auđheyrt sé ađ Jónsi hafi skemmt sér viđ ađ gera Go.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2011 | 23:18
Ljósmyndir af Ópi
Um síđustu helgi gerđi ég góđ skil frábćrum tónleikum Óp-hópsins í Salnum í Kópavogi. Ţađ má međal annars lesa međ ţví ađ smella á ţessa slóđ: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1141979/#comments . Eđa fletta smávegis niđur ţessa síđu. Ţarna vakti ég bjartar vonir um ađ á ţessum vettvangi yrđu birtar ljósmyndir af fjörinu. Ţađ er ekki venja ađ valda vonbrigđum ţegar svona hlutir eru til umrćđu. Hér birtast myndirnar, teknar af verđlaunaljósmyndaranum Ingólfi Júlíussyni:
Ljóđ | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
12.2.2011 | 01:13
Sement - Hamferđ
Um helgina fóru fram í Fćreyjum ţađ sem viđ getum kallađ fćreyskar "Músíktilraunir". Hliđstćđa viđ íslensku "Músíktilraunir". Ţessar fćreysku kallast Sement. Ţćr eru arftaki Prix Föroyar. Prix Föroyar var haldin á 2ja ára fresti. Allar fćreyskar hljómsveitir voru gjaldgengar. Rótgrónar vinsćlar fćreyskar hljómsveitir höfđu ţar forskot á nýliđa. Ţetta fyrirkomulag olli stöđugum deilum ţrátt fyrir ađ til ađ mynda - ţá nýja hljómsveitin - Clickhaze hafi rúllađ Prix Föroyar upp 2001.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
10.2.2011 | 07:32
Glćsilegir tónleikar Óp-hópsins
Ekki brást hún mér, spádómsgáfan, í gćr fremur en fyrri daginn.. Alveg nákvćmlega eins og ég hafđi spáđ var gífurlegt fjör í Salnum í Kópavogi í gćr (Óđinsdag). Óp-hópurinn var ţar međ tónleika sem tókust glćsilega í alla stađi. Ţarna mátti heyra á einu bretti í öllum bestu íslensku söngvurum framtíđarinnar: Braga Jónssyni, Bylgju Dís Gunnarsdóttur, Erlu Björgu Káradóttur, Hörn Hrafnsdóttur, Magnúsi Guđmundssyni (ekki má rugla honum saman viđ nafna hans kenndum viđ Ţey. Sem er líka frábćr) og Rósalindi Gísladóttur. Jóhanna Héđinsdóttir er einnig í Óp-hópnum en ég varđ ekki var viđ hana á sviđinu. Kannski var hún bara úti í sal. Eđa baksviđs.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 19:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
9.2.2011 | 01:20
Nú verđur stuđ! Ţađ fer allt á annan endann!
.Ţađ verđur ekkert smá fjör á morgun (Óđinsdag, 9. febrúar). Og ţađ í Salnum í Kópavogi. Fjöriđ hefst ekki seinna en á slaginu klukkan 18.00. Eđa ţví sem nćst. Ţađ er sjálfur Óp-hópurinn sem mun međ leikrćnum tilţrifum flytja atriđi úr óperum eftir Bellini (Norma), Bizet (Carmen) Donizetti, Gershwin (Porgy og Bess), Mozart og Tchaikovsky (Spađadrottningin). Ýjađ verđur ađ búningum og sviđssetningu eins og kostur er. .
.Ég er ekki klár á ţví hvort Antonía Hevesí er skilgreind sem fullgild í Óp-hópnum eđa hvort hún telst vera píanóleikari Óp-hópsins. Ef seinna tilfelliđ er nćr sanni getum viđ talađ um tónleika Óp-hópsins viđ píanóundirleik Antoníu Hevesí. Ţađ hljómar vel í öllum skilningi.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 01:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2011 | 13:24
Merkustu fyrirbćri rokksögunnar
Á fimmtugs afmćli rokks og róls, 2004, leitađi bandaríska poppmúsíkblađiđ Rolling Stone til fjölmenns hóps starfandi poppstjarna heims. Erindiđ var tilraun Rolling Stone til ađ finna út hvađa hljómsveitir, sólósöngvarar og sólósöngkonur hafi haft mest áhrif á helstu poppstjörnur 21. aldarinnar. Niđurstađan er sá listi sem hér er fyrir neđan. Ţađ verđur ekki annađ sagt en ađ útkoman sé sannfćrandi. Ađ vísu međ ţeim fyrirvara ađ ţarna er um bandarískt blađ ađ rćđa og meirihluti ţátttakenda er bandarískur.
Ljóđ | Breytt 1.2.2011 kl. 00:13 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (19)
30.1.2011 | 17:37
Plötuumsögn
- Titill: Baldur
- Flytjandi: Skálmöld
Ljóđ | Breytt 31.1.2011 kl. 01:09 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
28.1.2011 | 00:53
Óvćnt uppgötvun: Lítiđ ţekkt íslensk hljómsveit í bandarískri plötubúđ
Ţađ er alltaf gaman og dálítiđ skrýtiđ ađ sjá íslenskar plötur í útlendum plötubúđum. Ekki síst í dag eftir ađ plötubúđir heimsins eru orđnar fátćklegri af "sjaldgćfari" plötum og gera meira út á ţađ sem hćst ber á vinsćldalistum. Ţađ er hćgt ađ ganga ađ plötum Bjarkar, Sykurmolanna, Sigur Rósar og Jónsa sem vísum í útlendum plötubúđum. Svo rekst mađur á eina og eina íslenska plötu sem vekur undrun.
Fyrir áratug keypti ég plötuna "Saga rokksins" međ Ham í plötubúđ í Prag í Tékklandi. Ţađ var óvćnt og gaman. Í Berlín í Ţýskalandi keypti ég plötu međ I Adapt fyrir nokkrum árum. Ţar var meira ađ segja veriđ ađ spila hana í hátölurum búđarinnar er ég gekk ţar inn. Afgreiđslumennirnir sýndu mér ađ auki jákvćđan plötudóm um plötuna í ţýsku blađi. Blađiđ suđađi ég út úr ţeim til ađ sýna strákunum í I Adapt.
Fyrir tveimur árum rakst ég á sömu plötu í plötubúđum í Póllandi. Ţađ var einnig fjallađ um hana í ţarlendum rokkblöđum. Í ljós kom ađ um sjórćningjaútgáfu var ađ rćđa. Síđast ţegar ég frétti voru liđsmenn I Adapt komnir međ lögfrćđing í máliđ.
Á dögunum í New York fann ég í plötubúđ plötu međ íslensku hljómsveitinni Pascal Pinon, samnefnda hljómsveitinni. Í bandaríska rokkblađinu Under the Radar er umfjöllun um ţessa plötu. Hún fćr ţar einkunnina 6 (af 10).
Ég veit fátt um ţessa hljómsveit. Nema ţekki lagiđ ljúfa sem hér fylgir međ. Hef heyrt Bubba spila ţađ í "Fćribandinu" á rás 2. Virkilega krúttlegt lag.
Í umsögn um plötuna í Under the Radar segir ađ hljómsveitin Pascal Pinon sé nefnd í höfuđin á tvíhöfđa sirkus-fríki. Ţar segir líka ađ tónlist hljómsveitarinnar sé samin af 14 ára tvíburasystrum. Um sé ađ rćđa ađlađandi lo-fi (lágstemmd naumhyggja) tónlist spilađa á kassagítar, flautu og klukknahljóm (mér heyrist sem ţarna laumist líka lágvćrt hljómborđ međ. Mitt innskot). Ţađ megi skilgreina ţetta sem krúttlegt en sé um leiđ hrífandi og mildur hljóđheimur sem lofi bjartri framtíđ.
Under the Radar fćst ekki hérlendis. Ef einhver hér ţekkir til stelpnanna í Pascal Pinon skal ég senda ţeim eintak af blađinu međ plötudómnum.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (14)
22.1.2011 | 19:55
Kominn inn á Ameríkumarkađ
Bandaríski músíkmarkađurinn er sá stćrsti í heimi. Ekki ađeins er Kaninn liđtćkur neytandi músíkur í öllu formi (plötukaup, ađsókn á hljómleika, útvarpshlustun, gláp á tónlistarefni í sjónvarpi og svo framvegis) heldur er bandaríski markađurinn gegnum gangandi verulega ráđandi í músíkmarkađi heimsins. Sá sem slćr í gegn í bandaríska skemmtiiđnađinum er sjálfkrafa kominn inn á heimili heimsbyggđarinnar: Í gegnum sjónvarpsţćtti, slúđurdálka blađa og annađ í ţá veru.
Heimsbyggđin fylgist međ bandarískum vinsćldalistum (músík, kvikmyndir, bćkur...), verđlaunahátíđum á borđ viđ Óskarinn, Grammy, Golden Globe, Golden Dildo, Frćgđarhöll rokksins og hvađ ţetta heitir allt.
Nú er Íslandsvinurinn Högni Lisberg frá Fćreyjum kominn inn fyrir ţröskuldinn í Bandaríkjunum. Síđasta haust kom lag međ honum út í hljóđrás tölvuleiks sem heitir NBA 2K II. Ţetta er körfuboltaleikur sem selst í milljónaupplagi. Lagiđ sem um rćđir heitir Bow Down. Myndbönd međ Högna (og úr tölvuleiknum) ţar sem ţetta lag er flutt hafa til samans fengiđ nćstum 200 ţúsund innlit á ţútupunni. Ţađ er heldur betur stökk frá ţví sem áđur var. Önnur myndbönd međ Högna hafa fengiđ 2 - 3 ţúsund innlit. Hans vinsćlasta lag fram ađ útkomu NBA 2K II, Morning Dew, er komiđ međ 10 ţúsund innlit. Ţađ lag sat vikum saman á íslenska og fćreyska vinsćldalistanum og fékk fína spilun í útvarpi í Sviss, Danmörku og víđar fyrir nokkrum árum. Samnefnd plata náđi jafnframt 1. sćtinu á Íslandi og í Fćreyjum. Í Fćreyjum var Morning Dew plata ársins 2005 í fćreysku tónlistarverđlaununum.
Í kjölfar útgáfu NBA 2K II tölvuleiksins hafa bandarískar útvarpsstöđvar byrjađ ađ spila Bow Down. Bandaríska plötufyrirtćkiđ Spectra Records brá viđ skjótt og bauđ Högna útgáfusamning. Hafđi samband viđ hann ađ fyrra bragđi. Högni skrifađi undir samninginn á dögunum. Samningurinn kveđur á um ađ Spectrum gefi út og dreifi plötu Högna, Haré Haré, í bandarískar og kanadískar plötuverslanir. Haré, Haré kom ut í Evrópu fyrir ţremur árum og inniheldur lagiđ Bow Down.
Spectra Records er ţekktast fyrir ađ gefa út plötur međ svokölluđum sívinsćlum rokkurum og poppurum (classic rock / pop). Má ţar nefna Paul Young, T. Rex, Cutting Crew, Lou Gramm, Rock Star (súper-grúppan (Metallica/Guns 'N´Roses/Mötley Crue-dćmiđ sem Magni keppti um ađ verđa söngvari í) og fleiri slíka. Fyrir bragđiđ er dreifingakerfi fyrirtćkisins til plötuverslana ţétt og sívirkt.
Högni sló upphaflega í gegn sem trommuleikari fćreysku súper-grúppunnar Clickhaze. Međ henni spilađi hann á nokkrum hljómleikum hérlendis 2003 (ţegar fćreyska bylgjan skall á). Síđar hefur Högni m.a. spilađ sitthvort áriđ á Iceland Airwaves. Ţá sem gítarleikari og söngvari. Einnig hefur hann sungiđ hérlendis viđ undirleik hljómsveitar á Atlantic Music Event, svo og spilađ á trommur á hljómleikaferđum hennar um Ísland í fyrra.
Ljóđ | Breytt s.d. kl. 20:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)